Morgunblaðið - 17.10.2018, Blaðsíða 27
Ragnheiður
Inga Þórarins-
dóttir
Hildur Helgadóttir Sívertsen Zoëga
kjólameistari og húsfreyja í Rvík
Jón Sívertsen Þorvaldsson
kaupm. og skólastj. í Rvk
Geirþrúður Hildur Sívertsen Bernhöft
fyrsti kvenguðfr. á Íslandi, vþm. og ellimálafulltrúi í Rvík
Sverrir Bernhöft
stórkaupmaður í Rvík
Hildur Bernhöft
fulltrúi í Rvík
Kristín Þorláksdóttir
Johnson Bernhöft
tannsmiður, myndlistarkona
og húsfreyja í Rvík
Andri Þór Guðmundsson
forstj. Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar
Vilhjálmur Kristinn
Hallgrímsson rafvirki hjá
Rafmagnseftirlitinu í Rvík
Ragnhildur Auður
Vilhjálmsdóttir
tækniteiknari í
Rvík og í Kópavogi
Svanlaugur Hallgrímur
Sveinsson byggingatæknifr.
í Hafnarfirði
Ragnar Sveinn
Svanlaugsson
rafvirkjam. í
Hafnarfirði
Vilhelm Georg Theodór Bernhöft
læknir og tannlæknir í Rvík, sonur Vilhelms Georgs
Theodors Bernhöft bakara á Bernhöftstorfunni í Rvík
Lucinda
Fr.V.
Hansen
húsfr. í
Rvík
Hjálmtýr E.
Hjálmtýsson
bankam. og
söngvari í
Rvík
Páll Óskar
Hjálmtýsson
söngvari og
tónlistarmaður
Sigrún
Hjálmtýsdóttir
(Diddú) óperu-
söngkona
Marie
Vilhelms-
dóttir
húsfr. í
Rvík
Eva
Thorstensen
hjúkrunarfr.,
búsett í
Hafnarfirði
Sigríður Klara
Böðvarsdóttir
forstöðum.
Vísindaseturs HÍ
Hulda
Svanlaugsdóttir
hjúkrunarfr. í
Rvík
Anna Sigríður
Kristófersdóttir
bankastarfsmaður
Kristófer
Ómarsson
löggiltur
endurskoðandi
í Kópavogi
Sigríður Jónína
Svanlaugsdóttir
húsfr. í Rvík
Katrín Sigríður Sívertsen Sigurðsson
fulltr. á Tryggingastofnun ríkisins
Sverrir Vilhelm Bernhöft
yrrv. framkvæmdastj. í Rvíkf
Katrín Bernhöft
framkvstj. í
Kópavogi
Örn Bernhöft
ramkvstj. í Rvíkf
Sigurður Örn
Bernhöft
framkvstj. í Rvík
Guido Bernhöft
stórkaupm. í Rvík
Kristjana Rósa Þorsteinsdóttir
húsfreyja í Öxnadal og á Akureyri
Svanlaugur Jónasson
b. í Öxnadal og síðar
verkstjóri á Akureyri
Ragnheiður Friðrika Svanlaugsdóttir
hjúkrunarfr. í Rvík (varð 103 ára)
Sveinn Hallgrímsson
verkstjóri í Rvík
Sigurveig Sveinsdóttir
húsfreyja á Felli
Hallgrímur Brynjólfsson
b. á Felli í Mýrdalshreppi
Úr frændgarði Ragnheiðar Ingu Þórarinsdóttur
Þórarinn Edilon Sveinsson
læknir og fyrrv. yfirlæknir
við LSH í Rvík
Ingibjörg Bernhöft
dáleiðslufr. og
hjúkrunarfr. í Rvík
Ingibjörg Bernhöft
dáleiðslufr. í Kópavogi
lands, Matís ohf., formaður hand-
knattleiksdeildar Fjölnis, hefur ver-
ið sunddómari hjá sunddeild Fjölnis
og aðstoðað við frjálsíþróttamót ÍR.
Ragnheiður hefur verið matsmað-
ur hjá Rannís, norrænum sjóðum,
norska rannsóknarráðinu og sjóðum
Evrópusambandsins, ritrýnandi hjá
ýmsum alþjóðlegum tímaritum, hef-
ur setið í vísindanefnd ýmissa ráð-
stefna og í stýrihópi evrópskra sam-
starfsverkefna s.s. COST verkefna.
Ragnheiður hefur fengið innlenda
og erlenda rannsóknar- og nýsköp-
unarstyrki, hefur stýrt mörgum al-
þjóðlegum rannsóknar- og nýsköp-
unarverkefnum og fengið viður-
kenningar s.s. Atlantic Strategy
Award árið 2017 og verðlaun í sam-
keppni á vegum Climate-KIC um
matvælaframleiðslu í borgum 2018.
Helstu áhugamál Ragnheiðar
snúa að fjölskyldunni, nýsköpun, lík-
amsrækt og innflutningi á áfengi.
