Morgunblaðið - 17.10.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
V ð f á
2024 SLT
L iðLé t t ingur
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@ jotunn.is // www. jotunn.is
er r
2.890.000
án vsk.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Egypskar hersveitir segjast hafa
drepið 450 íslamska vígamenn í um-
fangsmiklum aðgerðum gegn Ríki
íslams á Sínaískaga, en þær hafa nú
staðið yfir í átta mánuði. Er það
fréttaveita AFP sem greinir frá.
Hernaðaraðgerðir Egyptalands á
Sínaískaga gegn vígamönnum Ríkis
íslams hófust í kjölfar þess að þeir
gerðu skot- og sprengjuárás á
mosku í norðurhluta Sínaískaga í
nóvember 2017. Haft var eftir sjón-
arvottum að árásarmennirnir hefðu
umkringt moskuna á fjórhjólum og
sprengt sprengju fyrir utan hana.
Þeir kveiktu einnig í bílum mosku-
gesta til að koma í veg fyrir að fólk
gæti flúið og hófu skothríð á skelf-
ingu lostið fólk sem reyndi að kom-
ast undan. Forseti Egyptalands lýsti
í kjölfarið yfir þriggja daga þjóðar-
sorg vegna blóðsúthellinganna, en
alls létust nokkuð yfir 300 manns.
Hundruð liggja í valnum
Tamer al-Rifai, talsmaður her-
sveita Egyptalands, segir 450 íslam-
ista hafa fallið í aðgerðum hersins og
lögreglu á norður- og miðhluta Sín-
aískaga síðastliðna átta mánuði.
Samkvæmt opinberum tölum hafa
30 hermenn fallið í átökunum til
þessa.
Vígamenn Ríkis íslams og ann-
arra öfgahópa þeim hliðhollra hafa
orðið hundruðum her- og lögreglu-
manna að bana í árásum á Sínaí-
skaga undanfarin ár. Árásum á ör-
yggissveitir tók mjög að fækka 2017
þegar þeir lögðu meiri áherslu á að
ráðast á óbreytta borgara, meðal
annars súfa, sem íslamistar saka um
villutrú, kristna Egypta og bedúína
sem þeir saka um að starfa með ör-
yggissveitum á svæðinu. Þá greinir
fréttaveita AFP frá því að eitthvað
hafi borið á kvörtunum mannrétt-
indahópa á svæðinu vegna aðgerða
hersins. Talsmaður hersveita
Egyptalands gerir þó lítið úr því.
„Allar loftárásir hersins eiga sér
stað á svæðum sem eru utan þétt-
býlissvæða,“ hefur AFP eftir hon-
um. Segir hann herinn einnig veita
íbúum svæðisins mannúðaraðstoð.
Fjölmiðlum hefur til þessa verið
meinaður aðgangur að þeim svæðum
þar sem átökin standa yfir.
Menn Ríkis íslams stráfelldir
Egypskar hersveitir segjast hafa drepið 450 vígamenn á átta mánuðum Átök-
in eiga sér stað á Sínaískaga Blossuðu upp í kjölfar árásar íslamista á mosku
AFP
Hermáttur Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands (t.v.), var viðstaddur minningarathöfn um fallna hermenn sem
haldin var í Moskvu, höfuðborg Rússlands, í gær. Hersveitir hans hafa undanfarið skipst á skotum við Ríki íslams.
Byltingarverðirnir, úrvalssveitir
klerkastjórnarinnar í Íran, segjast
hafa framkvæmt 700 drónaárásir á
liðsmenn Ríkis íslams í Sýrlandi.
„Sprengjudrónar okkar hafa 700
sinnum beitt snjallsprengjum gegn
Ríki íslams,“ hefur fréttaveita AFP
eftir íranska hershöfðingjanum
Amirali Hajizadeh. „Drónarnir
voru nýttir til árása á skriðdreka,
brynvarða bíla, ökutæki sem nýtt
eru til sjálfsvígsárása og 23 mm
fallbyssur – allt voru þetta skot-
mörk sem Ríki íslams sér mjög eftir
og með því að eyðileggja þau höfum
við haft mikil áhrif á gang mála.“
Fréttaveita AFP segir byltingar-
verðina seinast hafa gert drónaárás
gegn Ríki íslams 1. október síðast-
liðinn. Nýttu sveitirnar þá sjö
sprengjudróna og sex stýriflaugar.
Var um að ræða hefndaraðgerð
fyrir mannskæða árás í september,
en þá réðust vígamenn á hóp ír-
anskra hermanna á hersýningu.
