Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Qupperneq 54
54 FÓKUS 8. febrúar 2019
S
öngkonan Björk og rithöf-
undurinn Sindri Freysson
eru hætt að stinga saman
nefjum, en parið vakti víða
athygli á haustmánuðum þar sem
það sást leiðast um borgina og
láta vel hvort að öðru á veitinga-
húsum í miðbæ Reykjavíkur. Þau
voru einnig áberandi gestir á tón-
leikahátíðinni Iceland Airwaves í
nóvember og skrifaði rapparinn
og leikstjórinn Ágúst Bent með-
al annars um heimsókn þeirra
á eina tónleikana á sínum tíma.
Í fyrrasumar lauk Björk Útópía-
-tónleikaferð sinni um Evrópu og
mun koma fram á nokkrum tón-
leikum í The Shed, nýju og glæsi-
legu menningarhúsi sem vígja á í
New York á vordögum, en þar mun
hún flytja tónlist af væntanlegri
plötu sinni, Cornucopia. Búið er
að boða að um verði að ræða eina
glæsilegustu tónleika söngkon-
unnar þar sem mikið verður lagt
í myndræna þáttinn með aðstoð
stafrænnar tækni og leikrænni
umgjörð. Sindri gaf út fyrir nýliðin
jól ljóðabókina Skuggaveiði sem
fékk afbragðs viðbrögð lesenda en
hann er kunnur fyrir skáldsögur
sínar og ljóð.
BJÖRK EINHLEYP Á NÝ
M
argrét R. Jónasar
förðunarmeistari hóf
störf sem förðunarstjóri
á RÚV þann 1. febrúar.
Margrét á vefverslanirnar Mstore
og Reykjavík Bitch & Co, en hún
rak áður verslunina Mstore í
Smáralind í nokkur ár. Margrét
hefur unnið í förðunarbransan-
um í fjölda ára við góðan orðstír.
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
Sérsmíðum eftir
óskum hvers og eins
Gylfaflöt 6-8 / S. 587 6688 / fanntofell.is
Margrét hefur störf
sem förðunarstjóri RÚV
V
alur Heiðar Sævarsson gerði garðinn frægan
með hljómsveitinni Buttercup á seinni hluta
síðustu aldar. Í dag er hann hins vegar vin-
ur þinn í Reykjavík, en fyrirtæki Vals Heiðars
og Hrafnhildar konu hans býður upp á göngutúra í
miðbæ Reykjavíkur undir því nafni (Your Friend In
Reykjavík).
Samkvæmt heimasíðunni sér Valur um göngu-
túrana, Hrafnhildur um að reka skrifstofuna og syn-
ir þeirra, Óðinn og Trausti Týr, veita innblástur með
því að vera krúttlegir.
Göngutúr fyrir matarelskendur, pöbbarölt og
göngutúr með víkingi eru á meðal þess sem Valur
Heiðar býður upp á.
Valur úr Buttercup er Vinur þinn í Reykjavík