Morgunblaðið - 17.10.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Lífeyrissjóðurinn Lífsverk hefur
náð samkomulagi við félagið Íbúðir
eldri borgara í Mörk ehf., sem er í
eigu Grundar, um fjármögnun á
allri nýframkvæmd félagsins á Suð-
urlandsbraut 68-70. Með aðkomu
lífeyrissjóðsins að uppbyggingunni
er sjóðfélögum hans tryggður for-
gangur að hluta íbúðanna sem nú
þegar hafa verið reistar.
„Þetta er framkvæmd sem felur í
sér 74 nýjar íbúðir. Leitað var til
sjóðsins um mögulega aðkomu að
fjármögnun verkefnisins. Við sáum
tækifæri í því að fjármagna það
einfaldlega í heild og þá á þeim for-
sendum að við gætum tryggt okkar
sjóðfélögum ákveðinn forgang að
húsnæðinu,“ segir Jón L. Árnason,
framkvæmdastjóri Lífsverks.
Tíu fyrst, aðrar tíu síðar
Íbúðirnar eru nú þegar allar í út-
leigu. Hins vegar felur samning-
urinn í sér að næstu 10 íbúðir sem
losna muni ganga til sjóðfélaga
Lífsverks. Þegar sá kvóti hefur ver-
ið fylltur munu næstu 10 íbúðir sem
losna ganga til annarra sem eru á
biðlista. Þegar sá kvóti hefur verið
fylltur munu næstu 10 íbúðir sem
losna þar á eftir renna til sjóð-
félaga.
„Þetta er ágætt fyrirkomulag en
allir sjóðfélagar sem eru 60 ára og
eldri geta sótt um íbúðir í húsnæð-
inu. Af tæplega 5.000 sjóðfélögum
okkar eru aðeins 419 þeirra á elli-
lífseyrisaldri. Fleiri eru sannarlega
60 ára og eldri en þarna getum við
þjónustað hluta þeirra og jafnvel
stóran hluta þeirra sem vilja nýta
sér þjónustu af þessu tagi,“ segir
Jón.
Fjármögnunin felur í sér fjár-
mögnun til 30 ára og nemur heild-
arfjárhæðin um 1,6 milljörðum
króna. Er lánveitingin í formi veð-
tryggðra skuldabréfa.
„Við teljum okkur vera að fá
góða ávöxtun í þessari fjárfestingu
og þetta er mjög traustur eigna-
flokkur,“ segir Jón en spurður út í
hvort sjóðurinn þurfi að gefa afslátt
af kjörunum vegna forgangs sjóð-
félaga að íbúðunum segir hann að
ekki þurfi að líta svo á.
„Ávöxtunin er góð en báðir aðilar
njóta einnig góðs af því að það er
mun einfaldara að við lánum ein til
verkefnisins en ef fleiri aðilar hefðu
haft aðkomu þar að.“
Heildareignir Lífsverks eru í dag
um 85 milljarðar króna og því nem-
ur fjármögnun verkefnisins um
1,9% af eignasafninu.
Nýstárleg leið
Jón segir að forsvarsmenn sjóðs-
ins hafi reynt að grafast fyrir um
eldri dæmi þess að lífeyrissjóðir
hafi stigið skref af þessu tagi.
„Við höfum ekki fundið nein
dæmi þess. Við höfum hins vegar
eins og aðrir sjóðir heyrt af gagn-
rýni þess efnis að lífeyrissjóðir
megi gera meira fyrir sína eldri
sjóðfélaga. Þetta er ágæt leið til
þess þar sem enginn afsláttur er
gefinn af þeirri meginreglu að há-
marka arðsemi fjárfestinganna.“
Hann segir að það fordæmi sem
Lífsverk setji með þessu verkefni
geti mögulega orðið fyrirmynd að
frekari aðkomu sjóðsins og annarra
að fjármögnun á þessum forsend-
um. Nú stendur fyrir dyrum að
kynna þessa leið fyrir sjóðfélögum
og á næstu vikum mun koma í ljós
hver eftirspurnin eftir íbúðunum
verður.
Sjóðfélagar fá forgang
Íbúðir Mikil uppbygging hefur verið í Mörkinni á undanförnum árum.
Lífsverk lífeyrissjóður fjármagnar byggingu 74 íbúða til 30 ára Sjóðfélagar
hafa forgang að 20 íbúðum í húsnæðinu Sögð ný leið til þjónustu við sjóðfélaga
Taka höndum saman
» Sjóðfélagar Lífsverks geta
skráð sig á biðlista eftir íbúð-
um hjá sjóðnum.
» Sjóðurinn hefur milligöngu
um úthlutun íbúðanna á grund-
velli forgangs sem samið hefur
verið um.
