Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Side 48
 8. febrúar 201948 2007 þann 26. september, var dauðadómi yfir japönsku konunni Junko Ogata breytt í lífstíðarfangelsi. Hún hafði fengið dauðadóm 28. september, 2005, sem vitorðsmaður raðmorðingjans Futoshi Matsunaga. Samband Ogata og Matsunaga var ofbeldisfullt, en talið var sannað að þau hefðu í samein- ingu myrt sjö manns á árunum 1996 til 1998. Fórnarlömbin voru myrt á ýmsa vegu, meðal annars með raflaosti og kyrk- ingu. Einnig voru sum svelt til bana. Sex fórnarlambanna voru ættingjar Ogata og aldrei fannst tangur né tetur af líkamsleifum nokkurs þeirra. Sjálfur var Matsunaga dæmdur til dauða og mun að öllu óbreyttu mæta þeim örlögum sínum í fyllingu tímans. K evin Ray Underwood heitir maður nokkur frá Purcell í Oklahoma í Bandaríkjun- um. Þegar við drepum nið- ur fæti í sögu Kevins, árið 2006, var hann 26 ára, sagður feiminn og vann sem afgreiðslumaður í ný- lenduvöruverslun. Hann var virk- ur á samfélagsmiðlum þess tíma og hélt úti bloggsíðu. Þeir sem lásu færslur hans þar gerðu sér kannski grein fyrir að ekki var allt sem skyldi í kollinum á honum, eða héldu einfaldlega að hann væri með undarlega kímnigáfu. Eitt sinn skrifaði Kevin: „Ef mað- ur væri mannæta, hverju mund- ir þú klæðast við kvöldverðinn?“ Hann svaraði spurningunni sjálf- ur: „Húðinni af aðalrétti gær- kvöldsins.“ Kom ekki heim af bókasafninu Rétt fyrir miðjan apríl, 2006, var auglýst eftir 10 ára stúlku, Jamie Rose Bolin. Hún hafði skropp- ið á bókasafnið og ekki skilað sér heim. Síðan höfðu liðið nokkrir dagar og Jamie ekki sést síðan. Jamie tengdist Kevin ekki hætishót nema hvað hún bjó ásamt föður sínum í sama fjöl- býlishúsi og hann. Kevin bjó neð- ar í stigaganginum með rottunni sinni. Líkamsleifar í bala Einhverra hluta vegna fékk banda- ríska alríkislögreglan, FBI, auga- stað á Kevin eftir að hún bland- aðist í málið. Þann 17. apríl fékkst grunur FBI staðfestur þegar lík- amsleifar Jamie fundust í bala inni í fataskáp í svefnherbergi Kevins. Í fataskápnum fann lögreglan einnig kjöthamar og grilltein. Kevin sýndi engan mótþróa þegar hann var handtekinn, en sagði: „Ókei, handtakið mig. Hún er þarna inni. Ég skar hana í hluta.“ Brenglaðir hugarórar Á bloggsíðu sinni hafði Kevin lýst sér sem „einhleypum, leiðum og einmana“ manni sem gældi við „hættulega brenglaða“ hugaróra. Ef einhver hafði velkst í vafa um sannleiksgildi þeirra orða heyrði sá vafi sögunni til. Eftir að Jamie hvarf skrifaði Kevin: „Ég óttast að lögreglan komi heim til mín og sjái alla hníf- ana og sverðin og hryllingsmynd- böndin og heimildamyndir um raðmorðingja, og fari að gruna mig.“ Áhugi á mannakjöti Við réttarhöldin fékk kviðdómur að sjá upptöku með játningu Kevins þar sem hann lýsti atburða- rásinni. Hann sagðist hafa narrað Jamie heim til sín þann 12. apríl. Þar hefði hann barið hana í höf- uðið með skurðarbretti, kæft hana og síðan misþyrmt henni kynferð- islega. Að lokum hefði hann reynt að afhöfða hana með skrauthníf. Reyndar hafði Kevin haft auga- stað á öðrum nágrönnum sínum með það fyrir augum að kanna enn frekar óstjórnlegan áhuga sinn á mennsku holdi. Talið var að Jamie hefði orðið fyrir valinu því Kevin taldi að hún yrði auðviðráð- anlegri en hinir nágrannarnir. Bíður banvænu sprautunnar Verjendur Kevins þrættu ekki fyrir sekt hans og það tók kviðdóm inn- an við klukkustund að komast að niðurstöðu þar að lútandi. Verj- andi lagði hins vegar á það þunga áherslu að Kevin ætti ekki að fá dauðadóm; hann væri andlega vanheill en rétt lyf gætu bætt þar úr. Verjandanum varð ekki að ósk sinni og dómarinn kvað upp þann dóm að Kevin skyldi tekinn af lífi með banvænni sprautu. Kevin sýndi engar tilfinningar þegar dómurinn var kveðinn upp þann 3. apríl 2008. Hann bíður enn banvænu sprautunnar á dauða- deild. n Betri Svefn n Myrti unga stúlku n Langaði að bragða mannakjöt „Ókei, handtakið mig. Hún er þarna inni. Ég skar hana í hluta. Kevin Ray Underwood Hafði augastað á nokkrum ná- grönnum sínum og Jamie varð fyrir valinu. SAKAMÁL HÆTTULEGIR HUGARÓRAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.