Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 9
8. febrúar 2019 FRÉTTIR 9
Gunnar Jakobsson gekk áður
undir nafninu Roy Svanur
Shannon. Hann var fyrst kærð
ur snemma á tíunda áratugnum
fyrir að áreita barnungar stúlk
ur kynferðislega í sumarhúsi í
Húsafelli. Málið var fellt niður
en tekið upp aftur árið 1997. Þá
hlaut Roy Svanur fjögurra ára
fangelsisdóm fyrir kynferðis
brot gegn sex barnungum stúlk
um og var það þyngsti dómur
sem hafði fallið í barnaníðings
máli hérlendis á þeim tíma. Þá
var hann einnig sakfelldur fyrir
að hafa framleitt barnaklám og
að dreifa því á netinu og fyrir
vörslu á gífurlega miklu magni af
barnaklámi.
Fyrir dómi viðurkenndi hann
að vera haldinn barnagirnd og
sagði að hún hefði byrjað á ung
lingsárunum en geðlæknir mat
það svo að Roy Svanur gerði
sér ekki grein fyrir afleiðingum
gjörða sinna og virtist trúa því að
athæfi hans ylli börnunum ekki
skaða. Á meðan hann beið dóms
og var vistaður í gæsluvarðhaldi
á Akureyri varð hann uppvís að
því að vera með barnaklám í
tölvu sinni.
Eftir að hafa afplánað dóm
inn fluttist Roy Svanur til útlanda
og breytti nafni sínu í Gunn
ar Jakobsson. Bjó hann í nokk
ur ár í Danmörku og starfaði
sem au pair. Hann hélt áfram að
brjóta af sér eftir að hann fluttist
aftur heim. Hann leigði sér hús
skammt frá heimili systursonar
síns sem hafði í tæpan áratug
haft börn í fóstri.
Tilviljun réð því að árið 2012
komst upp að Gunnar hefði haft
aðgang að fósturheimilinu, þar
sem börn voru vistuð af hálfu
barnaverndaryfirvalda. Tvær
stúlkur sökuðu Gunnar um að
hafa áreitt þær og elt. Barna
vernd var látin vita af málinu en
ekkert var hægt að aðhafast þar
sem Gunnar var ekki grunaður
um afbrot.
Í janúar 2013 var Gunnar
kærður fyrir að vera með 48.212
ljósmyndir og 484 myndskeið af
barnaklámi í sínum fórum. Með
al efnis sem fannst voru mynd
ir af nöktum íslenskum börnum
sem grunur lék á að Gunnar
hefði sótt og vistað af myndasíð
um foreldra á barnaland.is. Mál
ið dróst vegna manneklu hjá yfir
völdum og fékk hann að lokum
skilorðsbundinn dóm fyrir brot
in. Sama ár var hann úrskurð
aður í gæsluvarðhald, grunaður
um að hafa brotið gegn þremur
börnum. Ákæra var þó aldrei gef
in út í málinu þar sem það þótti
ekki líklegt til sakfellingar.
Það vakti mikla athygli þegar
blaðamaður og ljósmyndari DV
fóru heim til Gunnars í apríl
2017, og lýstu þar viðbjóðsleg
um aðstæðum sem við blöstu.
Gunnar var þá búsettur í gömlu
niðurníddu húsi á Stokkseyri.
Fram kom að honum væri
meinað að fara í sund á Selfossi
og á Stokkseyri og færi því í sund
í Reykjavík.
Einnig kom fram að Gunnar
hefði um árabil lifað tvöföldu
lífi í netheimum undir dulnefni
sem ráðagóð eldri kona á spjall
borðum Barnalands sem síðar
varð er.is og nú Bland. Í viðtalinu
sagði Gunnar meðal annars að
hann girntist stúlkur á aldrinum
þriggja til ellefu ára, væri haldinn
ólæknandi barnagirnd og hefði
safnað hári og skeggi til að geta
farið óáreittur í sund á höfuð
borgarsvæðinu þar sem hann,
að eigin sögn, virti fyrir sér ungar
stúlkur.
ÞETTA ERU ALRÆMDUSTU BARNANÍÐINGAR ÍSLANDS
n Fórnarlömbin skipta hundruðum n Lítil sem engin úrræði í boði fyrir síbrotamenn sem níðast á börnum n Eiga í engin hús að venda
Steingrímur Njálsson er á efa
einn alræmdasti og mest hataði
barnaníðingur Íslandssögunn
ar. Hann hlaut samtals sjö sinn
um dóm fyrir kynferðisbrot
gegn ungum drengjum og eru
fórnarlömb hans sextán talsins,
sem vitað er um.
Sakaferill Steingríms nær
aftur til sjöunda áratugar sein
ustu aldar, en árið 1963 var
hann dæmdur fyrir kynferðis
lega misnotkun á tveimur ellefu
ára piltum. Steingrímur var þá
21 árs gamall. Næst var hann
kærður árið 1977 fyrir að brjóta
gegn níu ára dreng og ári síðar
hlaut hann dóm fyrir að ráðast á
tólf ára pilt. Fyrir þessi tvö brot
hlaut hann tveggja ára fangels
isdóm.
