Morgunblaðið - 17.10.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fram kom í máli Ingólfs Bender,
aðalhagfræðings Samtaka iðnaðar-
ins (SI), á fundi SI og Félags við-
skipta- og hagfræðinga í gær að
samkvæmt nýrri talningu SI eru nú
4.845 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu í
smíðum. Það eru 752 eða 18% fleiri
íbúðir en voru í byggingu í mars sl.
Þar af eru 4.466 íbúðir, eða 92%
allra íbúða í byggingu, í fjölbýli.
Fjölgun íbúða í byggingu er hlut-
fallslega mest í Reykjavík en þar
eru nú 629 fleiri íbúðir í byggingu
en í mars, sem er 36% aukning.
Að sögn Ingólfs er sú aukning
fyrst og fremst á þremur reitum,
þ.e. Valsreit á Hlíðarenda, RÚV-reit
og Spönginni í Grafarvogi.
Séu nágrannasveitarfélögin talin
með eru samtals 5.799 íbúðir í bygg-
ingu á höfuðborgarsvæðinu og í ná-
grenni þess. Það eru um 19% fleiri
íbúðir en í talningu SI í mars.
Lóðaskortur ýtir upp verði
Ingólfur segir skort á nýjum
íbúðum eina helstu skýringuna á því
að íbúðaverð hefur hækkað umfram
laun síðan 2016. Lóðaskortur sé
meginástæða lítils framboðs nýrra
íbúða. Sú takmörkun á framboði
hafi því verið stór þáttur í verð-
þróuninni.
Þá segir Ingólfur margt benda til
þess að flækjustig við mannvirkja-
gerð sé hærra hér á landi en í ná-
grannalöndum. Til dæmis sé Ísland
í 64. sæti af 190 löndum þegar kem-
ur að því að reisa
mannvirki.
Með þetta í
huga sé brýnt að
einfalda reglu-
verk til muna og
gera það sveigj-
anlegra til að
draga úr töfum
og kostnaði við
byggingu íbúðar-
húsnæðis. Núverandi fyrirkomulag í
kringum bygginga- og mann-
virkjagerð sé óskilvirkt. Boðleiðir
séu langar og ákvarðanataka tíma-
frekari en annars væri. Það leiði aft-
ur til aukins kostnaðar við byggingu
húsnæðis.
Sama regluverk fyrir bílskúr
og hátæknisjúkrahús
Máli sínu til stuðnings bendir
Ingólfur á að umfang byggingar-
eftirlits hér á landi sé hið sama óháð
því hvernig mannvirki er verið að
byggja. Þannig geri regluverkið ráð
fyrir sama ferli hvort sem verið er
að byggja bílskúr eða hátækni-
sjúkrahús, svo dæmi sé tekið.
Að loknu erindi sínu var Ingólfur
spurður hvort fækkun íbúða sem
leigðar eru til ferðamanna og brott-
flutningur erlends vinnuafls gæti
haft áhrif á fasteignaverð.
Sagði Ingólfur hugsanlegt að
nafnverð fasteigna gæti lækkað á
höfuðborgarsvæðinu ef framboðið
ykist umtalsvert vegna slíkra þátta.
Fram hefur komið að töluvert
færri Airbnb-íbúðir voru skráðar á
Íslandi í sumar en sumarið 2017.
Þunglamalegt kerfi
hækkar íbúðaverðið
Ingólfur Bender
SI gagnrýna leyfisveitingakerfið
Lof mér
að falla
Styrktar-
sýning
Fimmtudaginn 18. október
Háskólabíó kl. 20.50
Borgarbíó kl. 17
Styrktu skaðaminnkunarverkefni
Rauða krossins um 1900 kr. með því
að senda „Takk“ í númerið 1900.
