Morgunblaðið - 17.10.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Leitar þú að traustu
BÍLAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
TÍMAPANTANIR
587 1400
Við erum sérhæfðir í viðgerðum
á amerískum bílum.
Mótorstilling býður almennar
bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nú um stundir sitja 10 varaþingmenn
á Alþingi eða 16% þingheims. Þetta
má lesa á vef Alþingis. Þingið var sett
10. september sl. og það sem af er
þingi hafa varamenn verið kallaðir
inn í 23 skipti.
Samkvæmt upplýsingum Guðnýjar
Völu Dýradóttur, lögfræðings á þing-
fundaskrifstofu, er þessi tala heldur í
hærri kantinum í samanburði við
fyrri ár. Skýrist það að hluta til af því
að alþjóðastarf þingmanna er meira í
október en á öðrum árstímum.
Varamennirnir eru: Albert Guð-
mundsson fyrir Áslaugu Örnu Sig-
urbjörnsdóttur, Hildur Sverrisdóttir
fyrir Brynjar Níelsson, Ingibjörg
Þórðardóttir fyrir Bjarkeyju Olsen
Gunnarsdóttur, Jóhann Friðrik Frið-
riksson fyrir Silju Dögg Gunnars-
dóttur, Jóhanna Vigdís Guðmunds-
dóttir fyrir Ágúst Ólaf Ágústsson,
María Hjálmarsdóttir fyrir Loga Ein-
arsson, Teitur Björn Einarsson fyrir
Harald Benediktsson, Valgerður
Gunnarsdóttir fyrir Njál Trausta
Friðbertsson, Þorgrímur Sigmunds-
son fyrir Sigmund Davíð Gunn-
laugsson og Þórarinn Ingi Péturs-
son fyrir Líneik Önnu Sævars-
dóttur.
Á vef Alþingis kemur fram að
margir kjörnir þingmenn eru í emb-
ættiserindum í útlöndum. Fjórir
þingmenn sitja allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna í New York og þrír
þingmenn sitja haustþing Alþjóða-
þingmannasambandsins (IPU) í
Genf. Þá situr einn þingmaður fundi
vísinda- og tækninefndar NATO-
þingsins í San Diego.
Þingmaður sem tekur inn vara-
mann á rétt á greiðslum ef hann er
frá vegna veikinda eða í opinberum
erindum erlendis á vegum Alþingis í
fimm daga hið skemmsta.
Varamaður skal fá greitt þingfar-
arkaup frá þeim degi sem tilkynnt er
á þingfundi eða á vef að hann taki
sæti á Alþingi og til þess tíma að til-
kynnt er að aðalmaður taki sæti á
ný.
10 varamenn sitja á þingi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Á yfirstandandi þingi hefur verið kallað á varamenn í 23 skipti.
Alþjóðastarf
umfangsmikið
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
James G. Foggo III, aðmíráll í banda-
ríska sjóhernum og yfirmaður sjóhers
Bandaríkjanna í Evrópu og Afríku,
segir Ísland gegna mikilvægu hlut-
verki fyrir NATÓ m.a. vegna land-
fræðilegrar stöðu sinnar.
Hann segir að þrátt fyrir að Ísland
sé ekki með einkennisklæddan her þá
sé hér utanríkisráðherra, yfirmaður
öryggismála, ásamt öflugri landhelgis-
gæslu sem gegnir mikilvægu sjó- og
loftvarnahlutverki í Norður-Atlants-
hafi.
„Ísland gefur okkur bæði sjó- og
loftmynd af því sem er að gerast á
þessum mikilvægu herstjórnarlegum
krossgötum, enda er í Ísland í miðjunni
á þessu mikilvæga svæði,“ segir Foggo
í samtali við Morgunblaðið. Hann er
staddur um þessar mundir á Íslandi
vegna Trident Juncture-heræfingar-
innar á vegum NATÓ, sem fer að hluta
til fram á Íslandi í dag.
Barist við þýsku kafbátana
Minningarathöfn fyrir þá sem létust
í baráttunni um Atlantshafið í seinni
heimsstyrjöldinni var haldin um borð í
varðskipinu Þór í gær, en 75 ár eru síð-
an að orrustunni lauk. Foggo hélt þar
ræðu og fór yfir það mikilvæga hlut-
verk sem Íslendingar léku í baráttunni
um Atlantshafið. Nefndi hann þar
hversu mikilvægt það var fyrir flug-
vélar og skip bandamanna að geta lagt
af stað frá Íslandi í baráttu sinni við
þýsku kafbátana. Minntist hann þess
þegar þýskar áróðursvélar dreifðu
bæklingum um Bretland árið 1941 sem
sögðu að Bretar væru að tapa orrust-
unni um Atlantshafið og þar með stríð-
inu. Sagði hann að það hefðu ekki verið
neinar ýkjur á þeim tíma en samhæfð-
ar aðgerðir bandamanna skilað ár-
angri að lokum. Landfræðileg staða Ís-
lands gegndi þar mikilvægu hlutverki
sem og þeir íslensku sjómenn sem
sigldu með birgðir til bandamanna í
Bretlandi á þessum tíma.
