Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Síða 18
18 8. febrúar 2019FRÉTTIR - EYJAN Í vikunni kom fram að ríkisstjórn Íslands styður þá ákvörðun Trumps Bandaríkjaforseta að skipta um ríkisstjórn í Venes­ úela, það sem á ensku er kallað „regime change“ og var áður gert í Írak og Líbíu og reynt í Sýrlandi en án árangurs þar ef frátaldar eru af­ leiðingarnar. En varla flokkast þær undir árangur, öllu heldur ólýsan­ legar hörmungar. Innrás sögð koma til greina í Venesúela Trump hefur lýst því yfir að „all­ ar aðferðir“ komi til greina við að koma á stjórnarskiptum í Vene­ súela, „all options are possible“, þar með talin hernaðarinnrás. Sá sem hafði þetta eftir forsetanum var öryggismálafulltrúi hans, John Bolton, á fréttamannafundi í vik­ unni. Það var áður en Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra kvað upp úr með að ríkisstjórn Ís­ lands styddi Juan Guaidó, þann mann sem Bandaríkjastjórn vill að heimurinn viðurkenni sem for­ seta í Venesúela, í stað Nicolásar Madúró sem kjörinn var í almenn­ um forsetakosningum í landinu. Ábyrgðin liggur í Washington Bandaríkjastjórn segir ástandið skelfilegt í þessu olíuríka landi, þar ríki efnahagslegt og pólitískt öngþveiti enda hafi forsetakosn­ ingarnar ekki verið heiðarlegar. Undir það skal tekið að fréttum ber saman um að ástandið í Venesúela sé skelfilegt en ekki væri úr vegi að gera þá jafnframt grein fyrir orsökunum, efnahags­ þvingunum um árabil að undirlagi Bandaríkjanna og jafnframt mark­ vissum undirróðri og spellvirkjum undan þeirra rifjum runnin. Öngþveitinu hefur með öðrum orðum verið handstýrt frá Wash­ ington. Fjölmörg ríki í heiminum taka þátt í þessu sjónarspili eins og fyrri daginn. Þar ber fyrst að nefna flest NATÓ­ríkin, þó ekki Noreg, Ítalíu og Grikkland en Spánn er þarna með, nýbú­ inn að fangelsa fólk sem hefur unnið sér það til óhelgi að vilja lýðræðislega lausn á deilunni um sjálfstjórn Katalóníu! Það hefur ekki komið í veg fyrir fordæmingu frá Madrid og hástemmt tal þar um grunn­ gildi lýðræðissamfélagsins. Leiðsögumenn Íslands Óhugnanlegt er að horfa til leið­ sögumanns okkar, það er að segja sem erum fylgifiskar Bandaríkj­ anna, á þessari vegferð. Hann heitir John Bolton og er annálaður fauti í alþjóðasamskiptum. John Bolton hefur alla tíð talað fyrir íhlutun í þágu bandarískra hags­ muna og aldrei farið í felur með þau sjónarmið sín að allt eigi að víkja fyrir þeim hagsmunum. Var hann einn af stofnendum hinna illræmdu samtaka American First Century, undir aldarlokin, ásamt þeim Bush­bræðrum, Dick Chen­ ey, Paul Wolfowitch og Donald Rumsfeld, svo nokkur þekktustu nöfnin séu nefnd. Því miður hefur slóðum American First Century verið lokað en í kringum alda­ mótin vísuðu þessar slóðir inn í sálarlíf aðstandenda samtakanna. Ég litaðist þarna allvel um á þess­ um tíma. Ást á lýðræði var þar vandfundin og réttlætið á þess­ um bæ tók mið af því hver hélt um gikkinn hverju sinni. Feimni í stuðningsliðinu Sum ríki eru ofurlítið feimin við fylgispekt sína við þá Trump og Bolton og segja að þótt þau styðji Juan Guaidó, forsetann sem er þeim kumpánum þóknanlegur, þá sé þetta náttúrlega allt fyrir lýð­ ræðið gert og nú ríði á að fá kosn­ ingar í Venesúela. En trúir því nokkur maður að þessi aðferða­ fræði sé til þess fallin að búa lýð­ ræðislegum kosningum