Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 26
Öryggi og hugbúnaður 8. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ
TÓNAFLÓÐ:
Traust, þekking, reynsla og
gamalgrónir viðskiptavinir
Tónaflóð er eitt af elstu veffyrir-tækjum landsins. Upphaflega var fyrirtækið stofnað árið 1989 og
verður því 30 ára í ár. En fyrirtækið hef-
ur tekið töluverðum stakkaskiptum síðan
það var stofnað. Ævintýrið byrjaði með
einni vefsíðu sem sett var upp í tengslum
við lög og texta Selmu Hrannar Maríu-
dóttur, annars eigenda Tónaflóðs.
Hvernig kom til að þið fóruð út í að
vinna vefsíður fyrir aðra?
„Það var árið 1996 sem ég setti upp
fyrstu heimasíðuna fyrir Tónaflóð. Þá var
ég að vinna sem rafeindavirki í Miðbæj-
arradíó og var beðin um að taka að mér
að setja upp heimasíðu fyrir fyrirtækið.
Í framhaldi fóru hin og þessi fyrirtæki
að hafa samband við mig og óska eftir
heimasíðu og áður en ég vissi af var vef-
síðugerð orðin mitt annað starf,“ segir
Selma og bætir við: „Ég hóf síðar störf
hjá Nýherja þar sem ég starfaði sem
rafeindavirki í 3 ár og svo í framhaldi hjá
Ríkisútvarpinu þar sem ég var vefstjóri
í 3 ár. Allan tímann hélt vefsíðugerðin
áfram að vinda upp á sig sem aukastarf
og kom loks að því að ég ákvað að gera
vefsíðugerðina að aðalstarfi mínu. Það
var árið 2004 og þá ákvað maðurinn
minn, Smári Valtýr Sæbjörnsson, einnig
að hætta í sínu starfi sem matreiðslu-
maður og sinna fjölskyldufyrirtækinu.
Hann sér um alla þjónustu við viðskipta-
vini og ég sé um hönnun, forritun og
tæknimál,“ segir Selma.
Hvað er það sem þið bjóðið upp á fyrir
viðskiptavini?
„Við sérhæfum okkur í WordPress
veflausnum. Við hönnum vefi af öllum
stærðum og gerðum svo sem fyrir-
tækjavefi, félagavefi, verslunarvefi,
skólavefi, fréttavefi og innri vefi. Við
hönnum útlit ýmist alveg frá grunni
eða tökum við Photoshop-skjölum frá
hönnuðum og kóðum. Við hönnum
einnig alls kyns viðbætur og yfirfærum
vefi úr nánast hvaða vefkerfi sem er,“
segir Selma.
Tónaflóð býður upp á vefhýsingu með
umsjón sem felur í sér að Tónaflóð sér
um allar uppfærslur á kerfi og viðbót-
um. „Þar leggjum við áherslu á öryggi
og uppitíma. Við bjóðum einnig upp á
leitarvélabestun og útbúum rafbækur,
QR kóða og stutt auglýsingamyndbönd.
Við tengjum verslanir við greiðslusíður
kortafyrirtækjanna og setjum upp raf-
ræna auðkenningu t.d. í gegnum island.
is,“ segir Selma.
Af umsögnum að dæma virðast
viðskiptavinir ykkar mjög ánægðir.
Hvernig náið þið að halda kúnnahópn-
um svona ánægðum?
„Ég held að traust, þekking og reynsla
vegi þar mest. Við leggjum mikla áherslu
á persónulega og lausnamiðaða þjón-
ustu og höfum gaman af því sem við
erum að gera. Við fylgjumst vel með og
erum snögg að aðlaga okkur að breytt-
um aðstæðum. Þó að mikil reynsla og
þekking hafi safnast upp í fyrirtækinu
á rúmum 20 árum í þessum bransa,
erum við sífellt að bæta við og auka
þekkinguna í formi símenntunar. Þar
sem tækninni fleygir stöðugt fram, þá
höldum við áfram að takast á við nýjar
áskoranir. Við erum með fjölmargar
lausnir í þróun sem viðskiptavinir okkar
munu njóta góðs af og við munum segja
nánar frá síðar.“
Viðskiptavinir geta gengið að okkur
vísum
„Við höfum fengið til okkar marga við-
skiptavini í gegnum árin sem hafa lent í
þeirri aðstöðu hjá öðrum vefhönnuðum
að þegar átti að fara að breyta og bæta
vefinn, þá náðist ekki í þann sem setti
hann upp. Viðkomandi var hættur og
farinn að sinna öðrum störfum eða
jafnvel fluttur erlendis án þess að
láta nokkurn vita. Okkar viðskipta-
vinir hafa margir verið með okkur
í 10 og jafnvel 20 ár og hafa alltaf
geta gengið að því vísu að ná sam-
bandi við okkur hvenær sem þörf er
á.“
Tónaflóð er stafrænt þjónustufyr-
irtæki og þjónustuskrifstofan er því
á tonaflod.is
Öll samskipti við viðskiptavini fara
fram í gegnum net og síma og það
er alltaf hægt að ná sambandi á
auglýstum afgreiðslutíma.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.tonaflod.is
Sími: 553-0401
Netfang: samskipti@tonaflod.is n