Morgunblaðið - 17.10.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
æli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
K Veður víða um heim 16.10., kl. 18.00
Reykjavík 6 alskýjað
Akureyri 6 skýjað
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 10 rigning
Ósló 8 alskýjað
Kaupmannahöfn 15 heiðskírt
Stokkhólmur 10 skýjað
Helsinki 11 skýjað
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 23 heiðskírt
Dublin 15 skúrir
Glasgow 13 alskýjað
London 16 rigning
París 23 heiðskírt
Amsterdam 20 heiðskírt
Hamborg 19 heiðskírt
Berlín 18 heiðskírt
Vín 16 heiðskírt
Moskva 13 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 21 heiðskírt
Mallorca 21 léttskýjað
Róm 21 súld
Aþena 19 léttskýjað
Winnipeg 1 alskýjað
Montreal 5 skýjað
New York 11 heiðskírt
Chicago 7 heiðskírt
17. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:25 18:02
ÍSAFJÖRÐUR 8:37 18:00
SIGLUFJÖRÐUR 8:20 17:43
DJÚPIVOGUR 7:56 17:30
Á fimmtudag Sunnan 10-15 m/s og víða rigning,
einkum suðaustantil, en úrkomulítið norðaust-
anlands. Hiti 5-10 stig. Á föstudag Suðvestan 10-15
m/s og skúrir vestantil, en bjartviðri eystra.
Vestan- og norðvestanátt og styttir víða upp, en snýst í vaxandi suðaustanátt með vætu suðvest-
antil seint í kvöld.Hiti 1 til 10 stig, en mildast við suðausturströndina.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Signý Gunnarsdóttir, fatahönnuður
og silkiormabóndi, er nú með til-
raunaeldi á silkiormum í bílskúr í
Grundarfirði. Hún fékk leyfi til að
flytja inn 50.000 silkiormaegg frá
silkiræktunarstöð í Búlgaríu.
Signý fór þangað til að kynna sér
silkirækt og kaupir eggin þaðan.
Hún er búin að rækta fimm lotur
af silkiormum það sem af er árinu
og eru eitt til tvö þúsund ormar í
hverri lotu.
Signý sagði að silkirækt færi að-
allega fram í hlýju loftslagi austur
í Asíu og þá helst í Kína, Indlandi
og víðar. Í Evrópu er silki ræktað á
nokkrum stöðum. Hún telur mögu-
legt að stunda hér silkirækt í upp-
hituðu húsnæði.
Silkiormar éta aðallega mór-
berjalauf og gefur Signý þeim
tilbúið fóður sem unnið er úr mór-
berjalaufi og fleiri efnum. Eggin
eru á stærð við sesamfræ og úr
þeim klekjast um 2 mm langar lirf-
ur. Signý elur þær í útungunar-
kassa til að halda réttu hita- og
rakastigi. Lirfurnar gera ekkert
annað en að éta. Þær ná fullri
stærð á um fjórum vikum og eru
þá orðnar 8-9 sentimetra langar.
Fullvaxin spinnur lirfan um sig
púpu úr silkiþræði. Utan um eina
púpu geta verið 700-1.300 metrar
af silkiþræði. Lengstu þræðirnir
eru utan um púpur ræktaðra silki-
orma.
Signý sagði að áhuginn á silki-
ormarækt hefði vaknað út frá námi
hennar í fatahönnun og textílgerð.
Ætlunin er að kanna hvort hægt sé
að finna ódýrt innlent hráefni í
fóður handa lirfunum svo grund-
völlur sé fyrir stóru silkiormaeldi.
Signý hefur m.a. velt fyrir sér að
nota þang í lirfufóður. En til hvers
ætlar hún að nota silkið?
„Það má til dæmis blanda því við
íslenska ull og spinna silkiullar-
garn og auka þannig úrvalið á ís-
lenskum garnmarkaði. Silkið gefur
ullinni mýkt. Svo er hægt að nota
silki í ýmislegt annað,“ sagði
Signý. „Nýsköpun í silkinotkun er
mjög mikilvæg og heillandi og um-
fangsmikil.“ Mikil þróun er í notk-
un silkis í dag og er það meðal
annars notað í líftækni til að búa til
smágerðar æðar og byggja burðar-
virki vefja í líkamanum og eins í
lyfjagerð.
Signý sagði að silkiormar væru
ekki leiðinleg húsdýr. Fiðrildin
væru enn skemmtilegri og hænd-
ust jafnvel að fólki. „Kvendýrin eru
stærri en karldýrin, enda innihalda
þau öll eggin. Fiðrildin hugsa að-
allega um að finna maka og fjölga
sér. Ég reyni að para saman
flottustu dýrin,“ sagði
Signý.
Ljósmynd/Signý Gunnarsdóttir
Silkirækt Lirfurnar spinna púpur úr silkiþræði. Fiðrildi fá að skríða úr fallegustu púpunum til að verpa eggjum.
Silkiormabóndinn
í Grundarfirði
Utan um hverja púpu eru 700-1.300 metrar af silkiþræði
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Ríkisskattstjóri afhenti Tekjum.is
eintak af skattskrá allra Íslendinga á
pappír sem Tekjur.is færðu yfir á raf-
rænt form og skiluðu síðan aftur.
