Morgunblaðið - 17.10.2018, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. O K T Ó B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 244. tölublað 106. árgangur
KÖTTURINN ER
HEIMSFRÆGUR
STARFSMAÐUR
HLJÓMSVEITIN
ÁTTI STÓRLEIK
VIÐ LEIKUM
OKKUR EKKI
AÐ JÖRÐINNI
MÄKELÄ VEL FAGNAÐ 31 BARNABÓKAVERÐLAUNIN 30FÉLAGSLYNDUR MÚSAVÖRÐUR 12
Ljósmynd/Signý Gunnarsdóttir
Silkifiðrildi Lirfurnar spinna púpurnar úr
silkiþræði sem er hundruð metra.
Fatahönnuður í Grundarfirði
framleiðir eigið silki. Hún er með
tilraunaeldi á silkiormum í bílskúr
og hefur þegar ræktað fimm lotur
af silkiormum en eitt til tvö þúsund
ormar eru í hverri lotu.
Signý Gunnarsdóttir silkiorma-
bóndi segir að áhuginn á silkiorma-
rækt hafi vaknað út frá námi henn-
ar í fatahönnun og textílgerð.
Ætlunin er að kanna hvort hægt sé
að finna ódýrt innlent hráefni í fóð-
ur fyrir lirfurnar svo að grundvöll-
ur sé fyrir silkiormaeldi í stórum
stíl. Hún hefur velt þangi fyrir sér.
„Það má til dæmis blanda því við ís-
lenska ull og spinna silkiullargarn
og auka þannig úrvalið á íslenskum
garnmarkaði,“ segir Signý, spurð
um notkun silkisins. »4
Framleiðir íslenskt
silki með ormarækt-
un í Grundarfirði
Lífeyrissjóðir með 43%
» Sölvi Blöndal segir hlut
lífeyrissjóða í nýjum íbúða-
lánum hafa aukist í 43% í ár.
» Það sé hæsta hlutfall þeirra
á markaði frá upphafi.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sölvi Blöndal, efnahagsráðgjafi hjá
Gamma, segir útlit fyrir „einhvers
konar leiðréttingu“ á verði dýrari
íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Ólíklegt
sé að nafnverðið hækki meira.
Gamma og dótturfélög hafa verið
umsvifamikil á byggingarmarkaði
síðustu ár. Þá m.a. á leigumarkaði.
Sölvi segir áherslu Reykjavíkur-
borgar á að þétta byggð hafa leitt til
hærra íbúðaverðs. Það sé enda 30-
50% dýrara að byggja á þéttingarreit-
um en á nýbyggingarsvæðum.
Verktakar hafi brugðist við aukn-
um kostnaði með því að byggja íbúðir
fyrir efnameira fólk. Nú séu vísbend-
ingar um mettun á þeim markaði.
Hækkandi fasteignaverð hefur ýtt
undir verðbólgu undanfarið. Fari
verðið að standa í stað gæti það vegið
gegn öðrum verðbólguþrýstingi.
Ingólfur Bender, aðalhagfræðing-
ur Samtaka iðnaðarins, segir tvo
óvissuþætti mögulega geta lækkað
íbúðaverð. Annars vegar ef íbúðum
fækki sem leigðar séu til ferðamanna
og hins vegar ef hluti erlenda vinnu-
aflsins flytji af landi brott.
Íbúðaverðið gæti lækkað
Sérfræðingur hjá Gamma segir þéttingu byggðar gera íbúðir 30-50% dýrari
Verktakar hafi því byggt dýrari íbúðir Nú sé komið að „leiðréttingu“ á verði
MÞétting byggðar … »14-15
Reykjanes Um 200 styrjur eru í
eldisstöð Stolt Sea Farm.
Styrjur hafa dafnað vel í eldi í
stöð Stolt Sea Farm á Reykjanesi
síðustu ár. Þar eru nú um 200
styrjur og þær stærstu eru orðnar
yfir 30 kíló að þyngd. Eldi styrju
er þolinmæðisverk því sex til átta
ár tekur að ala seiði fram til kyn-
þroska. Eftir nokkru er hins vegar
að slægjast því mikil verðmæti
eru fólgin í hrognum styrjunnar
eða kavíarnum.
