Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 49
SAKAMÁL 498. febrúar 2019
C
laude Lafayette Dallas var
þokkalega þekktur og um
deildur einfari á sínum
heimaslóðum í Idaho og
Ohio í Bandaríkjunum. Claude,
sem fæddist árið 1950, hugnað
ist ekki að búa í bæ eða borg og
stunda daglaunastörf og gerðist
því fjallamaður og lifði á því sem
náttúran hafði upp á að bjóða.
Faðir Claude hafði rekið
mjólkurbú í Morrow, strjálbýlli
sýslu í Ohio og voru veiðar líf og
yndi Claudes á hans yngri árum.
Skipti engu hvort um var að ræða
veiðar í gildrur eða með skot
vopnum.
Vafasamt orðspor
Þegar Víetnamstríðið skall á kom
Claude sér undan herkvaðningu
með því að láta sig hverfa og sá sér
farborða með tilfallandi störfum á
búgörðum hér og þar.
Tíminn leið og Claude sá sér
fært að taka upp sína fyrri lifnaðar
hætti og segir sagan að öðrum
veiðimönnum hafi staðið stuggur
af honum. Sagt var að hann hefði
yndi af drápum og einnig var
haft á orði að hann færi í gildrur
annarra.
Ólögleg bráð
Vindur nú frásögninni fram til
ársins 1981, 5. janúar nánar til
tekið. Daginn þann var Claude í
veiðibúðum sínum í skógi í suður
hluta Idaho og sinnti sínu.
Góður vinur hans, Jim nokkur
Stevens, var með honum í búðun
um, reyndar bara í heimsókn að
kanna hvernig gengi og hvað væri
títt.
Bar þá að garði veiðiverði tvo,
Conley Elms og Bill Pogue. Vildu
þeir ræða við Claude vegna gruns
um að veiðar hans væru ekki með
öllu löglegar. Conley fór inn í tjald
Claudes þar sem kenndi ýmissa
grasa, þar á meðal voru gaup
ur, sem var ólöglegt að veiða. Bill
ræddi við Claude fyrir utan tjaldið.
Jim var skammt frá og blandaði sér
ekki í málið.
Skotnir af stuttu færi
Hvað Claude og Bill fór á milli,
fylgir ekki sögunni. Síðar sagði
Claude að Bill hefði fyrirvaralaust
brugðið byssu sinni og hann hefði
skotið Bill með skammbyssu, í
sjálfsvörn.
Í kjölfarið kom Conley út úr
tjaldinu og það skipti engum tog
um; Claude skaut hann líka, þrátt
fyrir að Conley væri óvopnaður.
Jim varð ekki vitni að þessu, en
hann sá aftur á móti þegar Claude
mundaði riffil og skaut veiði
verðina báða í höfuðið af stuttu
færi.
Fór huldu höfði
Claude fleygði síðan líkinu af
Conley í nærliggjandi á og fékk
Jim, þótt hann væri tregur mjög,
til að aðstoða með líkið af Bill. Þeir
fluttu það til fjarlægs staðar og
Claude faldi það í greni sléttuúlfs.
Að þessu öllu loknu lagði
Claude á flótta. Að lokum bar
viðamikil og víðfeðm leit lög
reglunnar árangur og Claude var
handsamaður, 18. apríl 1982, eftir
að hafa farið huldu höfði um ellefu
mánaða skeið.
Manndráp, ekki morð
Claude var ákærður fyrir tvö morð
en réttarhöldin tóku kúvendingu
þegar fókus fór að beinast að
meintri ögrun og árásargirni Bills
Pogue, sem margir töldu orsök at
burðarásarinnar.
Þegar upp var staðið varð það
niðurstaða kviðdóms að Claude
væri saklaus af morði, og fór sú
niðurstaða fyrir brjóstið á mörg
um, ekki síst í ljósi þess að Claude
hafði nánast tekið Bill og Conley
Elms af lífi.
30 ára fangelsi
Margir sem fylgdust með málinu
voru þeirrar skoðunar að Claude
væri gert rangt til. Að hann væri
ekki sekur um neitt annað en að
lifa sem frjáls maður og fá lífs
viðurværi sitt af nægtaborði nátt
úrunnar. Hann hefði einfaldlega
brugðist við tilraun til að koma í
veg fyrir það.
Kviðdómur taldi Claude hins
vegar sekan um manndráp, að
hafa átt við sönnunargögn og beitt
skotvopni. Hvert brotanna varðaði
10 ára fangelsisvist og úrskurðaði
dómari að Claude skyldi afplána
hvern dóm á fætur öðrum, enda
fannst honum niðurstaða kvið
dóms um refsingu helst til væg.
Þannig fór nú það, en ekki er
sagan þó öll.
Flótti úr fangelsi
Claude flúði úr fangelsi árið 1986
og var á flótta í tæpt ár. Flóttinn jók
enn á ímynd hans sem hins frjálsa
flökku og veiðimanns sem hagaði
tilveru sinni á skjön við það sem
alríkisstjórninni líkaði.
Þegar hann var handsamaður
var flóttinn ekki metinn til
þyngingar þeirrar refsingar sem
hann upprunalega var dæmdur
til. Hann losnaði úr fangelsi í
febrúar 2005, eftir að hafa afplán
að 22 ár af 30. n
Einstaklega góðar
og ljúffengar vöfflur
„Sagt var að
hann hefði
yndi af drápum
35ára dóm fékk mexíkóska transkonan Yesenia Patino árið 1992 fyrir morð á Trish Willoughby, eiginkonu ástmanns síns, Daniels Willoughby, í febrúar 1991. Yesenia, sem fór í kynleiðréttingaraðgerð árið 1982, var lykilvitni ákæru-
valdsins í réttarhöldum yfir Daniel. Upphaflega sagði Yesenia að Daniel hefði myrt Trish, en
síðan venti hún sínu kvæði í kross og sagðist sjálf hafa banað henni. Síðan tók hún enn eina
kúvendinguna og skipti aftur yfir í fyrstu yfirlýsingu sína.
Að sögn Yeseniu narraði Daniel eiginkonu sína til að koma í leiguhúsnæði í Puerto Penasco í
Mexíkó. Þar hefði hann myrt hana með því að lemja hana í höfuðið með þungu áhaldi.
Sjálf hefði Yesenia síðan stungið Trish með hnífi, dregið af fingrum hennar tvo hringi, stolið
13 dollurum og dreift pappírum um allt til að láta líta út fyrir að um ránmorð hefði verið að
ræða. Árið 2002 fékk Daniel tvöfaldan lífstíðardóm fyrir morðið.
VÁLYNDUR
VEIÐIMAÐUR
Claude Lafayette Dallas
Veiðar voru líf hans og yndi.
n Claude Dallas kaus
óhefðbundið líf