Þetta kemur fram í svari Vilhjálms
H. Vilhjálmssonar, lögmanns og tals-
mann Tekna.is við fyrirspurn Morg-
unblaðsins um hvernig gögnin voru
fengin. „Skráin var aðgengileg hjá
Ríkisskattstjóra, sem afhenti eintak
af henni á pappír sem var svo skilað
aftur […] RSK afhenti skrána á papp-
ír, en upplýsingar voru færðar yfir á
rafrænt form. Gögnin eru þannig eðli-
lega fengin,“ segir í svari Vilhjálms.
Á vefnum Tekjur.is er hægt að
fletta upp tekjum og skattaupplýsing-
um allra Íslendinga 18 ára og eldri,
gegn greiðslu áskriftargjalds, en
Viskubrunnur ehf. er rekstraraðili
síðunnar. Vilhjálmur vildi ekki gefa
upp hversu margir hefðu keypt
áskrift að síðunni þegar Morgunblað-
ið spurðist fyrir og sagði það vera
trúnaðarmál. Ingvar Smári Birgis-
son, lögfræðingur og formaður Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna, krafð-
ist lögbanns á Tekjur.is í vikunni en í
samtali við mbl.is telur Vilhjálmur að
þeirri kröfu verði hafnað.
Fagnað af lykilaðilum í
verkalýðshreyfingunni
Spurður um almenn viðbrögð segir
Vilhjálmur að verkalýðshreyfingin
hafi verið meðal þeirra sem hafa fagn-
að síðunni. „Viðbrögð almennings
hafa almennt verið góð. Umbjóðandi
minn hefur fengið fjölda pósta frá
fólki sem lýsir yfir ánægju sinni með
verkefnið, en líka frá aðilum sem eru
ósáttir. Það var vitað fyrirfram að
ekki yrðu allir ánægðir, en það hefur
t.d. komið eindreginn stuðningur við
verkefnið frá lykilaðilum í verkalýðs-
hreyfingunni sem hafa fagnað þessu
framtaki.“
Spurður um hvort stendur til að
færa nýrri upplýsingar um tekjur Ís-
lendinga inn fyrir áskrifendur segir
Vilhjálmur að stefnt sé að því. „Um-
bjóðandi minn stefnir að því að upp-
færa gögnin þegar ný skattskrá verð-
ur gefin út. Þó ræðst það væntanlega
af viðbrögðunum nú og hvort tekst að
standa undir kostnaði við uppsetn-
ingu og rekstur vefsíðunnar.“
Skattskrá allra
afhent á pappír
Tekjur.is fengu skattskrána frá
RSK og færðu sjálf í rafrænt form
Hvalur hf. sendi tæplega 1.500 tonn
af hvalaafurðum með frystiskipi frá
Hafnarfirði til Japans á laugardag-
inn var, 13. október.
Kristján Loftsson, fram-
kvæmdastjóri Hvals hf., segir að
flutningaskipið sigli norðausturleið-
ina um Norður-Íshafið sem er mik-
ið styttri leið en ef siglt væri suður
og austur um Indlandshaf. Þetta
sama skip hefur áður flutt afurðir
frá Hval hf. þessa leið til Japans.
Kristján segir að Japanir ætli að
nota alþjóðlegar aðferðir til að
rannsaka sýni úr afurðunum. „Við
vonum að það haldi og þá er ennþá
betra að eiga við þetta,“ sagði
Kristján.
Afurðirnar sem sendar voru eru
frá því í sumar. Skipið var fulllestað
og eru einhverjar birgðir eftir hér á
landi, að sögn Kristjáns. „Það verð-
ur nóg til af rengi fyrir þorrann, við
pössum það vel,“ sagði Kristján.
98 daga hvalvertíð
Eins og fram hefur komið veidd-
ust 146 langreyðar á hvalvertíðinni
Morgunblaðið/ÞÖK
Hvalskurður Afurðir frá hval-
veiðum í sumar á leið til Japans.
1.500 tonn af hvalaaf-
urðum flutt til Japans
á liðnu sumri, tvö dýranna reyndust
vera blendingar langreyðar og
steypireyðar.
Vertíðin hófst 19. júní og stóð í
98 daga, frátafir voru í 18 daga
vegna brælu. Um 150 manns unnu
við veiðar og verkun hjá Hval hf. í
Hvalfirði og Hafnarfirði í sumar.
Gerðir voru út tveir hvalbátar,
Hvalur 8 og Hvalur 9.
„Púpan er hituð í ofni til að
drepa lirfuna áður en hún brýst
út og eyðileggur hana. Ég set
svona 100 dauðar púpur í vatn
í einu og sýð upp á þeim þann-
ig að próteinið sem bindur
silkiþræðina saman leysist
upp. Þegar púpurnar eru orðn-
ar ágætlega mjúkar veiði ég
þræðina af svona tuttugu púp-
um í einu upp úr vatninu og
vef þá upp á hjól áður en ég
get notað silkið,“ sagði Signý
Gunnarsdóttir. „Fallegustu púp-
unum leyfi ég að lifa til þess
að úr þeim komi fiðrildi.
Þau ætla ég svo að
nota til að fram-
leiða egg sem
verða að næstu
kynslóðum silki-
orma. Þetta er
eins og fjárbóndi
sem setur falleg-
ustu lömb-
in á.“
Silkið dregið
af púpunum
SILKIRÆKTUN
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Signý
Gunnarsdóttir