Styrjueldið er hins vegar auka-
búgrein hjá fyrirtækinu í eldis-
stöðinni á Reykjanesi því áherslan
er á eldi á senegalflúru. Nú eru 7-
10 tonn af tegundinni flutt út í
viku hverri og fer fiskurinn að
mestu með flugi til viðskiptavina í
Evrópu og Bandaríkjunum.
Af öðrum tegundum sem skil-
greindar eru sem framandi hér á
landi og eru í eldi má nefna
sæeyru og ostrur. Fimmta kynslóð
ungviðis ostra kom frá Spáni til
Húsavíkur fyrir skömmu, en það
er fyrirtækið Víkurskel ehf. sem
stendur fyrir verkefninu. Í haust
fóru fyrstu afurðirnar frá fyrir-
tækinu til sölu á veitingahúsi í
Reykjavík. » 10
Yfir 30 kílóa styrjur í eldi
Eldið er þolinmæðisverk Kavíarinn verðmætur
Í gær var haldin minningarathöfn um borð í
varðskipinu Þór í tilefni þess að 75 ár eru liðin
frá því að þáttaskil urðu í orrustunni um Atlants-
haf og herir bandamanna náðu undirtökum.
Þátttakendur í athöfninni voru Guðlaugur Þór
Þórðarson utanríkisráðherra og James G.
Foggo, aðmíráll og aðalstjórnandi heræfing-
arinnar Trident Juncture, en þeir vörpuðu blóm-
sveig í hafið til minningar um atburðinn. »6
Minntust þeirra sem létust í stríðsátökum á Atlantshafi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blómsveig varpað í hafið af varðskipinu Þór
Ríkisskattstjóri
afhenti for-
ráðamönnum
vefsins Tekjur.is
eintak af skatt-
skrá allra lands-
manna í sumar.
Þeir færðu upp-
lýsingarnar síðan
yfir á rafrænt
form og telja sig
hafa fulla heimild
til að birta þær.
Þetta segir lögmaður þeirra, Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson, í svari við
fyrirspurn Morgunblaðsins um það
hvaðan gögnin á vefnum hafi kom-
ið. »4
Fengu gögnin hjá
Ríkisskattstjóra
Gögn Upplýsingar
um tekjur fólks eru
nú á netinu.
Samkomulag hefur náðst á milli líf-
eyrissjóðsins Lífsverks og félagsins
Íbúðir eldri borgara í Mörk ehf., sem
er í eigu Grundar, um fjármögnun á
allri nýframkvæmd félagsins á Suð-
urlandsbraut 68-70. Aðkoma lífeyr-
issjóðsins að uppbyggingunni trygg-
ir sjóðfélögum forgang að hluta
íbúðanna.
Um er að ræða 74 nýjar íbúðir sem
hafa þegar verið reistar en þær eru
nú allar í útleigu. Samningurinn fel-
ur aftur á móti í sér að næstu 10
íbúðir sem losna muni ganga til sjóð-
félaga Lífsverks. Eftir það fara
næstu 10 til annarra á biðlista en því
næst taka við 10 íbúðir þar sem sjóð-
félagar Lífsverks verða aftur í for-
gangi. „Þetta er ágætt fyrirkomulag
en allir sjóðfélagar sem eru 60 ára og
eldri geta sótt um íbúðir í húsnæð-
inu. Af tæplega 5.000 sjóðfélögum
okkar eru aðeins 419 þeirra á ellilíf-
eyrisaldri. Fleiri eru sannarlega 60
og eldri en þarna getum við þjónust-
að hluta þeirra og jafnvel stóran
hluta þeirra sem vilja nýta sér þjón-
ustu af þessu tagi,“ segir Jón L.
Árnason, framkvæmdastjóri lífeyris-
sjóðsins Lífsverks. »16
Sjóðfélögum Lífsverks
tryggður forgangur