Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Síða 24
24 MATUR 8. febrúar 2019
É
g er alveg temmilega holl í
lífsháttum og mataræði en
svo missi ég allt gjörsam-
lega niðrum mig þess á milli
og fer í sukkið. Það er alveg dá-
samlega ófullkomlega fullkomið,“
segir söngkonan Hera Björk Þór-
hallsdóttir. Hera stígur á sviðið í
Háskólabíói næsta laugardag og
flytur lagið Eitt andartak í fyrri
undankeppni Söngvakeppninn-
ar.
Næturdrottning sem er ekki
fullkomin
Hera er mikill reynslubolti og var
fulltrúi Íslands í Eurovision árið
2010 með lagið Je Ne Sais Quoi.
Hún segist alltaf undir-
búa sig á sama hátt fyrir
viðburði, hvort sem um er
að ræða stórviðburði eins
og Eurovision eða minni
skemmtanir.
„Ég passa mikið upp
á svefninn. Ég er svolítil
nætur drottning. Ég hugsa
mikið og græja og geri seint
á kvöldin, sérstaklega þegar ég
er í skemmtilegum verkefnum.
Svefninn er númer eitt, tvö og
tíu. Ef ég sef ekki, þá kemur það
strax niður á röddinni. Maður
verður rámur vegna þreytu og
það er ekki gott að fara inn í
daginn í því ástandi og eiga
jafnvel eftir að syngja lagið
oft og æfa það,“ segir hún
og heldur áfram.
„Ég drekk eins mikið
vatn og ég get. Svo er
ég mjög einbeitt þegar
kemur að vítamín-
skammtinum. Ég
tek mikið af D- og
C-vítamíni, B12 og
Krill-olíu,“ segir
Hera og sest við
eldhúsborðið
til að taka til vítamínskammtinn.
„Ég reyni að passa að allar
varnir líkamans séu vel nærðar
og undirbúnar fyrir þetta. Þessi
keppni er sérstaklega mikil orku-
suga. Ekki bara keppniskvöldið,
því áreitið er stöðugt. Til dæm-
is þegar maður er í Hagkaupum
og fólk vill stoppa og spjalla við
mann eða þegar maður þarf að
opna sig í fjölmiðlum,“ segir hún
og hlær. „Maður þarf að gera alls
kyns hluti sem maður er ekki van-
ur að gera dagsdaglega og þetta
eru allt hlutir sem taka orku. Það
fyrsta sem lætur á sér kræla í
slíkum aðstæð-
um er kvef, ef
maður passar sig ekki. Ég er hok-
in af reynslu, sem er ótrúlega
gott. Ég er 46 ára og búin að vera
í bransanum í þrjátíu ár. Það er
ég sem þarf að stjórna og ég þarf
að vera öguð þegar kemur að
vítamínum, vatni og svefni. Það
tekst ekkert alltaf. Stundum get ég
ekki sofið eða hleyp út og gleymi
vítamínunum. Sem betur fer er
Hera ekki fullkomin.“
Rosalega dýr kæfa með betra
drasli í
Eins og margir vita hefur Hera
unnið mikið í sér sjálfri síðustu
misseri og geislar af heilbrigði í
dag. Stór hluti af því eru breyttar
matarvenjur söngdívunnar.
„Það sem kom mér í bobba á
sínum tíma og gerði það að verk-
um að ég þyngdist og
þyngdist og þyngd-
ist var að ég borð-
aði nánast ekkert
yfir daginn og
settist síðan við
át á kvöldin,“ seg-
ir Hera. „Nú reyni
ég að hlusta á
hvað líkaminn vill.