Árið 1986 var Steingrímur
kærður fyrir að hafa árið áður
lokkað þrettán ára blaðburðar
pilt inn í íbúð sína, þar em hann
hélt houm föngnum og braut á
honum ítrekað, klukkustundum
saman. DV greindi frá málinu í
október 1986 það ár og birti þá
mynd af Steingrími undir fyrir
sögninni „Svona lítur hann út.“
Fram kom að lögmaður foreldra
blaðburðarpiltsins hefði mælst
til þess að Steingrímur yrði lát
inn gangast undir afkynjunar
aðgerð vegna „kynferðislegs
óeðlis.“
Árið 1988 dæmdi Hæsti
réttur Steingrím til níu mánaða
fangelsisvistar og að henni lok
inni til fimmtán mánaða með
ferðar á viðeigandi stofnun en
sú meðferð fór fram í Svíþjóð.
Steingrímur átti eftir að brjóta af
sér aftur og hljóta tólf mánaða
fangelsisdóm fyrir kynferðis
brot gegn ungum dreng í íbúð í
Norðurmýri.
Gerði ákæruvaldið þá kröfu
að eftir afplánun dómsins yrði
Steingrími gert að sæta sér
stakri gæslu þar sem hann væri
„hættulegur vanaafbrotamað
ur.“
Árið 2002 var fjallað ítarlega
um brotaferil Steingríms í sjón
varpsþættinum Sönn íslensk
sakamál. Þegar rætt við Stein
grím afneitaði hann brotunum
blákalt og sagði að um tóma
þvælu og vitleysu væri að ræða.
Úrræðaleysi kerfisins gagn
vart sjúkum síbrotamönnum
var tilefni fréttaskýringar DV í
desember 2004. Á þeim tíma
hafði Steingrímur ekki átt í
nein hús að venda í nokkur ár,
en reglulega bárust fréttir þess
efnis að hann væri sestur að í
hinum og þessum bæjarfélög
um. Hann var ítrekað hrakinn í
burtu hvar sem hann kom, sat
undir stöðugum ofsóknum og
var margoft barinn til óbóta auk
þess sem reynt var að kveikja í
híbýlum hans.
Steingrímur lést úr krabba
meini árið 2013 og fór útför
hans fram í kyrrþey.
Sigurður Ingi Þórðarson var í sept
ember 2015 dæmdur í þriggja ára
fangelsi fyrir að hafa brotið kyn
ferðislega gegn níu piltum. Brot
in áttu sér stað á árunum 2010 til
2013 og voru alls sjötíu talsins.
Hann hafði áður hlotið átta
mánaða óskilorðsbundinn fang
elsisdóm í febrúar 2014 fyrir að
tæla sautján ára dreng til kynferð
ismaka með blekkingum. Afplán
un Sigurðar lauk þann 2. nóvem
ber það ár, en eftir það sat hann í
gæsluvarðhaldi.
Sigurður Ingi hlaut á sínum
tíma viðurnefnið Siggi hakkari
eftir að hafa komist í kastljós fjöl
miðla vegna tengsla við Wikileaks
og verið sakaður um þjófnað frá
samtökunum.
Sigurður hafði samskipti við
drengina á netinu og lofaði þeim
peningagreiðslum og margs kon
ar vörum, til dæmis símtækjum,
tölvum, bifreiðum og jafnvel fast
eignum, í skiptum fyrir munn og
endaþarmsmök. Þá lofaði hann
því að hann gæti lagfært námsfer
il sumra drengjanna með tölvu
kunnáttu sinni. Flestir piltanna
voru á aldrinum fimmtán til sext
án ára þegar brotin áttu sér stað.
Fleiri drengir kærðu Sigurð en
ekki rötuðu fleiri mál fyrir dóm
stóla.
Í niðurstöðum geðrannsóknar
á Sigurði, sem kom fram í gæslu
varðhaldsúrskurði undir lok árs
2014, kom fram að hann væri
„siðblindur“ og að „vandi hans
fælist í hömluleysi og erfiðleikum
við að fresta fullnægingu hvata.
Þá iðrist hann ekki gjörða sinna
og geti ekki sýnt merki um djúpa
sektarkennd.“
Í ágúst 2016 bárust fregnir af
því að Sigurður væri laus úr fang
elsi og birti DV mynd sem náðist
af Sigurði á bílaþvottastöð. Fram
kom að Sigurður afplánaði eftir
stöðvar dómsins undir rafrænu
eftirliti og væri einnig að sinna
samfélagsþjónustu hjá Rauða
krossinum. Í kjölfarið kom fram
í Stundinni að foreldrar barna
í Salaskóla væru ósáttir við að
Sigurður stundaði sundlaugar
í Kópavogsbæ í frítíma sínum.
Honum var í kjölfarið meinaður
aðgangur að lauginni.
DV greindi í fyrra frá því að
Sigurður væri framkvæmdastjóri
fyrirtækis á Reykjavíkurflugvelli
og hefðist þar við í flugskýli. Síð
an hefur fyrirtækið verð tekið til
gjaldþrotaskipta.
Greindur siðblindur
Gekk undir dulnefni
á Barnalandi Mest hataði maður Íslands
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Gunnar Jakobsson safnaði hári og skeggi til að geta farið óáreittur í sund í Reykjavík