Frú Ragnheiður
Ungfrú Ragnheiður
á Akureyri
Konukot
Allur aðgangseyrir rennur
til skaðaminnkunarverkefna
Rauða krossins
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@mbl.is
Ekki er til staðar byggingarleyfi og
enn hefur ekki verið sótt um slíkt leyfi
fyrir byggingaframkvæmdum vegna
stækkunar City Park Hótel við Ár-
múla 5 í Reykjavík. Þrátt fyrir það
hefur vinna staðið yfir við stækkunina
um tíma, en verið er að bæta við 27
herbergjum. Fyrir voru herbergin 57,
en ljúka átti framkvæmdum fyrir jól.
Starfsmenn frá byggingarfulltrúa í
Reykjavík fóru á vettvang á mánudag
til að stöðva framkvæmdir, en Vinnu-
eftirlitið hafði þá bannað alla vinnu frá
og með 12. október, þar sem veigamik-
il öryggisatriði voru í ólagi og öryggis-
stjórnunarkerfi á verkstað ófullnægj-
andi.
Í skýrslu Vinnueftirlitsins segir
meðal annars að ástand rafmagns-
mála á verkstað sé mjög hættulegt.
Rafmagnssnúrur séu hangandi niður
úr loftum og ótryggir rafmagnskaplar
milli hæða og í rafmagnstöflu. Þá séu
óvarin op í gólfi, fallvarnir ekki til stað-
ar og starfsmenn hvorki í öryggis-
skóm né með hjálma við vinnu. Í
skýrslunni kemur einnig fram að
byggingarleyfi sé ekki til staðar og að
merki séu um að starfsmenn sofi og
hafist við á vinnustaðnum.
Árni Valur Sólonsson, eigandi City
Park Hótel, viðurkenndi í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði greini-
lega ekki staðið rétt að öllum aðbún-
aði. „Þetta eru ýmis smáatriði sem ég
þarf að kippa í liðinn,“ sagði Árni Val-
ur.
Þau atriði sem gerðar eru athuga-
semdir við virðast þó ekki vera nein
smáatriði, líkt og hann heldur fram.
Að byggingarleyfi sé til staðar er til að
mynda grundvallaratriði þegar kemur
að ráðast í framkvæmdir. Það fékkst
staðfest hjá embætti byggingarfull-
trúa Reykjavíkur að aldrei hefur verið
sótt um leyfi fyrir stækkun hótelsins í
Ármúla.
„Það er númer eitt, tvö og þrjú að
hafa byggingarleyfi til að geta hafið
framkvæmd,“ segir Særún Jónasdótt-
ir, skrifstofufulltrúi hjá embætti bygg-
ingarfulltrúa. „Þetta kemst yfirleitt
upp þegar nágrannar fara að kvarta.
Þá er þetta skoðað. Það er því enginn
hagur að því að sækja ekki um.“ Að
hennar sögn hefur byggingarfulltrúi
ekki mannafla í að skoða allar fram-
kvæmdir en þegar ábendingar koma
sé brugðist skjótt við, líkt og í um-
ræddu tilfelli.
Særún segist ekki geta svarað því
hvort það geti gleymst að sækja um
leyfi eða hvort það sé ekki gert af
ásetningi. Það sé eflaust allur gangur
á því. Það vakni þó stundum grunur
um að menn kjósi það að sækja ekki
um leyfi, enda þurfi að uppfylla ákveð-
in skilyrði til að leyfið fáist. „Þá þarf að
fá byggingarstjóra, meistara og teikn-
ingar og greiða útreiknuð gjöld. Það
eru frumskilyrðin fyrir því að byrja á
framkvæmdum,“ útskýrir hún.
Til að hægt sé að hefja framkvæmd-
ir aftur við stækkun hótelsins þarf að
sækja um leyfi og það að fást, en jafn-
framt gera þær úrbætur sem Vinnu-
eftirlitið gerir kröfu um. „Hann fær
ekkert að halda áfram fyrr en leyfið er
komið,“ segir Særún.
Sóttu aldrei um leyfi fyrir
stækkun City Park Hotel
Byggingarfulltrúi lét stöðva framkvæmdir á staðnum
Morgunblaðið/Hari
Bygging Vinnueftirlitið og embætti byggingarfulltrúa í Reykjavík hafa
þurft að hafa afskipti af óleyfisframkvæmd við hótel í Ármúla.