Morgunblaðið - 17.10.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Nøsted Kjetting as
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Ný
hönnun
Styrmir Gunnarsson fjallar umborgarmálin: „Það fer ekki
lengur á milli mála að það ríkir
stjórnleysi í ráðhúsinu við Tjörnina.
Það sýnir endurbygging gamalsbragga. Það sýna viðhalds-
framkvæmdir á vegum Félags-
bústaða og það sýnir kostnaður við
Mathöll á Hlemmi.
Raunar mætti nefna eitt mál enn.Hvernig stendur á því að borg-
in sinnti ekki ítrekuðum ábend-
ingum Vinnueftirlits um úrbætur á
leikskóla, lét úrslitakosti þeirrar
stofnunar, sem vind um eyru þjóta
og kallaði yfir sig dagsektir!
Þetta mál er líklegt til að hafapólitískar afleiðingar, þótt ekki
sé ljóst á þessari stundu hverjar þær
verða.
Það verður athyglisvert að fylgj-ast með viðbrögðum samstarfs-
flokka Samfylkingar í meirihluta
borgarstjórnar.
Ákveða þeir allir að taka á sigábyrgð á þessum vinnubrögð-
um?
Verður bakland þeirra flokkasátt við það?
Það má búast við spennu á fund-um borgarstjórnar á næstu vik-
um og mánuðum.“
Þetta er einmitt stóra spurningin í
dag: Hvað gera samstarfslokkar
Samfylkingarinnar?
Hvað gera sam-
starfsflokkarnir?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Mannanöfn kunna við fyrstu sýn að
þykja heldur léttvæg þegar rætt er
um þjóðtungu Íslendinga og tilraunir
til þess lengja í henni lífið. Svo er þó
ekki. Sennilega er
enginn einn þátt-
ur mikilvægari,“
segir Sigurður
Konráðsson, for-
maður manna-
nafnanefndar.
Í athugasemd
við frumvarp til
nýrra laga um
mannanöfn segir
Sigurður að frum-
varpið sé „örstutt
en einn glundroði“. Hann segir að á
undanförnum árum hafi Alþingi sýnt
eftirtektarverðan vilja til þess að ís-
lenskt mál verði enn um sinn þjóð-
tunga Íslendinga. Því telur hann að
þingmenn ættu að gefa því gaum að
mannanöfn séu hluti af íslensku mál-
kerfi, þau styrki merkingargrundvöll
tungunnar með því að fólk velti fyrir
sér merkingu eigin nafns og annarra
auk þess sem mannanöfn gegni viða-
miklu hlutverki í bókmenntum þjóð-
arinnar, náttúrufræði og sagnfræði.
Sigurður, sem er prófessor í íslenskri
málfræði, telur að hætta sé á að þetta
glatist verði umrædd lög að veruleika.
Eins og fram hefur komið fela nýju
lögin það í sér að mannanafnanefnd
verður lögð niður, nái þau fram að
ganga.
„Lög um mannanöfn eru regla en
ekki undantekning þegar litið er til
ríkja veraldar og eru ekki alls staðar
silkihanskar dregnir á hönd þegar
kemur að framkvæmd laganna. Loks
mættu þeir íhuga hvort hin venjulegu
Jón og Guðrún kærðu sig um að
skiptast á nöfnum, hvort þau sæktust
eftir því að skaftfellskur nágranni
þeirra héti ornbg& b ^ i^ o B o eða
börnin Q og e=mc2,“ segir í athuga-
semd Sigurðar.
Frumvarpið
„einn glundroði“
Formaður mannanafnanefndar ósáttur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Börn Ný lög um mannanöfn eru til
umræðu á Alþingi þessi dægrin.
Sigurður
Konráðsson
„Nefndin er ráðherra til ráðgjafar.
Hún getur sent okkur þau málefni
sem hún telur að eigi erindi til okkar
og beðið um álit,“ segir Rán Tryggva-
dóttir, formaður höfundarréttar-
nefndar. Í Morgunblaðinu í gær var
haft eftir Lilju Alfreðsdóttur,
mennta- og menningarmálaráðherra,
að hún teldi við hæfi að höfundarrétt-
arnefnd tæki til umfjöllunar afdrif
lágmyndar Sigurjóns Ólafssonar á
vegg hússins í Síðumúla 20. Eigandi
hússins, Eik fasteignafélag, lét klæða
veggi þess og huldi þar með verkið.
Auk þess var gluggi settur í gegnum
verkið. Rétthöfum höfundarréttar
var ekki gert viðvart um þetta og
þeim gafst því ekki kostur á að skrá
verkið eða taka af því mót.
Rán segir að ekki hafi borist ósk
frá menningarmálaráðherra um að
mál þetta verði tekið fyrir hjá nefnd-
inni. Hún kveðst þó sjálf munu ræða
það á næsta fundi nefndarinnar.
„Þetta mál vekur spurningar. Annars
vegar um menningararfinn og fegurð
borgarinnar og hins vegar eignar-
hald. Ég held að það séu því miður
ekki ákvæði í höfundalögum um að
það eigi að gera höfundi eða erf-
ingjum viðvart. Það er kannski eitt-
hvað sem þyrfti að íhuga,“ segir Rán.
„Ég tel persónulega að þetta sé mikil
synd og sýnir að það vantar meiri
fræðslu og virðingu fyrir höfundar-
rétti.“ hdm@mbl.is
Skortur á virðingu fyrir höfundarrétti
Formaður höfundarréttarnefndar hyggst ræða afdrif lágmyndar Sigurjóns
Morgunblaðið/Guðmundur Ingólfsson
Lágmynd Svona leit verkið út.