góðan jarðveg? Er þetta ekki formúlan að enn meiri ringulreið og upplausn eða þá hertri valdstjórn og gildi þá einu hvorum megin valdataum­ arnir liggi? Nákvæmlega þetta segja nú um sjötíu nafntogaðir einstaklingar, með bandaríska prófessorinn og mannréttindafrömuðinn Noam Chomsky í broddi fylkingar. Hvatt til að bera klæði á vopnin Þessir einstaklingar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem hvatt er til samningaviðræðna innanlands og jafnframt að erlend ríki reyni ekki að hlutast til með þeim hætti sem nú er að gerast. Þeir vara við því að skerpa andstæður umfram það sem þegar er. Washington hafi beinlínis komið í veg fyrir sáttatil­ raunir, m.a. á vegum Vatíkansins haustið 2016. Þá hafi verið reynt að fá stríðandi öfl í Venesúela til að setjast að samningaborði en Bandaríkin brugðið þar fæti fyrir. Ekki megi horfa fram hjá því að þjóðin sé skipt í andstæðar fylk­ ingar, forsetaskipti breyti því ekki, verkefnið sé að sætta en ekki æsa til átaka. Sjötíumenningarnir spyrja hvort virkilega engir lærdómar hafi verið dregnir af Írak, Sýrlandi og Líbíu, hvað þá af áratugalangri íhlutun Bandaríkjamanna í mál­ efnum ríkja rómönsku Ameríku með herfilegum afleiðingum. Fjölmiðlar nudda stírur úr augum En margt er skrítið í kýrhausnum. Dæmi: Á Vesturlöndum vildi enginn vita af ódæðisverkum Saddams Husseins í Írak fyrr en hann hafði verið skilgreindur sem andstæðingur. Það var eftir að Íran­Írak stríðinu lauk en í því stríði var Saddam Hussein „góði gæinn.“ En nú þótti ástæða til að rifja upp hryllilegar eiturefnaárásir og ofsóknir á hendur Kúrdum á ní­ unda áratugnum. Enginn minnist nú á Líbíu, svo annað dæmi sé tek­ ið um breytilega réttlætiskennd, þótt ástandið hafi aldrei verið verra þar en nú, eða skyldu menn vera búnir að gleyma fréttaflutningn­ um 2011 til að réttlæta árásir NATÓ og valdhafaskiptin í því landi? Nú þarf að koma Madúró frá í Venesú­ ela og viti menn, þá er það sem við manninn mælt að meginstraums­ fjölmiðlarnir í NATÓ­ríkjum vakna til lífsins og byrja að mæra hina réttlátu og úthúða hinum ranglátu – allt samkvæmt forskrift þeirra sem hafa tögl og hagldir í valda­ kerfi heimsins. Sýn okkar á heiminn Og til að ljúka þessu alvarlega máli á nótu sem að vísu er ekki gam­ ansöm, en alla vega skondin: Í Bandaríkjunum fer nú fram rann­ sókn á því hvort Rússar hafi mögu­ lega haft einhver afskipti af síðustu forsetakosningum þar í landi með tölvuklækjum. Ef svo væri, er okkur sagt, hlyti heimurinn að líta á það sem alvar­ lega íhlutun í innri málefni banda­ rísku þjóðarinnar. Ég trúi ekki öðru en allir komi auga á kaldhæðnina í þessu, og líka hitt, hvað gerist ef sýn okkar á heiminn mótast af því einu sem borgar sig að sjá. n Ögmundur Jónasson Fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. AÐ LAGA VERULEIKANN AÐ EIGIN HAGSMUNUM„ Trúir því nokkur maður að þessi aðferðafræði sé til þess fallin að búa lýðræðisleg- um kosningum góðan jarðveg? LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM Greiðslulausnir tengdar helstu afgreiðslukerfum Allir posar frá Verifone taka við snertilausum greiðslum með farsímum Sjálfstandandi greiðslulausnir og handfrjálsir posar Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060 Juan Guaidó Studdur af ríkisstjórn Íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.