Innflutningur á áfengi?
„Já, ég og vinkona mín rekum lítið
fyrirtæki sem flytur inn áfengi.
Við höfum gaman af að prófa nýj-
ar tegundir og huga að gæðum og
verði. Engin græðgi og ekkert
stress! Samt eru kannski þarna að
verki einhver kaupmannsgen úr
Bernhöftsættinni. Hver veit?
Fjölskylda
Ragnheiður giftist 28.7. 1990,
Ólafi Pétri Pálssyni, f. 17.11. 1962,
prófessor í vélaverkfræði við HÍ.
Foreldrar hans: Páll Pétursson, f.
17.3. 1937, fyrrv. alþingismaður, ráð-
herra og bóndi á Höllustöðum í
Austur-Húnavatnssýslu, og f.k.h.,
Helga Ólafsdóttir, f. 30.10. 1937, d.
28.5. 1988, bóndi og húsfreyja á
Höllustöðum.
Börn Ragnheiðar og Ólafs Péturs
eru 1) Helga Kristín, f. 26.11. 1990,
stærð- og tölvunarfræðingur, í dokt-
orsnámi í Gautaborg en maður
hennar er Gunnar Snorri Ragn-
arsson rafmagnsverkfræðingur; 2)
Hildur Þóra, f. 11.11. 1993, lækna-
nemi, en maður hennar er Jón Ágúst
Stefánsson læknanemi; 3) Katrín
Unnur, f. 9.6. 1996, vélaverk-
fræðinemi, og 4) Karl Hákon Ólafs-
son, f. 24.2. 2003, grunnskólanemi.
Systur Ragnheiðar: Hildur Edda,
f. 18.12. 1963, dýralæknir í Borg-
arfirði, og Brynja Kristín, f. 10.11.
1973, barnalæknir í Reykjavík.
Foreldrar Ragnheiðar: Þórarinn
E. Sveinsson, f. 11.11. 1943, krabba-
meins- og fyrrv. yfirlæknir við LSH,
og Hildur Bernhöft, f. 15.7. 1944,
fyrrv. fulltrúi í Danska sendiráðinu.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Ludvig fæddist við Laufásveg-inn í Reykjavík 17.10. 1914,sonur Hjálmtýs Sigurðs-
sonar, kaupmanns í Reykjavík, og
k.h., Lucinde Fr.V. Hansen hús-
freyju.
Hjálmtýr var sonur Sigurðar Sig-
mundssonar á Stokkseyri, og Gyðr-
íðar Hjaltadóttur en Lucinde var
dóttir Ludvigs Hansen, versl-
unarmanns í Reykjavík, og Marie
Vilhelmsdóttur, systur Vilhelms
Georgs T. Bernhöft læknis og tann-
læknis, langafa Ragnheiðar sem
prýðir burðargreinina á þessari opnu
í dag. Meðal systkina Ludvigs var
Hjálmtýr bankamaður, faðir Sigrún-
ar og Páls Óskars.
Eiginkona Ludvigs var Kristjana,
systir Halldórs teiknara og dóttir
Péturs Halldórssonar, alþm. og borg-
arstjóra, og k.h., Ólafar Björnsdóttur
húsfreyju. Börn Ludvigs og Krist-
jönu eru Pétur barnalæknir og Erna
María sem lést 2009.
Ludvig var í kvöldskóla VÍ og við
Héraðsskólann á Laugarvatni. Hann
var verslunarmaður í Reykjavík
1933-45, framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðishússins í Reykjavík 1946-63,
formaður Ferðamálaráðs 1964-76 og
var fyrsti ferðamálastjórinn 1976-84.
Ludvig var formaður Heimdallar
og Sambands veitinga- og gistihúsa-
eigenda um árabil, sat í stjórn VR og
Ferðamálafélags Reykjavíkur, var
forseti Nordisk Hotel og Restaurant
Forbund, sat í miðstjórn Inter-
national Hotel Association, var vara-
bæjarfulltrúi í Reykjavík 1946-50,
formaður skólanefndar Matsveina-
og veitingaþjónaskólans, sat í mats-
nefnd veitingahúsa, var fulltrúi Ís-
lands í ferðamálanefnd Norðurlanda
og sat í orðunefnd. Hann var sæmdur
riddarakrossi fálkaorðunnar 1962.
Ludvig ritaði kaflann um Ísland í
Reiseliv í Norden. Hann var ræðinn
og skemmtilegur og afar fróður um
mannlíf og búsetusögu Reykjavíkur
enda viðmælandi Páls Líndals í hinni
bráðskemmtilegu bók þeirra, Á göt-
um Reykjavíkur.
Ludvig lést 24.6. 1990.
