Morgunblaðið - 17.10.2018, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Eyjólfur Þór Sæmundsson
maður og tók gjarnan að sér
stærri verkefni á slíkum vett-
vangi. Eyjólfur var sannfærður
jafnaðarmaður og vann þeirri
hugsjón fylgi og lagði sig fram í
verkum fyrir flokkinn sinn, fyrst
Alþýðuflokkinn og seinna Sam-
fylkinguna eftir að Alþýðuflokk-
ur, Alþýðubandalag og Kvenna-
listi fóru saman og mynduðu
hana. Það er gífurlega mikilvægt
fyrir stjórnmálaflokk að eiga liðs-
mann eins og Eyjólf Sæmunds-
son sem alltaf er tilbúinn að
leggja sitt af mörkum. Og það var
í stjórnmálunum að ég kynntist
Eyjólfi og átti frábært samstarf
við hann allan minn þingferil og
ég naut hæfileika hans, vinnu-
semi og vináttu. Eyjólfur var
mjög pólitískur. Hann sat eitt
kjörtímabil í bæjarstjórn, tutt-
ugu ár í hafnarstjórn, meðal ann-
ars sem formaður, og sat jafn-
framt í fræðsluráði. Það má segja
um Eyjólf að hann hafi í áratugi
verið einn af helstu ráðamönnum
flokksins í Hafnarfirði en jafn-
framt tók hann að sér ábyrgðar-
mikil verkefni hjá landsflokknum
og varð til dæmis fyrsti gjaldkeri
Samfylkingarinnar. Það er gott
þegar öflugir einstaklingar velj-
ast til forystu í bæjarstjórn eða á
Alþingi en svo sannarlega er sá
flokkur fátækur sem ekki á þýð-
ingarmikla einstaklinga í starfi
flokksins. Fólk sem getur og
nennir. Þannig var Eyjólfur Sæ-
mundsson jafn öflugur í bakvarð-
arsveitinni. En nú er komið að
leiðarlokum og við Sverrir víðs-
fjarri og getum ekki fylgt okkar
góða félaga til grafar.
Ég hef ekki nefnt hvað Eyjólf-
ur var mikill fjölskyldumaður og
þau Gerður bjuggu börnum sín-
um Helgu og Baldri Þór mynd-
arlegt og fallegt heimili. Ég hitti
Eyjólf þegar hann var nýorðinn
afi og hann ljómaði allur af gleði
og stolti. Missir þeirra allra er
mikill og samúðarorð fátæk. En
við Sverrir sendum okkar hlýj-
ustu og bestu kveðjur og þökkum
allt sem var.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Í dag er kvaddur mikill bar-
áttumaður, Eyjólfur Þ. Sæ-
mundsson verkfræðingur og for-
stjóri Vinnueftirlitsins.
Starfsaðstæður vinnandi fólks á
Íslandi voru hjartans mál hans og
í þess þágu varði hann starfsævi
sinni. Ég kynntist því vel í stjórn
Vinnueftirlitsins hvernig hann
reyndi ávallt að gæta hagsmuna
þeirra til hins ýtrasta. Atvinnu-
rekendur og stjórnvöld voru ekki
alltaf á sama máli, a.m.k. ekki í
verki, og Eyjólfur neyddist iðu-
lega til málamiðlana. Stundum
vann þó tíminn með málstað
hans. Ég efa ekki að þær upplýs-
ingar sem komu fram í nýlegum
þætti í Ríkisútvarpinu, Kveik, um
bágar aðstæður erlends starfs-
fólks á Íslandi, umræðum og upp-
lýsingum í kjölfarið munu gera
það svo um munar. Í þættinum
var viðtal við Eyjólf þar sem
hann gagnrýndi bæði viðkomandi
verktaka, en ekki síður stjórn-
völd fyrir að leggja vinnueftirliti
til minna fé en þær þjóðir sem
við, a.m.k. á tyllidögum, kjósum
að bera okkur saman við. Það
sem kom fram í viðtalinu höfum
við, samstarfsfólk hans, ítrekað
heyrt frá honum og snýr ekki
bara að erlendu starfsfólki.
Eyjólfur þreyttist aldrei á að
halda fram málstað þeirra sem
starfa við heilsuspillandi og jafn-
vel lífshættulegar aðstæður.