Ég fókusa
mikið á
próteininntöku, til dæmis. Ég
borða skyr og er mikill aðdá-
andi laktósafrírrar Hleðslu. Hún
minnir á kókómjólk og mér líður
eins og litlum krakka þegar ég
drekk hana. Að auki er hún það
sem ég gríp í bílnum þegar ég
annars myndi fá mér eitthvert
drasl. Stundum fæ ég mér líka
gróft rúgbrauð með hnausþykku
lagi af einhverri góðri kæfu. Það
er mjög orkugefandi þegar mað-
ur er á hlaupum. Annars reyni ég
að sneiða framhjá mikið unninni
kjötvöru, en kæfan verður að vera
með. Þá læt ég eftir mér rosalega
dýra kæfu sem er með betra drasli
í,“ segir hún og hlær dátt.
„Ég kvelst af þessu avókadó-
óvirðingarlandi hér“
Hera er mikið fyrir ávexti og græn-
meti, en það er einn ávöxtur sem
hún er sérstaklega sólgin í.
„Hæ, ég heiti Hera og er
avókadóisti,“ segir hún og brosir.
„Ef það er avókadó í matnum verð
ég vandræðalega spennt.“
Söngkonan er þar af leiðandi
ekki laus við þau vonbrigði sem
fylgja því að kaupa sér græna
lárperugullið í matvöruverslun-
um til þess eins að opna það og
sjá brúnt og slepjulegt avókadó
blasa við.
„Ég missi stundum kúlið í
grænmetisborðum í verslunum
þjóðarinnar. Ég nefnilega lenti í
því að búa í Síle þar sem avókadó
er ræktað og framleitt. Þú opnar
ekki avókadó þar nema það sé
fullkomið. Það er bara þannig.
Að koma síðan heim með þenn-
an brjálæðislega háa standard á
avókadó og sjá það sem er verið
að bjóða okkur upp á; „It breaks
my heart“ og ég missi kúlið æ ofan
í æ. Ég byrja alveg að ranta yfir
avókadó-úrvalinu og tek Indriða
á þetta. Til að borða eitt avókadó
kaupi ég átta stykki til að vera ör-
ugg. Svo fara sjö þeirra í þeyting
þótt þau séu á grafarbakkanum –
sem þau eru sorglega oft. Ég kvelst
af þessu avókadó-óvirðingar-
landi hér. Þetta getur ekki gengið
svona,“ segir Hera og hlær. Það
kemur því lítið á óvart hvað hún
ætlar að hafa baksviðs að maula á
í Söngvakeppninni.
„Eitt sem verður að koma hér
fram eru avókadó-frönskurnar á
Sushi Social. Jesús minn – hvað er
það?! Það er geðveikt! Ég tek hatt-
inn ofan af fyrir þeim einstaklingi
sem ákvað að henda avókadó í
djúpsteikingarpott og sjá hvað
myndi gerast. Þetta er mín sak-
bitna sæla. Ég hugsa að ég taki
með mér einn slíkan skammt og
hafi hann kláran ef ég skyldi kom-
ast áfram. Þá fæ ég mér avókadó-
franskar.“
Skammdegishuggun
Þótt Hera hugsi vel um hvað hún
lætur ofan í sig viðurkennir hún
fúslega sína veikleika þegar kem-
ur að mataræði.
„Ég hlaut ekki framheilaskaða
þegar ég grenntist. Ég þarf enn þá
á vissu magni af sykri og kolvetni
að halda. Ég komst að því þegar
ég fór að stúdera mataræði að ég
þarf víst góðan slurk af kolvetnum
yfir daginn, bara svo heilinn geti
unnið. Það gladdi mitt litla hjarta
að ég gat enn þá borðað ristað
brauð með smjöri og osti og heitt
kakó með. Það er uppáhalds-
maturinn minn í öllum heimin-
um. Það er eins konar skamm-
degishuggun. Og núna langar
mig í svona fyrst ég tala svona
mikið um það,“ segir hún og bros-
ir kankvís.
Aldurinn gerir mann óhræddari
Kæfa, ristað brauð með smjöri og
osti, heitt kakó. Uppáhaldsmatur
söngkonunnar minnir um margt
á eftirlæti margra úr barnæsku.
„Já, það er rétt,“ segir hún og
hlær. „Mér var sagt að maður
gangi aftur í barndóm um fimm-
tugt. Ég stefni hraðbyri þangað.
