Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Page 44
44 8. febrúar 2019TÍMAVÉLIN - ERLEND
F
eður þeirra eru þekktir fyrir að
vera meðal grimmustu manna
sem hafa nokkru sinni gengið
um hér á jörðinni. Þeir drekktu
Evrópu í blóði og reyndu að útrýma
heilum þjóðfélagshópi, gyðingum
með Helförinni. Mörgum kann því
að þykja ótrúleg þversögn fólgin í
að þeim var lýst sem ástríkum fjöl-
skyldumönnum sem elskuðu fjöl-
skyldur sínar og vildu allt fyrir börn
sín gera. Hér er verið að tala um þá
nasista sem voru fremstir í flokki
þýskra nasista í síðari heimsstyrj-
öldinni. Að stríði loknu voru margir
þeirra dæmdir til dauða og teknir af
lífi og aðrir frömdu sjálfsvíg.
En hvernig reiddi börnum nasist-
anna af að stríði loknu? Adolf Hitler
var barnlaus, kannski sem betur
fer, og Josep Göbbels myrti börnin
sín. En meirihluti barna nasistanna
lifði stríðið af og þau lifðu áfram að
því loknu og þurftu að burðast með
þá þungu byrði sem það hlýtur að
hafa verið að hafa átt feður í helstu
áhrifastöðum Þriðja ríkisins. Börnin
gátu auðvitað ekkert að þessu gert,
þau réðu ekki skoðunum eða störf-
um feðra sinna, en samt sem áður
hafði þetta áhrif á þau. Sum þeirra
hurfu sporlaust, önnur gerðu allt
sem í þeirra valdi stóð til að losna
undan ættarnöfnum sínum og því
sem þau tengdust. En það eru einnig
dæmi um að börn háttsettra nasista
hafi orðið gegnheilir nasistar og að-
hyllst nasisma og hafi barist fyrir
þeim hugsjónum og stefnu sem feð-
ur þeirra héldu í heiðri. n
BÖRN NASISTANNA
n Hvað varð um þau?
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Rolf Mengele fæddist 1944. Fað-
ir hans var Joseph Mengele sem
stýrði óhugnanlegum læknisfræði-
legum tilraunum á gyðingum í
Auschwitz. Mengele eldri flúði til
Suður-Ameríku eftir stríð ásamt
fleiri nasistum. Rolf ólst upp í
Vestur- Þýskalandi en vissi að sögn
að faðir hans hélt sig í Brasilíu.
Hann heimsótti hann þar 1977.
„Hann var mjög snortinn.
Augu hans voru tárvot. Hann var
líka mjög stoltur því hann vissi að
það vildu ekki allir í fjölskyldunni
koma og heimsækja hann. Hann
kom fram við mig eins og hugrakk-
an hermann,“ sagði Rolf í sjón-
varpsviðtali 1980 og sagði að hann
hefði átt erfitt með að vita hvaða
tilfinningar hann ætti að bera til
föður síns.
„Hann var faðir minn, en síðan
voru ásakanirnar á hendur hon-
um og þessar hræðilegu myndir
úr Auschwitz. Mér létti mikið
þegar málið leystist,“ sagði Rolf í
sjónvarpsviðtali 1980, en þar átti
hann við að faðir hans drukknaði
í Brasilíu 1979. Rolf fór í lögfræði
og starfar sem lögmaður og hefur
skipt um eftirnafn.
Heimsótti föður
sinn í Brasilíu
Albert Speer yngri fæddist 1934.
Hann var sonur Alberts Speer sem
var aðalarkitekt Hitlers í upphafi
en varð síðan áhrifamaður í stjórn
nasista og stýrði vopnaframleiðslu
Þriðja ríkisins. Albert yngri mennt-
aði sig sem arkitekt og stofnaði eig-
ið fyrirtæki sem var með viðskipta-
vini um allan heim. Hann reyndi
að aðskilja sig frá svartri fortíð
föður síns.
„Þetta var hans heimur, ekki
minn,“ sagði hann um föður sinn.
Albert yngri lést í september 2017.
Hans er minnst sem eins fremsta
arkitekts Þýskalands.
