Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Qupperneq 45
KYNNING Fyrirtækið Þak.is var stofnað 2008 og í dag starfa fjórir iðnað- armenn með gífurlega reynslu hjá fyrirtækinu. „Við þjónustum einstaklinga, húsfélög sem og stærri eða minni fyrirtæki um land allt,“ segir Ólafur Ragnar Ólafsson, eigandi Þak.is. „Þak.is býður upp á alla þá þjónustu sem viðkemur húsaviðhaldi innan- sem utandyra. Þá tökum við að okkur breytingar á heilum íbúðum innandyra og leggj- um t.d. parket, endurnýjum eldhús eða baðherbergi, sjáum um flísalögn, málun, uppsetningar eða niðurrif á veggjum og fleira. Utandyra erum við í endurnýjun eða viðgerðum og sjáum t.d. um þakskipti, endurnýjun þakrenna, bárujárnsklæðningar og aðrar veggklæðningar. Einnig erum við í þakmálun, setjum upp og gerum við þakkanta, framkvæmum gluggaskipti, setjum upp blikk flassningar, erum í pallasmíði og margt, margt fleira.“ Er þakið þitt í lagi? Það er alltaf mikilvægt fylgjast með þakinu; hvort það sé kominn tími á að skipta um það eða lengja endingartíma þaksins með þakmálun. Þak.is býður upp á mat á því og öllu öðru, viðskiptavinum sínum að kostnaðarlausu. „Í þakklæðningar notum við mikið til bárujárn úr alusinki eða stallað ál, eftir því hvað kúnninn vill. Þessi efni hafa sýnt og sannað hvað þau eru endingar- góð og duga vel í íslenskri veðráttu og það er þess vegna sem við notum þau. Við lendum því miður oft í því að endurvinna verk eftir verktaka sem hafa ekki þekkingu og skila frá sér verkum hálfkláruðum eða í verra ástandi en áður en þeir tóku við því. Þetta er sorgleg staðreynd, en sýnir bara að það borgar sig að skipta við aðila sem kunna til verka,“ segir Ólafur. Nánari upplýsingar má nálgast á facebooksíðunni þak.is. Heimasíðan thak.is er lokuð vegna breytinga. Hafðu samband í síma 699-6980. Netpóstur: thak@thak.is n ÞAK.IS: Reynsla og þekking er besta auglýsingin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.