Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Page 28
Öryggi og hugbúnaður 8. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ
ISR MATRIX:
Eru starfsmenn
þínir öruggir?
Margir starfa við krefjandi aðstæður þar sem oft geta komið upp erfið og jafnvel
hættuleg mál. ISR Matrix er al-
þjóðlegt öryggisfyrirtæki og hefur
verið í samstarfi við lögregludeildir,
fangelsi og öryggisfyrirtæki víðs
vegar um heiminn sl. 23 ár. ISR
hefur einnig þjálfað fjölda lögreglu-
manna, öryggisvarða og dyravarða
á Íslandi. ISR á Íslandi hefur einnig
verið í samstarfi við Reykjavíkur-
borg, ríkisstofnanir og einkafyrir-
tæki.
ISR á Íslandi býður upp á tvenns
konar námskeið fyrir fyrirtæki og
stofnanir sem trygg ja aukið starfs-
öryggi starfsmanna fyrirtækja og
stofnana.
ISR PM öryggiskerfi
ISR PM – er öryggiskerfi. Starfs-
menn læra að yfirbuga einstak-
linga sem eru hættulegir sjálfum
sér og öðrum. Kerfið snýst um að
aðgerðin fari fram á faglegan hátt.
Starfsmenn læra að vinna saman
og einnig er lögð mikil áhersla á
að mótaðilinn slasist ekki. Kerfið er
sem sagt fullkomlega öruggt fyrir
þann sem beitir því og þann sem er
beittur því.
ISR CLUTCH neyðarvarnarkerfi
ISR CLUTCH – er neyðarvarnar-
kerfi. Starfsmenn læra að koma
sér úr aðstæðum þar sem lífi eða
heilsu þeirra er ógnað af hættuleg-
um einstaklingi eða einstaklingum.
Starfsmenn læra því harðari tækni
sem getur skipt sköpum í erfiðari
aðstæðum.
ISR CAT neyðarvörn fyrir konur
ISR Matrix býður einnig upp nám-
skeið fyrir einstaklinga og eru þau
auglýst í hverjum mánuði inni á
vefsíðu og Facebook-síðu ISR
Matrix Iceland. Ásamt fyrrnefndu
námskeiðunum ISR PM og
CLUTCH býður ISR Matrix einnig
upp á námskeið eins og ISR CAT
– neyðarvörn fyrir konur. Hildur
María Sævarsdóttir er ein þeirra
sem hafa sótt ISR CAT námskeið
og mælir eindregið með því:
„Ég þekki enga konu sem ekki
hefur einhvern tíma haft ástæðu
til að óttast um öryggi sitt. Okkur
er kennt að vera stilltar og prúðar
sem börn og svo þegar við erum
orðnar fullorðnar heyrum við að
það sé mjög hættulegt að fara niður
í miðbæ. Og við verðum smeykar.
En við heyrum aldrei um mikilvægi
þess að konur læri að verja sig. Úti
á götu er enginn að fara að spila
eftir einhverjum reglum. Veruleikinn
getur verið grimmur og villtur og við
þurfum að vera undirbúnar fyrir
það.“
ISR Matrix er staðsett á Stór-
höfða 17 en einnig er boðið upp á
að setja upp námskeið og æfingar
inni á vinnustöðum. Þjálfarar telja
það mikilvægt að kenna starfsfólki
að bregðast við erfiðum aðstæð-
um í sínu rétta starfsumhverfi.
Frekari upplýsingar er að finna á
isrmatrix.is
Einnig er hægt að senda fyrir-
spurnir í tölvupósti á isrmatrix@
isrmatrix.is eða hringja í síma:
862-0808. n