Sumum fannst hann e.t.v. á
stundum óbilgjarn í kröfum um
úrbætur, en í ljósi þess sem er í
húfi gekk hann ekki of hart fram.
Eyjólfur kvaddi allt of
snemma og hans er saknað. Ég
er þakklát fyrir okkar samstarf,
sem var lærdómsríkt og ein-
kenndist af fullum heilindum,
eins og hans var háttur.
Aðrir munu fjalla um hlut Eyj-
ólfs sem einn af forystumönnum
jafnaðarmanna í Hafnarfirði. Þó
skal það sagt að hugsjónir jafn-
aðarmannsins voru ríkur þráður í
hans baráttu fyrir bættum starfs-
aðstæðum vinnandi fólks.
Baráttuþrek Eyjólfs birtist
einnig vel í glímu hans við
krabbameinið. Hann var fram-
undir það síðasta að leita upplýs-
inga um nýjar aðferðir og lyf, og
hann sinnti störfum sínum fyrir
Vinnueftirlitið og var í sambandi
við stjórnendur þar nánast fram
á síðasta dag.
Það er því fyllsta ástæða til að
þakka Eyjólfi Þ. Sæmundssyni
ævistarfið um leið og ég sendi
eiginkonu hans, börnum og öðr-
um aðstandendum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Margrét S. Björnsdóttir,
stjórnarformaður
Vinnueftirlitsins.
Eyjólfur varð forstjóri Vinnu-
eftirlitsins þegar það var stofnað
1981. Við starfsmenn Vinnueftir-
litsins þekkjum þannig ekki ann-
an forstjóra, hvort sem við erum
nýbyrjuð eða höfum verið í starfi
um áratugi. Eyjólfur var upptek-
inn af því að vera forstjóri stofn-
unarinnar og var með hugann við
starf hennar og stöðu fram á síð-
asta dag. Eyjólfur var Evrópu-
sinni og lagði mikla rækt við að
sækja fundi á vegum Evrópsku
vinnuverndarstofnunarinnar,
Evrópsku vinnueftirlitsnefndar-
innar, fundi norrænna forstjóra
vinnueftirlita og fleiri samtaka
um vinnuvernd. Hann var mennt-
aður efnaverkfræðingur og síðar
einnig með MBA-gráðu. Áhugi
hans á hættulegum efnum var
alltaf stutt undan þótt hann legði
rækt við að kynna sér allar hætt-
ur á vinnustöðum og hvernig ætti
að ná stjórn á þeim. Vinnuvernd
er rammpólitísk í eðli sínu. Það
þekkti Eyjólfur og lagði hann því
áherslu á að hafa samskipti við
þingmenn og ráðherra, ráðuneyti
og önnur öfl stjórnmálanna til að
koma áfram málefnum um vinnu-
vernd. Honum var umhugað um
að þekkja til vinnuverndarstarfs
fyrirtækja og reyna að færa þau
til betri vegar hvar sem þau voru
á landinu. Hann lagði mikla
áherslu á að Vinnueftirlitið væri
með starfsstöðvar úti um allt land
og lagði sig fram um að heim-
sækja þessar starfsstöðvar
reglubundið og tvinna við þær
eftirlitsferðir á vinnustaði. Hann
hafði óbilandi áhuga á náttúru
landsins og sögu. Þetta birtist í
fjölmörgum áhugamálum hans
utan vinnu, s.s ljósmyndun,
jeppamennsku og fjallaferðum,
gönguferðum á fjöll en líka hell-
askoðunum. Samhliða þessu var
lestur fornrita og rita um ís-
lenska sögu og menningu honum
kær. Eyjólfur var sjálfur pólitísk-
ur í hugsun, fylgdi jafnaðar-
mönnum og starfaði lengi fyrir
þá, m.a. í bæjarstjórn og nefnd-
um í Hafnarfirði. Hann bar virð-
ingu fyrir mönnum með skoðanir
þótt þær væru honum andstæðar
og tilefni ákafra umræðna. Hann
vildi hafa umræður og samráð
um hlutina á sínum vinnustað
þótt lokaákvörðun væri hjá hon-
um.
