Morgunblaðið - 17.10.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Fólk er þegar farið að sendaokkur skilaboð þar semþað vill bóka gistingu héreinvörðungu vegna katt-
arins, það vill koma sérstaklega til að
heilsa upp á hann og spyr hvaða tími
sé bestur, svo það hitti köttinn örugg-
lega. Fyrsta spurning margra gesta
okkar við innritun á hótelið er: „Hvar
er kötturinn?“ Enda hefur hann náð
ótrúlegri frægð, greinar hafa verið
skrifaðar um köttinn í fjölmiðlum í
Rússlandi, Taívan, Singapúr, Bangla-
desh, Tyrklandi og í fréttum í heima-
landi okkar Ungverjalandi. Í morgun
vorum við í viðtali á einni af stærstu
útvarpsstöðvunum í Ungverjalandi
og við erum að fara í skype-viðtal á
eftir hjá ungverskri sjónvarpsstöð og
annað sjónvarpsviðtal á morgun.
Auk þess hefur kisa sinn eigin
Instagram-reikning undir nafninu
pal.the.mousekeeper, og fylgjendum
þar hefur fjölgar mjög hratt, núna
eru þeir tæplega sex þúsund. Mynd
sem við deildum af kettinum á face-
booksíðunni Spottaði kött, fór um
víða veröld og hefur fengið mörg þús-
und læk,“ segir Dániel Puskás en
hann og kærasta hans, Zsuzsi Szabó,
eru eigendur þessa víðfræga hótel-
kattar á Hellnum á Snæfellsnesi, þar
sem þau eru öll starfsmenn.
Sótti kettlinginn í rigningu
Kötturinn er bröndótt læða sem
ber nafnið Pál Dáníelsdóttir.
„Pál starfar hér sem músavörð-
ur (mousekeeper) og hefur fengið
formlegt starfsmannakort eins og
aðrir starfsmenn hótelsins,“ segir
Dániel en hann fluttist til Íslands árið
2016.
„Þegar kærastan mín flutti til
mín skömmu síðar þá saknaði hún
mikið kisu sinnar sem hún átti heima
í Ungverjalandi, svo ég ákvað að gefa
henni nýjan kött. Ég vildi koma henni
á óvart svo þetta var allt mjög leyni-
legt, en stelpa sem vann með mér á
hótelinu á Núpum vissi um kettlinga
á bæ sem heitir Tún og er rétt utan
við Selfoss. Þangað fór ég á miklum
rigningardegi og sótti kettling, litla
læðu og færði kærustunni. Hún varð
mjög hissa og glöð og við gáfum kisu
litlu nafnið Pál. Nafnið kemur frá
Ungverjalandi og er karlkyns, rétt
eins og Páll á íslensku, en það er ekki
óalgengt í okkar heimalandi að gefa
læðum karlkyns nöfn, til gamans.
Auk þess er persóna í þáttunum
Family Guy sem heitir Pál.“
Alin upp af tvö
hundruð manns
Þegar Dániel er spurður að því
hverskonar persónuleiki Pál sé, hvort
kötturinn sé kannski óargadýr,
grimmur músamorðingi, segir hann
að læðan sú sé ljúf sem lamb og ein-
staklega mikið fyrir fólk.
„Sem kemur sér vel hér á hótel-
inu þar sem kemur fjöldi gesta víða
að úr heiminum. Og fyrir vikið er læð-
an okkar alin upp af um tvö hundruð
manns, hinu ólíkasta fólki sem hefur
gefið sig að henni frá því hún kom til
okkar. Kötturinn er því orðinn sleip-
ur í mörgum tungumálum og hefur
glatt marga á sinni stuttu ævi. Þetta
er mjög elskaður köttur, það er ekki
hægt að segja annað.“
Dániel segir að hann og kærast-
an hans, Zsuzsi, fari stundum út í
göngutúra og þá trítli kötturinn
gjarnan með, enda njóti hann þess að
uppgötva ný svæði.
„Þá verður ýmislegt kvikt á vegi
okkar, til dæmis hefur hún rekist á
seli í flæðarmálinu, en hún var ekki
mjög hrifin af þeim, hún virtist eiga
erfitt með að gera upp við sig hvers-
konar skepnur þetta væru, stórir
kettir eða eitthvað annað,“ segir
Dániel og hlær.
Með tvær mýs í kjaftinum
Dániel segir Pál vera frjálsa
allra sinna ferða, inni og úti og að hún
sinni starfi sínu sem músavörður af
mikilli natni. „Þegar við fluttum hing-
að að Hellnum í janúar var eitthvað af
músum, en Pál hefur séð um að
fækka þeim og nú er lítið um mýs hér.
En þegar við unnum á Núpum var
mikið að gera hjá Pál, stundum kom
hún með tvær mýs í einu í kjaftinum,
hún var mjög afkastamikill veiðikött-
ur. En nú lætur hún duga að veiða
fugla, vissulega fer hún þar út fyrir
starfssvið sitt, en þetta er hennar
eðli.“
Kötturinn Pál er ofdekruð
skepna og auðvitað gat slíkur starfs-
maður á plani ekki verið án þess að
eiga góða peysu.
„Móðir kærustu minnar prjónaði
á kisuna lopapeysu, um leið og hún
prjónaði peysur á okkur tvö. Það var
ekki hægt að skilja hana útundan. En
hún er ekkert sérstaklega hrifin af
því að klæðast þessari peysu, ég held
henni sé allt of heitt í henni, enda hef-
ur hún sinn feld til að veita sér skjól.“
Á veiðum Pál leitar músa og fugla á vappi úti í náttúrunni. Stolt Hótelstjóri verðlaunar Pál sem starfsmann mánaðarins. Værð Veiðiklóin Pál kann að láta fara vel um sig og slaka á.
Köttur heimsfrægur starfsmaður
Kötturinn Pál er í fullu
starfi sem músavörður á
Fosshóteli á Hellnum á
Snæfellsnesi. Köttur þessi
er afar félagslyndur og
talar mörg tungumál og
dregur að gesti frá öllum
heimshornum.
Fjölskylda Dániel og kærastan, Zsuzsi, með Pál Dánielsdóttur í lopapeysunni góðu. Göngutúr Pál virðir fyrir sér sel og undrast.
Músavörður Starfsmannakort Pál.
Ljósmyndir/Dániel Puskás