Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 36
36 FÓKUS 8. febrúar 2019 Í ár tekur Ísland þátt í 32. sinn í keppninni og því tilvalið að fara yfir nokkur lög sem hefðu átt að vinna í keppninni hér heima, í stað vinningslag þess árs. 1987 Lagahöfundar og flytj­endur mættu peppaðir í einhverja bestu keppni Söngva­ keppninnar hingað til, enda allir ennþá á því að sigur í Eurovision væri handan við hornið, jafnvel bara strax þá. Eitísútlitið var alls­ ráðandi og áhorf á keppnina í dag býður upp á nostalgíu fyrir allan peninginn. Þrjú lög börðust um hylli áhorfenda og sigurinn. Lögin í öðru og þriðja sæti keppninnar, Lífið er lag, með Módelhópnum, og Norðurljós, með þá hárprúðum Eyjólfi Kristjánssyni, hefðu sómt sér vel í sigursætinu, í stað vinn­ ingslagsins sem rúllaði sér Hægt og hljótt í keppnina í Brussel í Belgíu og beint í 16. sætið. 1989 Nýtt fyrirkomulag var reynt og sex höfundar beðnir um að senda lag í keppn­ ina, fimm slógu til, sjá sjötti hafn­ aði góðu boði og var það enginn annar en Bubbi Morthens. Lög­ in sem kepptu voru því aðeins fimm, en lagið sem hefur lifað best og lagið sem átti að vinna er Sól­ ey í flutningi Björgvins Halldórs­ sonar og Kötlu Maríu Hausmann. Eru líkur á að þeim hefði gengið mun betur í Bern í Sviss, en laginu sem enginn sá né heyrði í flutningi Daníels Ágústs Haraldssonar, sem gerði sér lítið fyrir og tók neðsta sætið með núll stig. 1992 150 lög bárust í sjö­undu keppnina og tíu voru valin, sigurlagið var (og er) stórgott en hljómsveitin Stjórnin fór í nafnbreytingu, kallaði sig He­ art 2 Heart og tók sjöunda sætið sem varð besti árangur okkar alveg til ársins 1999. Tvö önnur lög voru í keppninni sem hefðu líka sómt sér mjög vel í sigursætinu og hafa lifað með þjóðinni allar götur síð­ an; Karen. í flutningi Bjarna Ara­ sonar, og Mig dreymir, í flutningi Björgvins Halldórssonar. 2006 Fyrirbærið Silvía Nótt var búið til og fór til Aþenu í Grikklandi þar sem lagið komst ekki áfram úr undankeppn­ inni, en lagið lenti þar í 13. sæti af 23 og var púað af sviðinu. Lag Frið­ riks Ómars, Það sem verður, var í 3. sæti í keppninni hér heima og hefði sómt sér mun betur í sólinni erlendis. Sjáum hvað verður í ár. 2011 Vinir Sjonna unnu keppnina hér heima með lagið Aftur heim, en bandið samanstóð af vinum Sigurjóns Brink söngvara sem lést stuttu áður en hann átti að flytja lag­ ið í keppninni. Hann var vinum og aðdáendum harmdauði, lagið var ágætt og því eðlilegt og fyrir­ sjáanlegt að það myndi fá fjölda atkvæða bæði fyrir gæði og í sam­ úðarskyni. Lagið fékk þó litla sam­ úð hjá Evrópu og lenti í 20. sæti í Dusseldorf í Þýskalandi. Magni Rockstar Ásgeirsson átti stórgott lag í keppninni, sem lenti í öðru sæti, Ég trúi á betra líf, og hefði hann trúlega átt stórgóðan sprett á sviðinu í keppninni úti. 2015 Sjö lög tóku þátt í loka­keppninni eftir tvær undankeppnir. Dómnefnd og símaatkvæði til helminga völdu tvö lög áfram, sem öttu kappi um sigurinn. Lag Friðriks Dór, Í síð­ asta skipti, fékk fleiri atkvæði í sinni undankeppni en sigurlagið og einnig fleiri atkvæði í síma­ kosningunni í lokakeppninni. Hvert einasta mannsbarn þjóðar­ innar kann lagið og er líklegt að það hefði heillað mannsbörn Evrópu á svipaðan hátt, frekar en Lítil skref Maríu Ólafsdóttur sem trítluðu beint í 15. sæti seinni undankeppninnar og komst ekki áfram í lokakeppnina í Vín í Austur ríki. 2017 Söngkona Svala Björg­vinsdóttir kom, sá og sigraði í keppninni með Paper, og flutti síðan aftur heim til Íslands og er að gera góða hluti í tónlistar­ bransanum, sem hún steig fyrst inn í sem barn. Nýliðinn Daði Freyr Pétursson heillaði hins vegar þjóðina með laginu Hvað með það? Og hvað með það þótt hann hefði farið fyrir okkar hönd til Kíev í Úkraínu, framlag hans hefði jafn­ vel skilað okkur í lokakeppnina sem pappírinn gerði ekki.Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Vandaðar innréttingar Hjá Parka færðu hágæða innréttingar, sérsniðnar að þínum óskum og þörfum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Lögin sem áttu að vinna í Söngvakeppninni Saga Íslendinga í Eurovision hófst árið 1986 þegar ICY hópurinn (Eiríkur Hauksson, Helga Möller og Pálmi Gunnarsson) hélt til Bergen í Noregi með Gleðibankann. Fá atkvæði frá Evrópu fengust þó í bankann, aðeins 19, og endaði Ísland í 16. sæti af 20 mögulegum, sætinu sem síðar kom í ljós að yrði þaulsetið af íslensku framlögunum. MYNDIR: SKJÁSKOT AF RUV Lífið er lag Norðurljós Sóley Mig dreymir Karen Hvað með það Það sem verður Ég trúi á betra líf Í síðasta skipti Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.