Hans styrkur var víðtæk
þekking á málefnum vinnuvernd-
ar og yfirsýn bæði á heimavelli og
í alþjóðasamhengi auk góðrar al-
mennrar þekkingar. Eiginleikar
sem sóma vel forstjóra Vinnueft-
irlitsins. Þá var Eyjólfur upptek-
inn af mikilvægi fjölskyldu og að
vinna og einkalíf væri samtvinn-
að. Hann sjálfur ásamt Gerði
konu sinni tók því virkan þátt í
samkomum starfsmannafélags-
ins og iðulega tengt árshátíðum
var starfsmönnum boðið á heimili
þeirra hjóna í Hafnarfirði.
Okkur samstarfsmönnum Eyj-
ólfs í Vinnueftirlitinu er í dag
söknuður og sorg í huga þegar
við kveðjum hann. Þessi kveðju-
stund er á sama tíma og Evr-
ópska vinnuverndarvikan er
haldin hér á landi til að vekja at-
hygli á þeirri áhættu sem stafar
af meðferð hættulegra efna á
vinnustöðum, stuðla að því að
hættulegum efnum verði útrýmt
eða bæta meðferð á þeim og auka
skilning á þeirri áhættu sem staf-
ar af krabbameinsvaldandi efn-
um.
Þetta voru grundvallarbar-
áttumál Eyjólfs.
Við samstarfsfólk Eyjólfs vott-
um Gerði eftirlifandi konu hans
og fjölskyldu hans samúð okkar.
Kristinn Tómasson, yfir-
læknir Vinnueftirlitsins.
Félagi okkar, vinur og góður
drengur, Eyjólfur Þór Sæmunds-
son, hefur lokið ævigöngu sinni
langt um aldur fram.
Eyjólfur Þór gerðist félagi í
Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar 6.
júlí 1995 og var dyggur rótarý-
félagi alla tíð.
Strax frá upphafi naut hann
mikils trausts félaga sinna, enda
leið ekki á löngu þar til honum
voru falin helstu ábyrgðarstörf í
klúbbnum.
Starfi forseta klúbbsins
gegndi hann 2015-2016. Hann var
góður forseti og fyrirmynd ann-
arra sem á eftir honum komu.
Eyjólfur Þór var sæmdur Paul
Harris-orðu Rótarý árið 2017, í
virðingarskyni fyrir ómetanleg
störf í þágu klúbbsins.
Eyjólfur Þór var mikill útivist-
armaður og nutum við félagarnir
þekkingar hans á örnefnum og
náttúrufyrirbærum er við ferðuð-
umst saman um landið. Eyjólfur
tók að sér mörg verkefni fyrir
klúbbinn. Hann hafði m.a. sér-
stakan áhuga fyrir skógrækt.
Hann var formaður undir-
búningsnefndar fyrir klúbbinn að
skipulagningu á skógræktar-
svæði fyrir almenning í sunnan-
verðu Hafnarfjarðarhrauni og
var langt kominn með skipulagn-
ingu svæðisins er kallið kom.
Félagsskapur okkar er góðum
liðsmanni fátækari. Eyjólfur Þór
var góður ræðumaður og þegar
hann kvaddi sér hljóðs lögðu
menn við hlustir. Hann var
sagnamaður af bestu gerð, gat
þulið upp heilu ljóðabálkana af
munni fram. Fróður maður um
ættir kynslóðanna og vel að sér í
sögu lands og þjóðar.
Góð ráð og ábendingar hins
reynda félaga voru mikils metin
og við forsetar klúbbsins leituð-
um oft ráða hjá honum vegna ým-
issa mála.
Við kveðjum í dag með söknuði
vin okkar og félaga, Eyjólf Þór
Sæmundsson, sem yfirgefur okk-
ur allt of fljótt og lagði með starfi
sínu svo margt til málefna
klúbbsins.
Traustari og heiðarlegri mann
er erfitt að finna, en minning um
góðan rótarýfélaga mun lifa í
hjarta okkar allra.
Við sendum eiginkonu hans,
Gerði S. Sigurðardóttur, fjöl-
skyldunni og öllum aðstandend-
um okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Með kveðju frá Rótarýklúbbi
Hafnarfjarðar,
Guðbjartur Einarsson,
forseti Rótarýklúbbs
Hafnarfjarðar.
Eyjólfur Sæmundsson er lát-
inn eftir hetjulega baráttu við
krabbamein. Árið 1981 var
Vinnueftirlit ríkisins sett á fót og
sama ár var Eyjólfur ráðinn for-
stjóri þeirrar stofnunar. Gegndi
hann því embætti þar til yfir lauk.
