Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Síða 26
Öryggi og hugbúnaður 8. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ TÓNAFLÓÐ: Traust, þekking, reynsla og gamalgrónir viðskiptavinir Tónaflóð er eitt af elstu veffyrir-tækjum landsins. Upphaflega var fyrirtækið stofnað árið 1989 og verður því 30 ára í ár. En fyrirtækið hef- ur tekið töluverðum stakkaskiptum síðan það var stofnað. Ævintýrið byrjaði með einni vefsíðu sem sett var upp í tengslum við lög og texta Selmu Hrannar Maríu- dóttur, annars eigenda Tónaflóðs. Hvernig kom til að þið fóruð út í að vinna vefsíður fyrir aðra? „Það var árið 1996 sem ég setti upp fyrstu heimasíðuna fyrir Tónaflóð. Þá var ég að vinna sem rafeindavirki í Miðbæj- arradíó og var beðin um að taka að mér að setja upp heimasíðu fyrir fyrirtækið. Í framhaldi fóru hin og þessi fyrirtæki að hafa samband við mig og óska eftir heimasíðu og áður en ég vissi af var vef- síðugerð orðin mitt annað starf,“ segir Selma og bætir við: „Ég hóf síðar störf hjá Nýherja þar sem ég starfaði sem rafeindavirki í 3 ár og svo í framhaldi hjá Ríkisútvarpinu þar sem ég var vefstjóri í 3 ár. Allan tímann hélt vefsíðugerðin áfram að vinda upp á sig sem aukastarf og kom loks að því að ég ákvað að gera vefsíðugerðina að aðalstarfi mínu. Það var árið 2004 og þá ákvað maðurinn minn, Smári Valtýr Sæbjörnsson, einnig að hætta í sínu starfi sem matreiðslu- maður og sinna fjölskyldufyrirtækinu. Hann sér um alla þjónustu við viðskipta- vini og ég sé um hönnun, forritun og tæknimál,“ segir Selma. Hvað er það sem þið bjóðið upp á fyrir viðskiptavini? „Við sérhæfum okkur í WordPress veflausnum. Við hönnum vefi af öllum stærðum og gerðum svo sem fyrir- tækjavefi, félagavefi, verslunarvefi, skólavefi, fréttavefi og innri vefi. Við hönnum útlit ýmist alveg frá grunni eða tökum við Photoshop-skjölum frá hönnuðum og kóðum. Við hönnum einnig alls kyns viðbætur og yfirfærum vefi úr nánast hvaða vefkerfi sem er,“ segir Selma. Tónaflóð býður upp á vefhýsingu með umsjón sem felur í sér að Tónaflóð sér um allar uppfærslur á kerfi og viðbót- um. „Þar leggjum við áherslu á öryggi og uppitíma. Við bjóðum einnig upp á leitarvélabestun og útbúum rafbækur, QR kóða og stutt auglýsingamyndbönd. Við tengjum verslanir við greiðslusíður kortafyrirtækjanna og setjum upp raf- ræna auðkenningu t.d. í gegnum island. is,“ segir Selma. Af umsögnum að dæma virðast viðskiptavinir ykkar mjög ánægðir. Hvernig náið þið að halda kúnnahópn- um svona ánægðum? „Ég held að traust, þekking og reynsla vegi þar mest. Við leggjum mikla áherslu á persónulega og lausnamiðaða þjón- ustu og höfum gaman af því sem við erum að gera. Við fylgjumst vel með og erum snögg að aðlaga okkur að breytt- um aðstæðum. Þó að mikil reynsla og þekking hafi safnast upp í fyrirtækinu á rúmum 20 árum í þessum bransa, erum við sífellt að bæta við og auka þekkinguna í formi símenntunar. Þar sem tækninni fleygir stöðugt fram, þá höldum við áfram að takast á við nýjar áskoranir. Við erum með fjölmargar lausnir í þróun sem viðskiptavinir okkar munu njóta góðs af og við munum segja nánar frá síðar.“ Viðskiptavinir geta gengið að okkur vísum „Við höfum fengið til okkar marga við- skiptavini í gegnum árin sem hafa lent í þeirri aðstöðu hjá öðrum vefhönnuðum að þegar átti að fara að breyta og bæta vefinn, þá náðist ekki í þann sem setti hann upp. Viðkomandi var hættur og farinn að sinna öðrum störfum eða jafnvel fluttur erlendis án þess að láta nokkurn vita. Okkar viðskipta- vinir hafa margir verið með okkur í 10 og jafnvel 20 ár og hafa alltaf geta gengið að því vísu að ná sam- bandi við okkur hvenær sem þörf er á.“ Tónaflóð er stafrænt þjónustufyr- irtæki og þjónustuskrifstofan er því á tonaflod.is Öll samskipti við viðskiptavini fara fram í gegnum net og síma og það er alltaf hægt að ná sambandi á auglýstum afgreiðslutíma. Nánari upplýsingar má nálgast á www.tonaflod.is Sími: 553-0401 Netfang: samskipti@tonaflod.is n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.