Merkir Íslendingar
Ludvig
Hjálmtýsson
90 ára
Guðmundur H. Garðarsson
Helga Eiríksdóttir
Vigdís Guðmundsdóttir
85 ára
Elísabet S. Guðmundsdóttir
Frímann Þorsteinsson
Guðrún Bjarnadóttir
Gunnar Albert Ólafsson
Gyða Ingólfsdóttir
Hannes Steingrímsson
Sigríður Kristín Lister
Sigrún Árnadóttir
80 ára
Bjarney G. Sigurðardóttir
Kristín Hafsteinsdóttir
Steinar Guðjónsson
Svala Grímsdóttir
75 ára
Ásdís Pétursdóttir
Elvar Guðni Þórðarson
Hrafnhildur Reynisdóttir
Jónína Ebenezersdóttir
Jósefína Sigurbjörnsdóttir
Margrét Gústafsdóttir
70 ára
Geir Thorsteinsson
Gísli Björnsson
Guðný H. Þorsteinsdóttir
Ingimar S. Guðmundsson
Ómar Torfason
Salóme Friðgeirsdóttir
Victor Damasin
60 ára
Ásta Kristmannsdóttir
Birgir Kristmannsson
Dagný Þórisdóttir
Einar Óskarsson
Erna Njálsdóttir
Guðrún Stephensen
Gunnhildur Kjartansdóttir
Hólmfríður Sigtryggsdóttir
Þórunn Gísladóttir
50 ára
Anna Lóa Sigurjónsdóttir
Auðbjörg Jónsdóttir
Ellisif A. Sigurðardóttir
Jóhann Magnús Ólafsson
Jón Elvar Wallevik
Ragnheiður Þórarinsdóttir
Sigurður R. Sigurðarson
Styrmir Geir Jónsson
40 ára
Ahlam Ayad Eltayef
Ásrún Ósk Bragadóttir
Bryndís Harðardóttir
Bryndís Hauksdóttir
Bryndís Ýr Pétursdóttir
Daníel Sigurbjörnsson
Egill Skúli Þórólfsson
Guðni Friðrik Árnason
Hanna Björk Grétarsdóttir
Harpa Sif Þráinsdóttir
Jóhanna Á. Guðjónsdóttir
Jóna Björk Gísladóttir
Lilja Rós Jóhannesdóttir
Marcin Robert Lobodzinski
Margrét Sturludóttir
Myra Loni Oriol Yu
Neringa Stasinskiené
Sigrún Guðjónsdóttir
Sunna Birna Helgadóttir
30 ára
Arnar Páll Garðarsson
Arnar Þór Kristjánsson
Aubrey Mae Baylosis Rigor
Ágúst K. Sigurlaugsson
Guðný Hrönn Antonsdóttir
Gunnar Atli Gunnarsson
Joshua Kennish Persello
Kristín Eva Geirsdóttir
Lizet A. Diaz R. De Roman
Rytis Maciulaitis
Sævar Sigtryggsson
Wioleta Sokolowska
Til hamingju með daginn
30 ára Kristín Eva býr í
Njarðvík, lauk MA-prófi í
lögfræði frá HR og LLM-
prófi í flug- og geimrétti
frá Leiden í Hollandi og er
sérfræðingur í flug-
öryggis-, flugverndar- og
hlítingarmálum hjá Air-
port Associates.
Maki: Sverrir Bergmann
Magnússon, f. 1980,
poppsöngvari.
Foreldrar: Geirjón Grett-
isson, f. 1951, og Bertha
Kristín Jónsdóttir, f. 1952.
Kristín Eva
Geirsdóttir
30 ára Arnar býr í
Reykjavík, lauk BFA-prófi í
teiknimyndagerð frá
SCAD í Georgíu í BNA og
starfar nú hjá 10-11 og
Máli og menningu.
Systkini: Erna Kristín, f.
1974; Unnar, f. 1991, og
Andrea Júníusdóttir, f.
2002.
Foreldrar: Kristján Pálm-
ar Arnarson, f. 1952, fast-
eignasali, og Sigurlaug
Guðrún Kristjánsdóttir, f.
1965, heilbrigðisstarfsm.
Arnar Þór
Kristjánsson
40 ára Lilja ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
BA-prófi í ferðamálafræði
frá HÍ og er skrifstofu-
stjóri í Ingunnarskóla.
Maki: Gísli Bragason, f.
1977, sérfræðingur hjá
Norðuráli.
Börn: Íris Anna, f. 2004;
Sara Rún, f. 2006; Brynja
Sif og Jóhannes Þór, f.
2010.
Foreldrar: Jóhannes
Atlason, f. 1944, og Lára
Rafnsdóttir, f. 1946.
Lilja Rós
Jóhannesdóttir
)553 1620
Lauga-ás hefur
frá 1979 boðið
viðskiptavinum
sínum upp á úrval
af réttum þar sem
hráefni, þekking
og íslenskar
hefðir hafa verið
höfð að leiðarljósi.
Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
laugaas@laugaas.is • laugaas.is
Við bjóðum m.a. upp á:
Súpur
Grænmetisrétti
Pastarétti
Fiskrétti
Kjötrétti
Hamborgara
Samlokur
Barnamatseðil
Eftirrétti