Í öll þessi ár hefur hann staðið
vaktina og unnið mikið og óeig-
ingjarnt starf í þágu vinnuvernd-
ar hér á landi.
Kynni mín af Eyjólfi voru stutt
en afar ánægjuleg. Það leyndi sér
ekki að þar fór forstjóri sem bar
hag stofnunarinnar og starfs-
manna sinna fyrir brjósti. Aðrir
þátttakendur á vinnumarkaði
fóru ekki varhluta af eldmóði
Eyjólfs þegar kom að vinnuvernd
á vinnumarkaði og heyrði ég
hann oft segja að allir starfs-
menn, hvar sem þeir væru að
sinna störfum sínum, ættu rétt á
því að koma heilir heim að lokn-
um vinnudegi og lagði hann þá
gjarnan áherslu á hvert orð.
Ungir þátttakendur á vinnu-
markaði áttu einnig hug hans all-
an og tók hann það afar nærri sér
í hvert sinn sem ungmenni urðu
fyrir slysum eða öðrum skakka-
föllum við vinnu sína.
Þrátt fyrir að kynni mín af
Eyjólfi hafi eingöngu verið í
tengslum við störf hans hjá
Vinnueftirliti ríkisins veit ég að
hann var fyrst og fremst fjöl-
skyldumaður sem var annt um
sitt fólk.
Að leiðarlokum sendi ég fjöl-
skyldu Eyjólfs, vinum og sam-
starfsfólki hans hjá Vinnueftirliti
ríkisins samúðarkveðjur um leið
og ég þakka honum vel unnin
störf í þágu vinnuverndar hér á
landi.
Ásmundur Einar Daðason,
félags- og jafnréttis-
málaráðherra.
Allar minningar
á einum stað
MINNINGAR
er fallega innbundin bók sem hefur að geyma
æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa
um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is.
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni
mbl.is/minningar.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa
frá árinu 2000 til dagsins í dag.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar
móður okkar,
KOLBRÚNAR JÓHANNESDÓTTUR,
veitingakonu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjálfsbjargar
og Hrafnistu fyrir vinsemd og góða umönnun.
Linda Ingvarsdóttir
Guðmundur Ingvarsson
og fjölskyldur
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
PÁLL SIGURÐUR JÓNSSON,
rafvirki,
lést 11. október á hjúkrunarheimilinu
Ísafold, Garðabæ.
Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn
19. október klukkan 13.
Þóra Eygló Þorleifsdóttir
Jón Vilhelm Pálsson Salome Kristín Jakobsdóttir
Guðm. Þorleifur Pálsson Ásta Gísladóttir
Anna Sigríður Pálsdóttir Karl Magnús Tómasson
Matthildur Pálsdóttir Birgir Ragnarsson
afa- og langafabörn
Okkar ástkæri
ÓSKAR MARINÓ ÞORGRÍMSSON,
fyrrverandi bóndi,
Efri-Gegnishólum,
lést miðvikudaginn 10. október á
Dvalarheimilinu Lundi á Hellu.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 19. október
klukkan 13.
Aðstandendur
Elsku eiginmaður minn og besti vinur,
faðir okkar, tengdafaðir, sonur og afi,
DANÍEL GUÐBRANDSSON,
Akraseli 31,
lést föstudaginn 5. október.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 22. október klukkan 13.
Birna Benediktsdóttir
Steinar Þór Daníelsson Ólöf Jóna Ævarsdóttir
Guðbrandur Daníelsson Kristþóra Gísladóttir
Áshildur E. Daníelsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORKELL SKÚLASON
endurskoðandi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
Kópavogi, laugardaginn 13. október.
Ólafía Katrín Hansdóttir
Valdís Brynja Þorkelsdóttir
Ingiríður H. Þorkelsdóttir
Elsa Sigurveig Þorkelsdóttir Már Guðmundsson
Indriði Þorkelsson Anna María Soffíudóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir,
GUÐNÝ ÓLÖF KRISTJÁNSDÓTTIR
sálfræðingur,
Uppsölum, Svíþjóð,
er látin.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Pétur Jökull Pétursson Tina Pétursson
Kristian Larsson
Jim, Dina og Lilly
Gísli Kristjánsson Þorvaldur Kristjánsson
Flosi Kristjánsson Sævar Kristjánsson
Pétur Kristjánsson Ólafur Grétar Kristjánsson