Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Page 37
FÓKUS 378. febrúar 2019
Við erum
í þínu
hverf i Bíldshöfði 9
Smáratorg 1
Helluhraun 16-18
Fiskislóð 1
Verstu lög Söngvakeppninnar
Söngvakeppni Sjónvarpsins á sér sögu sem nær
aftur til ársins 1986. Á hverju ári eru ótal lög send
inn og misgóð. Ætla mætti að sía Ríkissjónvarpsins
myndi forða þjóðinni frá að verða vitni að mesta
harmleiknum. En stundum bilar sían og afleiðingin er
þessi. Hér eru nokkur af verstu lögum sem tekið hafa
þátt í keppninni.
Eurovision-æðið var mikið árið 1988 enda aðeins þriðja keppnin.
Sigurvegarar það árið voru Stefán Hilmarsson og Sverrir Stormsker
með lagið Sókrates. Í sjötta sæti endaði lag sem átti eftir að verða al-
ræmt fyrir hallærislegheit. Það er Sólarsamba sem Magnús Kjartans-
son samdi og flutti ásamt dóttur sinni, Margréti Gauju, sem var þá á
tólfta ári.
„Halló! Komið öll á fætur,“ er innkoma sem slær mann eins og
kaldur og blautur þvottapoki í andlitið. Dansinn, búningarnir, sól-
gleraugun … gítarinn.
Lagið má hins vegar eiga það að skilja meira en kjánahroll eftir
sig. Nýyrðið bongóblíða varð til í texta Magnúsar og hefur verið mik-
ið notað allar götur síðan.
Enginn veit nákvæmlega hvað fór fram á þeim
fundi þegar samþykkt var að leyfa hópnum Eró-
bikkjunni að fremja lagið Hopp-abla-ha í sjón-
varpi allra landsmanna. Lagið var samið af Ómari
Ragnarssyni og átti vitanlega að vera einhvers kon-
ar flipp. En þetta flipp skilaði sér í litlu öðru en
niðurlægingu fyrir alla sem þátt tóku.
Í hópnum voru Ruth Reginalds, leikkon-
an Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Skúli Gautason
úr Sniglabandinu og Ómar sjálfur. Átti lagið að
fanga eróbikk-æðið sem gekk yfir heimsbyggðina
og Ísland líka.
„Vinstri, hægri, vinstri og hopp. Hægri, vinstri,
hægri og hopp. Hopp abla ha. Hopp abla ha!“ Þetta
er lag sem getur hæglega valdið heilaskemmdum.
Eldgos vakti athygli í Söngvakeppninni árið 2011
og sannaði þar með að ekki er öll athygli góð.
Lagið var samið af Matthíasi Stefánssyni og flutt
af nafna hans Matthíassyni og Erlu Björgu Kára-
dóttur.
Lagið var þjóðlegt rokklag með vísun í eld-
gosið mikla í Eyjafjallajökli. Fengu áhorfendur
vægt sjokk við að sjá pattaralegt goth útlitið
á Matthíasi. Síðan enn meira þegar kafli Erlu
Bjargar datt inn enda virtist hún ekki vera að
syngja sama lag og hann. Að lokum góluðu þau
saman líkt og tvær gaupur í slag.
Eldgos hefur sennilega verið mun betri hug-
mynd á pappír en í framkvæmd.
Meiri vinna var auðsjáanlega lögð í sviðs-
myndina en lagasmíðina sjálfa í laginu Fátæk-
ur námsmaður. Það var samið og flutt af Ingólfi
Þórarinssyni, Ingó veðurguð, í keppninni árið
2016.
Lagið sjálft er flatt og metnaðarlaust ömmu-
griparokk með engum broddi og misheppn-
uðu gríni. Innblásturinn hefur sennilega
verið fenginn úr barnaleikritinu um Fíusól,
en Ingó samdi einmitt tónlistina fyrir það.
Fátækur námsmaður komst blessunarlega
ekki einu sinni upp úr undanriðlinum.
Mikil spenna ríkti fyrir atriði Áttunnar í Söngva-
keppninni árið 2018 enda var bandið það heitasta
hjá æskunni. Lagið var hins vegar svo mikil von-
brigði að yngsta kynslóðin reyndi ekki einu sinni
að afsaka það.
Söngurinn var í höndum Egils Ploder Ottós-
sonar og Sonju Rutar Valdin. Framan af var lagið
flatt og einsleitt. Bros þeirra svo stjörf og þvinguð
að óþægilegt var að horfa á. Undir lokin tóku
við sólókaflar sem þau réðu engan vegin við.
Óp Tarzans apabróður kemur upp í hugann.
Af óútskýrðum ástæðum komst lagið upp úr
undanriðlinum en hafnaði á botninum í aðal-
keppninni.
Árið 2008 var viðburðaríkt á Íslandi. Þá hrundu bankarnir með braki
og brestum og fólk þusti út á götur til að bylta kerfinu. Fyrr á því ári
sendi Barði Jóhannsson lagið Ho Ho Ho We Say Hey Hey Hey inn í
Söngvakeppni Sjónvarpsins. Ekki er loku fyrir það skotið að þessir at-
burðir tengist á einhvern hátt.
Flytjandinn var hljómsveitin Merzedes Club sem gaf út fleiri
lög á árinu en lognaðist svo út af eftir það. Þar voru innanborðs
Gillzenegger, Gaz-man og Partí-Hanz. Einnig pönkarinn Ceres 4 og
söngkona að nafni Rebekka.
Lagið var heiladautt heimsendareif sem virtist einhvers kon-
ar afsökun til að sýna brúna og stælta karlmannskroppa. Liðs-
menn Merzedes Club komust í fréttirnar fyrir orðaskak
við Friðrik Ómar úr Eurobandinu sem hafði sigur í keppn-
inni. Merzedes Club endaði í öðru sæti og Evrópu þar með þyrmt.
Nýyrði varð til
Vandræðalegt
Pínlegir sólókaflar
Barnaleikrit
Sitt hvort lagið
Heimsendareif
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is