Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 34
34 FÓKUS - VIÐTAL 8. febrúar 2019
J
óna Kristín Sigurðardótt-
ir er kona á góðum stað í líf-
inu. Hún er 51 árs gömul, í
fínu formi og lítur út fyrir að
vera yngri. Hún er hamingjusam-
lega gift, á börn og barnabörn og
er afskaplega ánægð í starfi. En
ævi Jónu hefur verið grýtt braut,
vörðuð ýmsum áföllum og baráttu
við fíkn í áfengi og mat. Áþreifan-
legasta breytingin á Jónu er sú að
fyrir um þremur til fjórum árum
var hún mjög þéttvaxin en tókst
að losa sig við um 30 kíló á einu ári
og hefur viðhaldið þeim árangri.
Á bak við þann sigur er nokkuð
flóknari saga, í henni er til dæmis
sá kafli að löngu áður en Jóna fitn-
aði stríddi hún við alvarlega áráttu
sem leiddi til þess að hún fór í
megrun þó að hún væri tággrönn.
Áfengisneysla hennar olli henni
mikilli vanlíðan en eftir að hún tók
áfengi út úr lífi sínu hefur sykur
verið hennar skæðasta fíkniefni,
fæða sem hún verður að mestu að
láta eiga sig.
Jóna er fædd í ágúst árið
1967 og býr á Djúpavogi. Á þeim
slóðum er hún fædd og uppalin og
hefur búið þar alla ævi. Jóna á tvo
syni og samtals sex barnabörn ef
talinn er með drengur sem fæddist
andvana í haust. Jóna starfar við
gæðamat í eldislaxi og saltfiski hjá
fiskeldisfyrirtækinu Búlandstindi.
Fór 48 kílóa þung í megrun
Eins og fyrr segir liggur rótin að of-
þyngdarvanda Jónu aftur til þess
tíma þegar hún var mjög grönn
en var ósátt við líkama sinn og
taldi sig vera feita. Má segja að
löngu áður en matarfíknin kom til
sögunnar hafi Jóna þjáðst af megr-
unarfíkn. Samhliða því leitaði hún
mjög ung í áfengi. „Ég er 171 senti-
metri á hæð og þegar ég var 48 kíló
fannst mér ég vera allt of feit og
var stöðugt í megrun. Í kringum
fimmtán ára aldurinn fór ég svo
líka að sækja í áfengi og notaði það
til að líða betur á sálinni.“
Jóna sagði skilið við áfengi í
12 ár eftir að hafa veikst hastar-
lega eftir þorrablót. En þráhyggja
varðandi vaxtarlag og mat hélt
áfram að ásækja hana og tók á
sig nýjar myndir. „Ég átti tíu ára
langt átröskunartímabil þar sem
ég borðaði yfir mig, setti síðan
fingurinn í kokið og skilaði fæð-
unni aftur. Þannig byrjaði það, en
fljótlega þróaðist það þannig að
alltaf 15–20 mínútum eftir mál-
tíð þurfti ég að æla matnum án
þess að ég framkallaði uppköstin.
Það var afar erfitt að komast út úr
þessu en tókst að lokum með fag-
legri hjálp. Átröskun er ástand sem
setur hausinn gjörsamlega á hvolf
og fyllir mann ranghugmyndum,
ofsakvíða og hræðslu. Ég varð
hrædd við allt og miklaði allt fyrir
mér.“
Eftir að Jóna hafði sigrast á
átröskuninni tók við tímabil
hinnar eiginlegu matarfíknar og
þyngdaraukningar. Var hún um
32–33 ára þegar þetta vandamál
kom til sögunnar. Jóna, sem er
eins og fyrr segir 171 sentimetri á
hæð, varð þyngst um 110 kíló, en
er í dag 82 kíló.
Jóna segir að sykur hafi verið
hennar helsti óvinur þegar hún
var feit: „Sykurinn er fíkniefni rétt
eins og áfengi og ég var alltaf að
leita eftir einhverju rosalega sætu
til að slá á vanlíðan. Nammipoki
sem ætti að endast í heila viku
var kláraður á fimm mínútum. Ég
höndlaði engan veginn umgengni
við sykur, ekki frekar en við áfengi.“
Áföll og fíkn
Jóna hneigist að þeirri skoðun að
áföll geti ýtt undir fíknir en ýmis
áföll sem hún hefur orðið fyrir á
lífsleiðinni hafa gert baráttuna við
matarfíkn erfiðari.
Megrunarþráhyggja og löngun
í áfengi voru fyrirferðarmikil
ERTU MEÐ VERKI Í BAKI, MJÖÐMUM,
HNJÁM EÐA FÓTUM ?
Komdu í göngugreiningu!
Tímapantanir í síma 55 77 100
og á www.gongugreining.is
Bæjarlind 4, Kóp. & Orkuhúsinu Rvk.
Sigraðist
á matarfíkn
og alkóhólisma
n Risaskammtur af áföllum í lífinu
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is