Morgunblaðið - 17.10.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Úrval af rafdrifnum
hvíldarstólum
Opið virka daga
10-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vegagerðin telur að vegur um
Reykjanes og brú á utanverðum
Þorskafirði verði mun dýrari en
fram kom í frumáætlun norsku
verkfræðistofunnar og um 4 millj-
örðum dýrari en uppfært kostnaðar-
mat á ÞH-leiðinni sem liggur um
Teigsskóg. Ef hins vegar sveitar-
stjórn ákvæði að fara norsku leiðina
myndi það seinka framkvæmdum
um tvö og líklega frekar þrjú ár og
þeim yrði ekki lokið fyrr en eftir sjö
ár.
Vegagerðin hefur lengi talið ÞH-
leiðina sem þverar tvo firði og liggur
um Teigsskóg bestu leiðina í endur-
bótum á Vestfjarðavegi um Gufu-
dalssveit. Sú leið hefur nokkur um-
hverfisáhrif í för með sér. Hún er í
samræmi við skipulag sveitarfé-
lagsins. Þurfti að hnika því aðeins til
og var vinnan langt komin þegar
sveitarstjórn ákvað að þiggja boð
einstaklinga um að kosta óháð mat á
fyrirliggjandi kostum. Norska verk-
fræðistofan Multiconsultant lagði til
í júní sl. að Þorskafjörður yrði brú-
aður utarlega og síðan yrði framhald
hans á núverandi vegi um Reykja-
nes og í gegnum Reykhóla. Taldi
hún að kostnaðurinn yrði svipaður
og við ÞH-leið Vegagerðarinnar.
Sveitarstjórn óskaði eftir mati Vega-
gerðarinnar sem nú liggur fyrir.
Vegagerðin gerði frummat á sinni
útfærslu á norsku leiðinni, A3, og
bar saman við ÞH-leiðina og jarð-
gangaleiðina D2. Magnús Valur Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri mann-
virkjasviðs Vegagerðarinnar, segir
að matið breyti ekki fyrri niðurstöð-
um um að ÞH-leiðin sé besti kost-
urinn við að bæta vegasamgöngur á
sunnanverðum Vestfjörðum. Vega-
gerðin telur að kostnaður við A3-
leiðina yrði 11,2 milljarðar. Þá hafa
áætlanir verið færðar til verðlags í
dag auk þess sem Vegagerðin telur
að brúin yrði mun dýrari en Norð-
mennirnir gengu út frá og að leggja
þurfi nýjan veg um Reykjanes. Til
samanburðar er kostnaður við jarð-
gangaleiðina nú áætlaður 13,3 millj-
arðar og leið ÞH 7,3 milljarðar.
Þriggja ára seinkun
Ef sveitarstjórn myndi nú sam-
þykkja leið ÞH og auglýsa skipu-
lagsbreytinguna yrði hægt að bjóða
verkið út næsta vor og hefja fram-
kvæmdir um haustið. Fram-
kvæmdatíminn er þrjú ár. Verði leið
A3 valin yrði í fyrsta lagi hægt að
bjóða út framkvæmdir vorið 2021 og
þó líklega ekki fyrr en vorið 2022.
Það þýddi 3 ára seinkun fram-
kvæmda.
Í vegaáætlun er gert ráð fyrir 6,7
milljörðum í þetta verk á árunum
2019 til 2022 enda eru fjárveitingar
miðaðar við hagkvæmasta kostinn.
Norska leiðin seinkar framkvæmd
Djú
pif
jör
ðu
r
Þor
ska
-
fjör
ður
Þo
rs
ka
fjö
rð
ur
B
erufjörður
Skálanes-
fjall
Teigssk
ógur
Hja
llah
áls
Reykjanes
Gufudalssveit
Grónes-
-hyrna
Leið Þ-H um Teigsskóg
Leið D2
Loftmyndir ehf.
Vestfjarðavegur
um Gufudalssveit
Leið A3 um Reykjanes
eftir núverandi Reykhóla-
sveitarvegi og þverun við
utanverðan Þorskafjörð
Vegagerðin telur að Reykhólaleið norsku verkfræðistofunnar yrði 4 milljörðum dýrari en
Teigsskógarleiðin Vilja halda sig við fyrri áætlanir Hægt yrði að hefjast handa á næsta ári
Tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins
um óháða rannsókn á framúr-
keyrslu við endurbætur á Hlemmi
Mathöll fékk ekki náð fyrir augum
meirihlutans á fundi borgarstjórnar
í gærkvöldi, ekki frekar en aðrar
rannsóknartillögur. Þórdís Lóa Þór-
hallsdóttir, starfandi borgarstjóri,
lagði til að tillögunni yrði vísað frá í
ljósi þess að innri endurskoðun
borgarinnar væri að vinna að úttekt
á innkaupum og útboðum á nokkr-
um verkefnum og Hlemmur Mat-
höll væri meðal þeirra. Von væri á
niðurstöðum athugunarinnar.
Meirihlutinn samþykkti frávísun.
Verður ekki þaggað niður
Flutningsmaður, Baldur Borg-
þórsson, sagði að málið yrði ekki
þaggað niður, ekki frekar en
braggamálið. Miðflokkurinn myndi
draga upp fjölda annarra mála.
Borgarbúar ættu heimtingu á því
að öll þessi „skandalmál“ yrðu
rannsökuð.