Hilde Speer (nú Schramm)
fæddist 1936 og var sömuleiðis
dóttir Alberts Speer eldri sem
eignaðist sex börn. Hilde segist
ekki muna eftir að hafa hitt Adolf
Hitler, sem hún gerði. Hún sagði
eitt sinn að hún hefði örugglega
ýtt þeirri minningu til hliðar
ómeðvitað. Að stríði loknu stund-
aði hún nám í Bandaríkjunum og
starfaði sem félagsfræðingur. Hún
hefur látið að sér kveða í stjórn-
málum fyrir flokk Græningja og sat
meðal annars á þingi Berlínar. Hún
hefur látið að sér kveða í að að-
stoða fórnarlömb nasista, sérstak-
lega gyðinga, og segist hafa lagt for-
tíð föður síns að baki sér.
„Við sem lifðum af erum sak-
laus. Við erfðum ekki sökina,“ sagði
hún eitt sinn.
Á þing fyrir Græningja
Edda Göring fæddist 1938. Faðir
hennar var Hermann Göring
og móðir hennar var leikkonan
Emmy Göring. Adolf Hitler var
guðfaðir hennar. Hermann Göring
var einn af æðstu leiðtogum nas-
ista og var Edda eina barn hans.
Að stríði loknu var Eddu og móð-
ur hennar komið fyrir í fangabúð-
um. Hún menntaði sig síðar sem
dómritari og settist að í München.
Í mörgum viðtölum hefur hún sagt
að eftirnafnið hafi komið henni
vel í gegnum lífið. Hún fékk meðal
annars miða á frumsýningar á
óperur í Bayreuth. Hún giftist aldrei
en bjó með blaðamanninum Gerd
Heide mann. Hann hafði mikinn
áhuga á nasistatímanum og átti
meðal annars snekkju Göring, Car-
in II. Edda er nú á eftirlaunum og
býr ein. Hún segist bera hlýjar til-
finningar til föður síns.
„Faðir minn hugsaði vel um
mig. Ég á bara góðar minningar um
hann,“ sagði hún eitt sinn í viðtali.
Í sjónvarpsviðtali árið 1980 sagðist
hún vera pólitískt „brennt barn“ og
að henni sé meinilla við allar öfgar,
hvort sem þær koma frá hægri eða
vinstri.
Dómritari í
München
Gudrun Himmler fæddist 1929
í München. Faðir hennar var
Heinrich Himmler sem var einn
valdamesti maður Þriðja ríkis-
ins en hann var yfirmaður hinna
alræmdu SS-sveita Hitlers. Þegar
stríðinu lauk ætlaði Himmler að
gefa sig fram við Bandamenn en
þegar breskir hermenn hand-
tóku hann í maí 1945 framdi hann
sjálfsvíg með eitri. Gudrun og
móðir hennar voru handteknar af
breskum hermönnum og hafð-
ar í haldi. Gudrun sagði síðar að
þetta hefði verið „erfiðasti tími lífs
hennar“. Gudrun og móðir hennar,
Margarete, áttu í ástríku og góðu
sambandi við Himmler. Að stríði
loknu ákvað Gudrun að hreinsa
nafn föður síns af öllum ásökunum
og „misskilningi“. Hún er sögð hafa
haldið sig til hlés og lifað rólegu lífi
en tók samt sem áður virkan þátt í
starfsemi samtakanna „Stille Hilfe“
sem aðstoða gamla nasista í neyð.
Hún var meðal stofnenda samtak-
anna „Wiking-Jugend“ árið 1952
en fyrirmynd þeirra var Hitlersæsk-
an svokallaða. Gudrun Himmler
er oft hyllt á samkomum nýnas-
ista í Þýskalandi og fór oft á árlega
samkomu SS-hermanna í Klagen-
furt í Austurríki. Hún er sögð hafa
elskað föður sinn til síðasta dags
og hafi alltaf haldið því fram að
Bretar hafi myrt hann, hann hafi
ekki svipt sig lífi. Hún giftist blaða-
manninum Wolf-Dieter Burwitz og
tók upp eftir nafn hans. Hún lést 24.
maí 2018.
Vildi hreinsa
nafn föður síns
Nokia 5.1 Plus
Með öflugum 8 kjarna
örgjörva fyrir AR leiki
Frábær
orkunýting
Android
One
13 og 5MP
myndavélar
19:916MP13MP12MP 5.8’’19:916MP13MP12MP 5.8’’ 19:916MP13MP12MP 5.8’’19:916MP13MP12MP 5.8’’
5.8”
HD+ skjár
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
SKILTAGERÐ
Ljósakassar
Ljósaskil
3D stafir
Hönnun
Ráðgjöf
Uppsetning