Íslenskir sjómenn færðu fórnir
Guðlaugur Þór Þórðarson, utan-
ríkisráðherra Íslands, segir í samtali
við Morgunblaðið mikilvægt að minn-
ast þeirra sem börðust fyrir komandi
kynslóðir í einni mikilvægustu orrustu
heimsstyrjaldarinnar. „Stríðið hefði
aldrei unnist hefðu menn ekki unnið
orrustuna um Atlantshafið,“ segir
Guðlaugur. „Ég er ánægður að sjá að
það er meiri meðvitund en áður um
þær fórnir sem við Íslendingar færð-
um í þessu stríði. Ekki með hefðbundn-
um hernaðarátökum heldur var mikið
af sjómönnum í mjög hættulegum sigl-
ingum frá Íslandi til Bretlands. Sigl-
ingum, sem voru mikilvægar svo að
Bretar og aðrir bandamenn okkar
gætu haldið áfram orrustunni gegn
þjóðernissósíalistunum og fasistunum
á sínum tíma,“ segir Guðlaugur.
Ísland enn landfræðilega mikilvægt
75 ár frá því að orrustunni um Atlantshafið lauk Minningarathöfn á varðskipinu Þór Ísland
gegnir enn mikilvægu hlutverki, segir aðmíráll í bandaríska sjóhernum Heræfing hefst í dag
Trident Juncture
á Íslandi
» 400 manna bandarískt land-
göngulið æfir í Sandvík.
» 120 landgönguliðar verða
fluttir með þyrlum.
» Sérsveit ríkislögreglustjóra
tekur einnig þátt í æfingunni.
» Aðalheræfingin fer fram í
Noregi í næstu viku.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Minnigarathöfn í Þór Utanríkisráðherra Íslands, Guðlaugur Þór, hélt stutta ræðu til að minnast þess að 75 ár eru
liðin frá því að orrustunni um Atlantshafið lauk. Hægra megin við Guðlaug stendur aðmírállinn James G. Foggo III.
Farið er að bera á því að erfingjar
dánarbúa séu farnir að gera sér vænt-
ingar um að skattstofn erfðafjárskatts
lækki eftir næstu áramót og óski eftir
frestum á skiptalokum fyrirliggjandi
dánarbúa fram yfir þann tíma. Þetta
kemur fram í umsögn sýslumannsins
á Austurlandi um frumvarp Óla
Björns Kárasonar og 10 annarra
þingmanna Sjálfstæðisflokks um
breytingar á erfðafjárskatti.
Þingmennirnir leggja til að erfða-
fjárskatturinn verði þrepaskiptur, 5%
af fyrstu 75 millj. kr. af skattstofni
dánarbús og 10% af skattstofni yfir 75
millj. kr. Skatturinn var hækkaður í
10% árið 2010.
Frumvarpið er nú til umfjöllunar í
efnahags- og viðskiptanefnd og er
gert ráð fyrir gildistöku 1. janúar.
Lárus Bjarnason, sýslumaður á
Austurlandi, bendir á að kveða þurfi
skýrt á um það til hvaða dánarbúa hin
breyttu lög taki og frá hvaða tíma
Leggur hann til að lagabreytingin eigi
eingöngu við um dánarbú þeirra sem
andast við eða eftir gildistöku þeirra.
Ríkisskattstjóri tekur í sama streng í
nýrri umsögn og segir mikilvægt að
skýrt komi fram hvort vilji löggjafans
standi til þess að breytingin nái ein-
ungis til skipta á dánarbúum þeirra
sem látast frá og með gildistökudegi
þ.e. 1. janúar nk. eða jafnframt til dán-
arbúa sem óskipt eru á gildistökudegi.
Mjög ósanngjörn skattlagning
Landssamband eldri borgara styð-
ur breytingarnar en telur í umsögn að
erfðafjárskattur sé mjög ósanngjörn
skattlagning. Búið sé að greiða skatt
af eignum sem hann er lagður á. Helgi
Tómasson, prófessor í hagrannsókn-
um og tölfræði við HÍ, gagnrýnir
einnig erfðafjárskattinn. Bendir hann
á að mörg nágrannalönd hafa afnumið
hann með öllu. Ætla megi að um 10
Evrópulönd séu enn með erfðafjár-
skatt og þeim fari fækkandi.
omfr@mbl.is
Vænta lækkunar
og fresta skiptum
Mörg lönd hafa afnumið erfðafjárskatt
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum að prófa nýja hluti og
bæta þjónustuna,“ segir Klara
Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ.
Athygli hefur vakið að á síðustu
leikjum íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu hefur verið seldur
pilsner, 2,25% léttbjór. Þetta var
fyrst prófað á æfingaleikjum fyrir
HM í sumar og hefur verið fram
haldið á heimaleikjum í Þjóðadeild-
inni.
Pilsnerinn er frá Víking og er
seldur í sérstökum sölubásum. Raðir
mynduðust við básana í leiknum
gegn Sviss á mánudagskvöld. Áhorf-
endur mega fara með veigarnar upp
í stúku, kjósi þeir svo. Þetta er
stefnubreyting hjá KSÍ en lengi hef-
ur verið umræða um það af hverju
hægt sé að kaupa bjór á leikjum í
öðrum löndum en ekki hér. Nú hefur
í það minnsta skref verið stigið í þá
átt.
„Þetta er náttúrlega bara sama
vara og þú getur keypt úti í búð. En
já, við erum að bregðast við ákalli í
þessum efnum. Við höfum fengið fyr-
irspurnir um það hvers vegna ekki
sé seldur bjór á Laugardalsvelli. Nú
hefur UEFA afnumið bann við sölu
áfengis á knattspyrnuleikjum. En
svo gilda líka landslög. Það hefur
ekki verið tekin nein ákvörðun um að
selja alvörubjór á leikjum enda er
líka langt í næsta leik hjá karlalands-
liðinu,“ segir Klara.
Bregðast við ákalli og selja
nú pilsner á landsleikjum
Stefnubreyting hjá KSÍ Raðir mynduðust á síðasta leik
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Barátta Alfreð Finnbogason skor-
aði eina mark Íslands gegn Sviss.