Meirihlutinn felldi tillögu borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að
lækka fasteignaskatta á atvinnu-
húsnæði úr 1,65 í 1,60%, þegar á
árinu 2019. Katrín Atladóttir, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og
tillöguflytjandi, sagði það vonbrigði
að tillagan hefði verið felld enda
hefði málið verið eitt af aðalstefnu-
málum Viðreisnar sl. vor. Borgar-
fulltrúar Viðreisnar greiddu at-
kvæði gegn samþykkt tillögunnar.
Í samstarfsyfirlýsingu núver-
andi meirihluta kemur fram að
fasteignaskattur af atvinnuhús-
næði muni lækka í 1,6% í lok kjör-
tímabilsins. Sjálfstæðismenn vöktu
athygli á því að samkvæmt nýju
fasteignamati hækkar atvinnuhús-
næði um 16,6% á næsta ári. Það
leiði til hundraða milljóna króna
aukaskattheimtu á heimili og fyrir-
tæki. Of seint sé að lækka álagn-
ingarprósentuna í lok kjörtímabils-
ins.
Fjöldi mála var á dagskrá fundar
borgarstjórnar sem hófst klukkan
14 í gær og stóð fram eftir kvöldi.
Engin rannsókn á Grensásvegi
Sjálfstæðismenn lögðu til að fram
færi óháð rannsókn á samningum
og framkvæmd við Grensásveg 12
með tilliti til samþykkta borgarinn-
ar um félagsleg undirboð og annað
sem lýtur að aðstæðum starfsfólks
verksala. Meirihluti borgarfulltrúa
felldi tillöguna. Verið er að breyta
húsnæðinu úr atvinnuhúsnæði í
íbúðarhúsnæði og hefur Reykjavík-
urborg gert samning um kaup á all-
mörgum félagslegum íbúðum í því.
Í greinargerð með tillögu Sjálf-
stæðisflokksins er vakin athygli á
því að margsinnis hafi verið brotið á
starfsfólki sem var látið rífa niður
asbest án leyfis og Vinnueftirlitið
þurft að stöðva framkvæmdir. Stað-
hæft hafi verið að borgin hafi skyld-
ur í þessu máli sem verkkaupi en
ekki gengist við því þrátt fyrir
stefnu sína í mannréttindamálum.
Hlemmur Mathöll er
hluti af stærri rannsókn
Morgunblaðið/Eggert
Fundur Borgarfulltrúar ræddu mikið um flest mál á borgarstjórnarfundi sem stóð fram eftir kvöldi.
Tillögur um rannsóknir á framkvæmdum náðu ekki fram
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
bárust sjö tilkynningar um kynferð-
isbrot í september og hafa þær ekki
verið færri á einum mánuði síðan í
febrúar 2014. Tilkynningarnar voru
einnig 70% færri en meðaltalið síð-
ustu 12 mánuði. Þetta er meðal þess
sem fram kemur í afbrotatölfræði
lögreglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu fyrir septembermánuð.
Alls bárust lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu 736 tilkynningar um
hegningarlagabrot í september og
voru þau færri en mánuðina á undan.
Nytjastuldum fækkaði nokkuð í
mánuðinum, en 17 tilkynningar bár-
ust vegna slíkra brota miðað við 31
tilkynningu að meðaltali síðastliðna
12 mánuði. Innbrotum fjölgaði hins
vegar í september, en 97 tilkynning-
ar um innbrot bárust lögreglunni,
þar af um 40 innbrot á heimili. Fjölg-
aði innbrotum um 13% frá meðaltali
innbrotatilkynninga síðustu 12 mán-
aða, en um 15% í innbrotum á heim-
ili.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
skráði 162 atvik í september þar sem
ökumaður var grunaður um akstur
undir áhrifum ávana- og fíkniefna og
var fjöldi brota innan útreiknaðra
marka. Þó hefur brotum fjölgað um
65% það sem af er ári samanborið við
meðaltal á sama tímabili síðustu þrjú
ár.
Ofbeldi gagnvart
lögreglu eykst
Í september voru skráð sjö tilvik
þar sem lögreglumaður var beittur
ofbeldi, en það sem af er ári hafa 55%
fleiri slík brot verið skráð en með-
altal sama tímabils síðustu þrjú ár á
undan. Í september kom ekkert til-
vik um hótanir um ofbeldi gegn lög-
reglu upp, en það sem af er ári hefur
tilfellum fjölgað um 31% miðað við
síðustu þrjú ár.
Færri kynferð-
isbrot tilkynnt
Fleiri aka undir áhrifum fíkniefna
„Þetta var viðbúið. Þeir vilja ÞH-
leiðina áfram,“ segir Ingimar
Ingimarsson, oddviti Reykhóla-
hrepps. Á honum er að skilja að
honum finnist Vegagerðin tína
til óþarflega mörg neikvæð at-
riði varðandi leiðina sem norsku
sérfræðingarnir lögðu til. Sjálf-
ur hefur hann talað fyrir þeirri
leið. Sveitarstjórn hittist óform-
lega í dag til að bera saman
bækur sínar og vonast Ingimar
til að fá sérfræðinga til skrafs
og ráðagerða. Vonast hann til
þess að Vegagerðin kynni
skýrslu sína og að efnt verði til
íbúafundar. Málið verði tekið
formlega fyrir á sveitarstjórn-
arfundi eftir tæpan mánuð.
Neikvæð
atriði tínd til
ODDVITINN