Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Page 42
42 8. febrúar 2019TÍMAVÉLIN - ERLEND
Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is
LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS
n Réðu ríkjum, kirkjunni og sköpuðu þekktustu listaverk sögunnar
S
amkynhneigð hefur
ávallt verið til en sjaldn-
ast verið umborin af
samfélaginu nema á
allra síðustu áratugum. Þó voru
tímar og staðir þar sem um-
burðarlyndi var fyrir hendi,
sérstaklega á fornöld. Í gegnum
aldirnar stýrðu karlar heimin-
um og margir þeirra hneigðust
til annarra karlmanna. n
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Hinn mikli stríðsmaður frá Makedóníu, Alexander mikli, lagði undir sig
stærstan hluta Mið-Austurlanda, allt til Indlands, á 4. öld fyrir Krist. Alex-
ander, sem lést aðeins 32 ára að aldri, giftist í þrígang. Einni konu af ást en
tveimur af stjórnmálalegum ástæðum.
Sagnaritarar fornaldar segja frá því undir rós að Alexander hafi
sýnt karlmönnum áhuga. Sem dæmi nefna þeir að hann hafi faðmað
geldingsþræl sinn Bagoas fyrir allra augum. Samband Alexanders og
lífvarðar hans, Hephaestions, hefur verið nefnt í þessu sambandi. Þeir
voru mjög nánir og þegar Hephaestion dó ungur fékk það mjög á Alex-
ander. Fráfall hans gæti hafa átt þátt í slæmri heilsu Alexanders síðustu
árin, bæði andlegri og líkamlegri. Sagnaritarar segja ekki fullum fetum
að Alexander og Hephaestion hafi verið ástmenn, en ýja sterklega að því.
Alexander eignaðist tvo syni. Annan með eiginkonu sinni en hinn
með frillu. Hann hélt nokkrar frillur á lífsleiðinni og um tíma átti hann
kvennabúr í austrænum stíl. En þangað fór hann sjaldan.
Alexander mikli
„Maður allra kvenna og kona
allra karla,“ eru orð sem hafa
verið sögð um rómverska her-
foringjann og einvaldinn Júl-
íus Cesar. Gefur það til kynna
að hann hafi hneigst jafnt til
kvenna og karla.
Rómverskt samfélag var ekki
jafn umburðarlynt gagnvart
samkynhneigðum og hið gríska
hafði verið. Það var lenska að
spyrða pólitíska andstæðinga við
samkynhneigð til þess að lítil-
lækka þá og sýna þá sem undir-
gefna. Þetta átti við í því tilviki
þegar Cesar var sagður eiga í
ástarsambandi við Nicomedes
IV., konung Bíþýnu (Norðanvert
Tyrkland í dag). Sagt er að jafn-
vel hermenn Cesar hafi sung-
ið „Cesar lagði undir sig Gallana
en Nicomedes lagði Cesar undir
sig.“ Sjálfur neitaði Cesar þessum
orðrómi, eiðsvarinn.
Kenningin um að Júlíus Cesar
hafi verið samkynhneigður lifði
hins vegar áfram og hann var
orðaður við fleiri menn. Þar á
meðal arkitektinn Marmurra og
Ágústus, fyrsta keisara Róma-
veldis.
Giovanni Maria Ciocchi del
Monte frá Toskana í Ítalíu varð
páfi árið 1550 og ríkti í fimm
ár. Tíð hans verður ávallt nefnd
í samhengi við hneykslismál
tengd betlara að nafni Inn-
ocenzo del Monte.
Innocenzo var fimmtán ára
götudrengur frá Parma sem
Júlíus gerði að þjóni á heim-
ili sínu. Eftir að hann var kjör-
inn páfi ættleiddi bróðir hans
Inno cenzo. Fékk hann opin-
bera stöðu innan kirkjunn-
ar, sem „kardínála-frændi“ og
mikinn framgang í embætti.
Fljótlega fór af stað kvittur
um samband Júlíusar og Inn-
ocenzo. Skáld ortu um sam-
bandið og óvinir Júlíusar nýttu
sér það. Eftir að Júlíus dó var
Innocenzo bannfærður af
kirkjunni og hvarf síðan úr
sögunni.
Júlíus III. páfi
Júlíus Cesar Ríkharður I Englandskonungur hefur verið talinn einn mesti herforingi sem borið hefur krúnuna. Hann
ríkti frá 1189 til 1199 en var mest alla stjórnartíð sína í
hernaði gegn Frökkum, í krossferðum eða í haldi óvina.
Ríkharður var sonur Hinriks II og Elenóru af
Aquitaine og gegndi hann stöðu hertoga víðs vegar í
Frakklandi. Í Frakklandi gekkst hann Filippusi Frakk-
landskonungi á hönd og barðist gegn föður sínum.
Ríkharður og Filippus voru einstaklega nánir. Aðals-
maður sem þekkti til sagði að þeir borðuðu af sama
diski og um nætur aðskildu rúm þeirra þá ekki. Þeir
hafi elskast heitt.
Þegar Ríkharður var krýndur og stóð í krossferðum í
Landinu helga átti hann ástmann sem hann frelsaði úr
dýflissum múslima, hinn franska Raife de Clermon.
Ríkharður var lítið með drottningu sinni, Ber-
engaríu af Navarre, en það hjónaband var ákveðið fyr-
ir þau. Eignuðust þau engin börn en Ríkharður eign-
aðist einn son með frillu. Einnig eru til sögur um að
hann hafi haldið fleiri frillur og hann var því sennilega
tvíkynhneigður.
Leonardo da Vinci var þekktasti listamaður og uppfinn-
ingamaður endurreisnarinnar, fæddur í Flórens árið
1452. Eftir hann liggja mörg þekktustu verk sögunnar,
svo sem Mona Lisa og Síðasta kvöldmáltíðin.
Þegar Leonardo var 24 ára gamall var hann ákærð-
ur fyrir sódómísku ásamt þremur öðrum ungum
mönnum. Voru þeir sakaðir um að hafa sængað
hjá sautján ára karlmellu að nafni Jacopo Saltarelli.
Einn af þeim sem sakaðir voru var tengdur hinni vold-
ugu Medici-ætt og ákæran því látin niður falla gegn
því að sambærileg mál kæmu ekki aftur upp.
Sams konar kæra kom hins vegar fram mánuði
seinna gegn fjórmenningunum og aftur var nafn
Saltarelli nefnt. En þar sem ekkert vitni þorði að stíga
fram var sú kæra einnig látin niður falla.
Da Vinci átti marga ástmenn á lífsleiðinni og suma
þeirra gerði hann teikningar af. Eitt af málverkum
hans af heilögum Jóhannesi skírara er talið gert eftir
ástmanni hans, Gian Giacomo Caprotti da Oreno, sem
var kallaður Salai eða „litli djöfullinn.“
Ríkharður
ljónshjarta
Leonardo da Vinci
Leonardo da Vinci
Ákærður fyrir sódómísku.
Júlíus
Cesar
Neitaði
eiðsvarinn.
Ríkharður ljónshjarta
Elskaði konung Frakklands.
Júlíus III.
Tók betlara
upp á sína
arma.
Alexander mikli
Fráfall ástmanns
hafði áhrif á heilsuna.