Klerkastjórnin í Íran er einn
helsti bandamaður Bashars al-
Assads Sýrlandsforseta og veita Ír-
anir þeim m.a. hernaðarráðgjöf.
ÍRAN
AFP
Klerkastjórn Byltingarverðir Írans
sjást hér á sýningu í höfuðborginni.
Sprengjudrónum
beitt 700 sinnum
Vladimír Pútín
Rússlandsforseti
mun sækja minn-
ingarathöfn í
París 11. nóv-
ember nk., en þá
verður þess
minnst að eitt
hundrað ár eru
liðin frá lokum
fyrri heimsstyrj-
aldar. Fjölmarg-
ir aðrir þjóðarleiðtogar munu
sækja frönsku höfuðborgina heim
af þessu tilefni, þeirra á meðal
forseti Bandaríkjanna.
Pútín mun taka þátt í athöfn sem
haldin verður á Champs-Élysées og
má þar einnig búast við hersýn-
ingu. Síðar sama dag mun hann
leggja blómsveig við minnisvarða
um fallna hermenn og eiga fund
með Frakklandsforseta.
FRAKKLAND
Leiðtogar minnast
loka fyrri styrjaldar
Vladimír
Pútín
Stjórnvöld í
Mongólíu hafa
boðið Kim Jong-
un, leiðtoga
Norður-Kóreu,
að sækja höfuð-
borg lands síns
heim. Mongólar
voru á sínum
tíma vongóðir
um að fundur
þeirra Kims og
Donalds Trump Bandaríkjaforseta
yrði haldinn í Mongólíu. Leiðtoga-
fundurinn fór hins vegar fram í
Singapúr í júní síðastliðnum.
Heimboðið kemur nú í kjölfar
þess að líkur eru taldar á að leið-
togarnir ætli að hittast á ný og hef-
ur fundarstaður ekki verið ákveð-
inn, að sögn fréttaveitu AFP.
Skrifstofa forseta Mongólíu sendi
Kim boðið 10. október og er hann
sagður velkominn hvenær sem er.
MONGÓLÍA
Vilja fá Kim Jong-un
í heimsókn til sín
Kim
Jong-un
Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþí-
ópíu, hefur ákveðið að fækka ráð-
herrum sínum, sem eru þó enn tutt-
ugu talsins, og hefur skipað konur í
helming embættanna. Ráðuneytin
voru áður 28, en þetta er í fyrsta
skipti í sögu landsins sem konur eru
helmingur ráðherra.
Fréttaveita AFP segir konur nú
vera í nokkrum af helstu ráðuneyt-
um landsins, meðal annars hinu nýja
friðarráðuneyti sem hefur málefni
alríkislögreglunnar og leyniþjón-
ustustofnanir á sinni könnu. Þá eru
kvenkyns ráðherrar einnig yfir ráðu-
neytum viðskipta, iðnaðar og varn-
armála í Eþíópíu.
Uppstokkanir og umrót
Að sögn AFP hafa fleiri ríki Afr-
íku valið konur sem varnarmálaráð-
herra, m.a. Kenía, Suður-Afríka,
Gínea-Bissau, Nígería, Miðafríku-
lýðveldið og eyjan Madagaskar sem
er við austanverða Afríku.
Einn hinna nýju ráðherra er Aisha
Mohammed, fyrrverandi ráðherra
nýbygginga og ferðaþjónustu. Hún
gegnir nú embætti ráðherra þjóðar-
öryggismála, fyrst kvenna. Þá er nýr
friðarmálaráðherra Muferiat Kamil,
en hún var áður þingforseti.
Þessi uppstokkun er ein margra
frá því að Ahmed tók við embætti
forsætisráðherra Eþíópíu í apríl síð-
astliðnum. Meðal þess sem honum
hefur tekist í embætti er að koma á
friði við nágrannríkið Erítreu, leysa
pólitíska fanga úr haldi, bjóða hópa
sem hafði verið úthýst velkomna til
baka og að áforma einkavæðingu
margra fyrirtækja. Mikil óöld hefur
hins vegar gengið yfir landið und-
anfarin ár og þrátt fyrir yfirlýst
markmið Ahmeds um að lægja öldur
óeirða hafa átökin haldið áfram.
Verst er ástandið sagt í suðurhlut-
anum þar sem hátt í ein milljón
manns hefur lagt á flótta frá því að
átökin blossuðu upp árið 2015.
AFP
Ríkisvald Hluti hinna nýju ráðherra sver eið að stjórnarskrá landsins.
Helmingur ráð-
herra er konur
Uppstokkun í ráðherraliði Eþíópíu