Ég farin að læra að meta soðna
ýsu, sem ég leit ekki við áður.
Ég fussaði yfir henni í mörg ár.
Í dag finnst mér allur matur-
inn hennar mömmu geggjaður.
Þegar mamma hóar, hlaupa allir
ungarnir af stað – af því að allir
ungarnir eru komnir yfir fertugt,“
segir Hera og bætir við að það sé
ekki aðeins mataræðið sem er
innblásið af æskuárunum.
„Það er þetta temmilega kæru-
leysi gagnvart lífinu þegar maður
eldist. Maður verður opnari fyrir
fólki. Óhræddari við að elska og
knúsa og segja hvað manni finnst.
Börn eru þar. Þau eru rosalega
einlæg og opin. Ég er að upplifa
það vel að tileinka mér þá kosti,
frekar en að fara í fuss og svei.
Maður fattar líka um hvað lífið
snýst. Það snýst bara um þess-
ar grunnþarfir og hafa þær góðar
– fá nægan svefn, halda heilsu
og nærast. Síðan koma öryggis-
þarfirnar inn í það – að hafa þak
yfir höfuðið, fólkið sitt í kringum
sig, eiga rúm til að sofa í og góða
vini. Það er hvergi minnst á að
maður þurfi að eiga dýran bíl og
fullt af flottum hlutum. Það kem-
ur tímabil í lífinu þar sem maður
heldur að það sé málið – að mað-
ur hreyfir sig eftir hópnum og sýn-
ir af sér hjarðhegðun. Hjarðhegð-
un er það sem stýrir samfélaginu
og sú hætta fyrir hendi að maður
endi í hjörðinni að eilífu. Ég gerði
það eins og allir aðrir, en síðan
sá ég að ég nennti ekki að hanga
í hjörðinni. Þá skildi ég mig frá
henni og sá að það eru alls konar
möguleikar þarna úti.“
Valkosturinn ég í góðu partíi
Nú eru aðeins nokkrir klukku-
tímar þar til Hera stígur á sviðið
í Háskólabíói. Hún er hins vegar
pollróleg og vel undirbúin, sefur
til 10 alla morgna og segir að
reynslan hjálpi henni tvímæla-
laust að takast á við þetta verkefni.
En hvað eigum við eftir að sjá frá
Heru á stóra sviðinu?
„Þið eruð að fara að sjá mig. Nú
nenni ég ekki að þykjast lengur.
Við ætlum að mæta, við Herurnar,
á svið og syngja um okkar sam-
band í gegnum árin og hvernig
við erum búnar að komast að
samkomulagi um að taka frí frá
hvor annarri þegar önnur okkar
þarf á því að halda. Þetta er það
sem ég er búin að vera að vinna í
undanfarin ár – þetta innra sam-
band sem maður á við sjálfan sig
og stjórnar manni þegar maður
tekur ákvörðun. Maður lætur
stjórnast af sinni eigin neikvæðu
rödd og hlustar á sína ljótu og
niðurbrjótandi raddir. Það myndi
enginn vinur, eða jafnvel ókunn-
ugur, segja hluti við mann sem
maður segir við sjálfan sig,“ segir
Hera og heldur áfram. „Við ætlum
að syngja af okkur rassgatið – það
er það sem við gerum best. Ég er í
raun að gera það sem ég trúi að sé
það sem ég eigi að gera fyrir mig.
Það er svolítið það sem ég er að
bjóða þjóðinni – valkostinn mig í
þessu góða partíi.“ n
„Ég hlaut ekki framheilaskaða þegar ég grenntist“
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Hera Björk tekur þátt í Söngvakeppninni
Mikil sjálfsvinna þýddi breyttar matarvenjur
Hera Fulltrúi Íslands í Eurovision
árið 2010 og stóð sig með prýði.
Líður vel í eigin skinni Hera
hefur unnið mikið í sjálfri sér.
Ráin er alhliða veitingahús
í hjarta Reykjanesbæjar
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTEFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR