Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Qupperneq 36
36 FÓKUS 8. febrúar 2019
Í
ár tekur Ísland þátt í 32. sinn í
keppninni og því tilvalið að fara
yfir nokkur lög sem hefðu átt að
vinna í keppninni hér heima, í
stað vinningslag þess árs.
1987 Lagahöfundar og flytjendur mættu peppaðir
í einhverja bestu keppni Söngva
keppninnar hingað til, enda allir
ennþá á því að sigur í Eurovision
væri handan við hornið, jafnvel
bara strax þá. Eitísútlitið var alls
ráðandi og áhorf á keppnina í dag
býður upp á nostalgíu fyrir allan
peninginn. Þrjú lög börðust um
hylli áhorfenda og sigurinn. Lögin
í öðru og þriðja sæti keppninnar,
Lífið er lag, með Módelhópnum,
og Norðurljós, með þá hárprúðum
Eyjólfi Kristjánssyni, hefðu sómt
sér vel í sigursætinu, í stað vinn
ingslagsins sem rúllaði sér Hægt
og hljótt í keppnina í Brussel í
Belgíu og beint í 16. sætið.
1989 Nýtt fyrirkomulag var reynt og sex höfundar
beðnir um að senda lag í keppn
ina, fimm slógu til, sjá sjötti hafn
aði góðu boði og var það enginn
annar en Bubbi Morthens. Lög
in sem kepptu voru því aðeins
fimm, en lagið sem hefur lifað best
og lagið sem átti að vinna er Sól
ey í flutningi Björgvins Halldórs
sonar og Kötlu Maríu Hausmann.
Eru líkur á að þeim hefði gengið
mun betur í Bern í Sviss, en laginu
sem enginn sá né heyrði í flutningi
Daníels Ágústs Haraldssonar, sem
gerði sér lítið fyrir og tók neðsta
sætið með núll stig.
1992 150 lög bárust í sjöundu keppnina og tíu
voru valin, sigurlagið var (og er)
stórgott en hljómsveitin Stjórnin
fór í nafnbreytingu, kallaði sig He
art 2 Heart og tók sjöunda sætið
sem varð besti árangur okkar alveg
til ársins 1999. Tvö önnur lög voru
í keppninni sem hefðu líka sómt
sér mjög vel í sigursætinu og hafa
lifað með þjóðinni allar götur síð
an; Karen. í flutningi Bjarna Ara
sonar, og Mig dreymir, í flutningi
Björgvins Halldórssonar.
2006 Fyrirbærið Silvía Nótt var búið til og fór til
Aþenu í Grikklandi þar sem lagið
komst ekki áfram úr undankeppn
inni, en lagið lenti þar í 13. sæti af
23 og var púað af sviðinu. Lag Frið
riks Ómars, Það sem verður, var í
3. sæti í keppninni hér heima og
hefði sómt sér mun betur í sólinni
erlendis. Sjáum hvað verður í ár.
2011 Vinir Sjonna unnu keppnina hér heima
með lagið Aftur heim, en bandið
samanstóð af vinum Sigurjóns
Brink söngvara sem lést stuttu
áður en hann átti að flytja lag
ið í keppninni. Hann var vinum
og aðdáendum harmdauði, lagið
var ágætt og því eðlilegt og fyrir
sjáanlegt að það myndi fá fjölda
atkvæða bæði fyrir gæði og í sam
úðarskyni. Lagið fékk þó litla sam
úð hjá Evrópu og lenti í 20. sæti í
Dusseldorf í Þýskalandi. Magni
Rockstar Ásgeirsson átti stórgott
lag í keppninni, sem lenti í öðru
sæti, Ég trúi á betra líf, og hefði
hann trúlega átt stórgóðan sprett á
sviðinu í keppninni úti.
2015 Sjö lög tóku þátt í lokakeppninni eftir tvær
undankeppnir. Dómnefnd og
símaatkvæði til helminga völdu
tvö lög áfram, sem öttu kappi um
sigurinn. Lag Friðriks Dór, Í síð
asta skipti, fékk fleiri atkvæði í
sinni undankeppni en sigurlagið
og einnig fleiri atkvæði í síma
kosningunni í lokakeppninni.
Hvert einasta mannsbarn þjóðar
innar kann lagið og er líklegt að
það hefði heillað mannsbörn
Evrópu á svipaðan hátt, frekar en
Lítil skref Maríu Ólafsdóttur sem
trítluðu beint í 15. sæti seinni
undankeppninnar og komst
ekki áfram í lokakeppnina í Vín í
Austur ríki.
2017 Söngkona Svala Björgvinsdóttir kom, sá og
sigraði í keppninni með Paper, og
flutti síðan aftur heim til Íslands
og er að gera góða hluti í tónlistar
bransanum, sem hún steig fyrst
inn í sem barn. Nýliðinn Daði
Freyr Pétursson heillaði hins vegar
þjóðina með laginu Hvað með
það? Og hvað með það þótt hann
hefði farið fyrir okkar hönd til Kíev
í Úkraínu, framlag hans hefði jafn
vel skilað okkur í lokakeppnina
sem pappírinn gerði ekki.Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu hágæða
innréttingar, sérsniðnar að þínum
óskum og þörfum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Lögin sem áttu að vinna í
Söngvakeppninni
Saga Íslendinga í Eurovision hófst árið 1986 þegar
ICY hópurinn (Eiríkur Hauksson, Helga Möller og
Pálmi Gunnarsson) hélt til Bergen í Noregi með
Gleðibankann. Fá atkvæði frá Evrópu fengust þó
í bankann, aðeins 19, og endaði Ísland í 16. sæti af
20 mögulegum, sætinu sem síðar kom í ljós að yrði
þaulsetið af íslensku framlögunum.
MYNDIR: SKJÁSKOT AF RUV
Lífið er lag Norðurljós
Sóley Mig dreymir Karen
Hvað með það
Það sem verður Ég trúi á betra líf
Í síðasta skipti
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is