Morgunblaðið - 17.10.2018, Qupperneq 26
R
agnheiður Inga Þór-
arinsdóttir fæddist í
Reykjavík 17.10. 1968.
Hún átti heima í Dan-
mörku 1971-77, hóf
grunnskólanám í Sandbjergskolen í
Stenlöse, var í Hvassaleitisskóla, frá
1977, fór í MH 1984 og útskrifaðist
sem dúx skólans í desember 1987, og
lauk MSc-prófi í efnaverkfræði á
sviði næringarfræði og lífefnafræði
frá Danska tækniháskólann 1993.
Ragnheiður var verkefnisstjóri
við Iðntæknistofnun Íslands 1994-
99, deildarstjóri við Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins 2000-
2004, samhliða í doktorsnámi í verk-
fræði við Danska tækniháskólann og
lauk doktorsgráðu í efnisfræði og
tæringu málma árið 2000, og í kjöl-
farið MBA-námi frá HÍ 2002.
Ragnheiður varð deildarstjóri
orkudeildar við Orkustofnun 2004 og
aðstoðarorkumálastjóri frá 2005.
Hún stofnaði Svinna-verkfræði ehf.
2008 og er starfandi framkvæmda-
stjóri þar, auk þess að hafa stofnað
ýmis sprotafyrirtæki: „Svinna sinnir
verkefnum í matvælaframleiðslu og
sjálfbærri orkunýtingu með áherslu
á jarðvarma. Þetta eru mjög fjöl-
breytileg nýsköpunarverkefni, t.d. á
sviði garðyrkju og fiskeldis.“
Eftir að Ragnheiður lauk meist-
aranámi hefur hún verið stunda-
kennari við HÍ, leiðbeinandi fram-
haldsnemenda þar, verið prófdóm-
ari, og sinnt ýmsum nefndar- og
trúnaðarstörfum þar. Hún var ges-
tadósent við HÍ 2011-2017 og er ges-
taprófessor frá ársbyrjun 2018.
Ragnheiður er nú m.a. í vara-
stjórn Lífsverks lífeyrissjóðs, í
stjórn Gæðabaksturs ehf., Samrækt-
ar ehf. og Smádeilna ehf. Hún var
áður í stjórn Verkfræðingafélags Ís-
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir verkfr. og framkvæmdastjóri – 50 ára
Fjölskyldan Ragnheiður og Ólafur Pétur með börnunum, en ljósmyndarinn, hann Karl, náðist ekki allur á mynd.
Nýsköpun, orka og
matvælaframleiðsla
Tenniskappar Hér eru börnin fjögur: Hildur, Helga, Katrín og Karl.
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Ég býð mínu nánasta fólki í heimsókn í kvöld; verð þar meðsushi og köku að hætti Betty Crocker. Svo má vel vera að eitt-hvað róttækara verði gert um helgina,“ segir Guðný Hrönn
Antonsdóttir sem er þrítug í dag. Hún kom fyrir skemmstu til starfa
hjá Mannlífi og er þar blaðamaður og vefstjóri. Áður var hún blaða-
maður við mbl.is og á Fréttablaðinu.
Myndlist er bakgrunnur Guðnýjar Hrannar, sem nam myndlist við
Listaháskóla Íslands. Þaðan lauk hún prófi árið 2011 og námi í blaða-
og fréttamennsku við Háskóla Íslands árið 2016. Hún kann vel við sig
í blaðamennskunni; sér finnist gaman að skrifa um mannlífið í sinni
breiðustu mynd og þá ekki síst að taka viðtöl við áhugavert fólk um
viðhorf þess og reynslu. Spurð út í áhugamál segir Guðný Hrönn það
auðvitað vera myndlistina. Einnig hönnun og tísku. „Og ekki má
gleyma hundinum mínum, honum Dreka sem er af tegundinni shih-
tzu. Hann er orðinn ellefu ára og alveg fáránlega sætur og góður! Svo
hef ég einnig gaman af ferðalögum; fara um framandi lönd, kynnast
nýjum borgum og menningu.“
Guðný Hrönn ólst upp á Seltjarnarnesi og hefur um dagana prófað
sitthvað. „Sem unglingur vann ég á hóteli, í bakaríi og svo á leikskóla
með námi svo eitthvað sé nefnt. Allt saman fínasta reynsla,“ segir
Guðný sem á kærasta sem er Friðrik Ari Sigurðarson, grafískur
hönnuður. sbs@mbl.is
Blaðakona Allt saman fínasta reynsla, segir Guðný Hrönn um ferilinn.
Myndlist, tíska og
hundurinn Dreki
Guðný Hrönn Antonsdóttir er þrítug í dag
Reykjavík Álfrún Milla
Hjartar Kristínardóttir
fæddist 17. nóvember 2017
kl. 22.22. Hún vó 3.710 g og
var 53,5 cm löng. Móðir
hennar er Kristín Dröfn
Halldórsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á nau
tið
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is