» Fyrstir koma, fyrstir fá verð-
ur reglan við úthlutun á for-
gangslistanum.
fyrr í mánuðinum var sagt að með
nýju mati myndi liggja fyrir hlut-
höfum að leggja mat á og taka af-
stöðu til þess hvort viðskiptin
væru hagfelld fyrir HB Granda.
Tillagan væri þá meðal annars
lögð fram í ljósi þess að aðaleig-
andi seljanda, Guðmundur Krist-
jánsson, sé á sama tíma forstjóri
HB Granda og stærsti hluthafi fyr-
irtækisins. Markmið tillögunnar
væri því að tryggja að ákvörð-
unartakan væri hafin yfir allan
vafa.
Í tilkynningu HB Granda segir
að þess verði nú farið á leit við
fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka hf.
að við verðmatið verði m.a. lagt
mat á það hversu vel rekstur Ög-
urvíkur ehf. fellur að rekstri HB
Granda hf. þannig að um góðan
fjárfestingarkost sé að ræða og
hvort slík samþætting sé ákjós-
anleg fyrir HB Granda hf. „Í þessu
samhengi skal m.a. leggja mat á
samlegðaráhrif vegna fyrirhug-
aðra kaupa félagsins á Ögurvík
ehf. og mat lagt á rekstrarvirði
Ögurvíkur ehf. í hendi HB Granda
hf. að teknu tilliti til þeirra.“
Hluthafafundur HB Granda sam-
þykkti í gærkvöldi tillögu Gildis
lífeyrissjóðs um að nýtt mat fari
fram vegna kaupa HB Granda á
Ögurvík ehf. áður en hluthafar
taki endanlega afstöðu til tillögu
stjórnar um að staðfesta ákvörðun
hennar um viðskiptin.
Í tilkynningu HB Granda segir
að framhaldshluthafafundur verði
haldinn 2. nóvember nk., en áður
muni hluthöfum verða kynnt mat
Kviku banka hf. á áformunum.
Í greinargerð með tillögu Gildis
Samþykkt að Kvika meti Ögurvík
Aftur hluthafafundur 2. nóvember
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mat Rekstarvirði Ögurvíkur í hendi
HB Granda verður metið.
● Flugfélagið WOW air hyggst hefja
flug á ný til Tel Aviv Ísrael í júní á næsta
ári en í lok þessa mánaðar voru síðustu
ferðir félagsins á dagskrá í bili. Í tilkynn-
ingu frá flugfélaginu kemur fram að
flogið verði fjórum sinnum í viku, frá
þriðjudegi til fimmtudags, og á laug-
ardögum. Flug hefst 11. júní 2019 og
stendur til boða út októbermánuð það
ár en sala flugsæta hefst í dag kl. 10.
„Við erum ánægð með að geta hafið
flug til Ísraels að nýju. Við finnum fyrir
miklum áhuga á flugleiðinni. Bæði hafa
Ísraelar mikinn áhuga á að heimsækja
Ísland auk þess sem tengingin við
Norður-Ameríku undirstrikar okkar sér-
stöðu á markaðnum,“ segir Skúli Mog-
ensen, forstjóri og stofnandi WOW air, í
tilkynningu. peturhreins@mbl.is
WOW air selur flugferðir
til Tel Aviv á ný
17. október 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 115.59 116.15 115.87
Sterlingspund 152.08 152.82 152.45
Kanadadalur 88.78 89.3 89.04
Dönsk króna 17.962 18.068 18.015
Norsk króna 14.183 14.267 14.225
Sænsk króna 12.905 12.981 12.943
Svissn. franki 117.28 117.94 117.61
Japanskt jen 1.0337 1.0397 1.0367
SDR 161.47 162.43 161.95
Evra 134.03 134.77 134.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.333
Hrávöruverð
Gull 1233.0 ($/únsa)
Ál 2044.5 ($/tonn) LME
Hráolía 81.0 ($/fatið) Brent
● Fiskafli íslenskra skipa í september
nam 108.011 tonnum og var 14% minni
í ár en á sama tíma í fyrra. Skýrist
breytingin að mestu leyti af minni upp-
sjávarafla. Þetta kemur fram á vef Hag-
stofunnar. Botnfisksafli var 7% meiri í
september í ár en í fyrra og nam 35
þúsund tonnum, þorskafli var 21 þús-
und tonn og var 3% minni. Þá dróst
uppsjávarafli saman um 23% og nam
69 þúsund tonnum. Af uppsjávarteg-
undum veiddist mest af markíl eða um
54 þúsund tonn. Á tólf mánaða tímabili,
frá október 2017 til september 2018,
nam heildaraflinn 1.253 þúsund tonn-
um sem er 11% aukning m.v. sama
tímabil ári fyrr. peturhreins@mbl.is
Fiskafli í september
dróst saman um 14%
STUTT