Morgunblaðið - 17.10.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
• Bolir
• Túnikur
• Blússur
• Peysur
• Vesti
• Jakkar
• Buxur
1988 - 2018
Nýjar glæsilegar
haustvörur
Eigum alltaf vinsælu bómullar-
og velúrgallana í stærðum S-4XL
An extraordinary general meeting of CCP ehf., company no. 450697-3469, will
be held on 24 October 2018 at the company’s headquarters at Grandagarður
8, 101 Reykjavík, starting at 08:00 GMT.
AGENDA:
The agenda for the meeting shall be the following:
Election of Board of Directors.
Amendments to the Articles of Association.
The main purpose of the amendments is to change the number of board
directors and merge the share classes of the company.
Other business lawfully brought to the meeting.
Reykjavík, 16 October 2018
CCP‘s Board of Directors
1.
2.
EXTRAORDINARY GENERAL
MEETING OF CCP EHF.
3.
Eiríkur Briem, fyrr-
verandi fram-
kvæmdastjóri, lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans 12.
október síðastliðinn.
Eiríkur fæddist í
Reykjavík 30. janúar
1948, sonur hjónanna
Eiríks Briem raf-
magnsverkfræðings
og Maju-Gretu Briem.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
og prófi í rekstrar-
hagfræði frá háskól-
anum í Linköping 1978.
Eiríkur vann við línumælingar og
áætlanagerð hjá RARIK í sumar-
vinnu frá 1965 til 1974. Að háskóla-
námi loknu starfaði hann sem
rekstrarhagfræðingur hjá RARIK
og síðan sem fjármálastjóri Raf-
magnsveitu Reykjavíkur frá 1980-
1987. Eiríkur starfaði hjá RARIK
frá árinu 1987-2004, lengst af sem
framkvæmdastjóri fjármálasviðs og
sem staðgengill rafmagnsveitu-
stjóra. Eiríkur starfaði sem fram-
kvæmdastjóri hjá Landsneti frá
2004 til starfsloka.
Eiríkur gegndi fjöl-
mörgum nefndar- og
trúnaðarstörfum á
sviði raforkumála,
bæði innanlands og er-
lendis. Hann sat t.d. í
framkvæmdaráði og
var fulltrúi RARIK í
ýmsum nefndum, m.a.
hjá Sambandi ís-
lenskra rafveitna og
síðar Samorku.
Eiríkur var virkur í
pólitísku starfi og tók
m.a. þátt í stofnun
Bandalags jafnaðar-
manna snemma á níunda áratug 20.
aldar, sinnti trúnaðarstörfum fyrir
Alþýðuflokkinn og kom að stofnun
Viðreisnar. Eiríkur tók þátt í ýmsum
félagsstörfum t.d. Round Table á Ís-
landi og sat í sóknarnefnd Áskirkju.
Eftirlifandi eiginkona Eiríks er
Guðrún Ragnarsdóttir Briem þjóð-
félagsfræðingur. Börn þeirra eru
Maj-Britt, Eiríkur og Katrín og
barnabörnin eru níu talsins.
Útför Eiríks verður gerð frá Ás-
kirkju mánudaginn 29. október nk.
og hefst athöfnin klukkan 13.
Andlát
Eiríkur Briem
Stjórn Félags fornleifafræðinga hef-
ur sent Morgunblaðinu eftirfarandi
athugasemd sem Sólrún Inga
Traustadóttir, formaður félagsins,
ritar undir:
„Stjórn Félags fornleifafræðinga
undrast gagnrýni í fréttaflutningi
Morgunblaðsins um aðgang að gögn-
um í vörslu stjórnanda fornleifa-
rannsóknar á Landssímareitnum og
hefði talið nærtækast að blaðið nýtti
strax lögformlegar heimildir sínar til
að fá þær upplýsingar sem það á rétt
á hjá stjórnvöldum. Er engu líkara
en blaðamaður hafi talið sig eiga
heimtingu á vinnuskjölum og úr-
vinnslugögnum fornleifafræðings,
s.s. ljósmyndum og gripum, löngu
áður en rannsókninni er lokið.
Samkvæmt upplýsingum frá
Minjastofnun Íslands er fornleifa-
rannsókn á Landssímareit ekki
formlega lokið og ekki hefur verið
gerð krafa um skil á lokaskýrslu.
Stjórn Félags fornleifafræðinga tel-
ur að fréttaflutningurinn beri keim
af deilum um framtíð reitsins og er
þar vegið ómaklega að félagsmanni.
Krefst greininga og túlkunar
Fornleifarannsókn krefst ítar-
legra greininga og túlkunar á öllum
þeim gögnum sem safnað er á vett-
vangi og henni telst ekki endanlega
lokið fyrr en öllum gögnum og grip-
um hefur verið skilað til Þjóðminja-
safns Íslands ásamt rannsóknar-
skýrslum til Minjastofnunar, sbr. 40.
gr. laga um menningarminjar og
reglur um veitingu leyfa til fornleifa-
rannsókna nr. 339/2013.
Fyrir þá sem þekkja starfsum-
hverfi fornleifafræðinga ætti ekki að
koma á óvart að aðstæður rannsókna
sem farið er í vegna byggingafram-
kvæmda breytast í sífellu og forn-
leifafræðingar þurfa að aðlaga
starfsumhverfi sitt samkvæmt því.“
Morgunblaðið/Hari
Landssímareitur Þarna á að rísa hótel á vegum Icelandair hótela.
Rannsókn á Lands-
símareit ekki lokið
Aðstæður rannsókna breytast í sífellu
Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda verður haldinn á Grand hót-
eli í Reykjavík á morgun og föstudag. Axel Helgason, formaður LS, setur
þingið klukkan 13 á morgun og Örn Pálsson framkvæmdastjóri flytur
skýrslu áður en Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra ávarpar
fundinn. Þinginu lýkur á föstudag með kjöri formanns, en ekki er vitað um
önnur framboð en Axels.
Örn Pálsson segir að mörg mál brenni á smábátasjómönnum um þessar
mundir og nefnir í því sambandi veiðigjöldin, en frumvarp um þau liggur
fyrir Alþingi. Þá nefnir hann hugmyndir um kvótasetningu grásleppu,
línuívilnun og hvort leyfa eigi bátum í krókaaflamarki að veiða jafnframt í
net. Tillaga þess efnis var lögð fyrir síðasta þing smábátasjómanna og
skiptust fulltrúar í tvær nánast jafn stórar fylkingar.
Margt sem brennur á smábátasjómönnum
Atvinna