Morgunblaðið - 17.10.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Fylgdu innsæi þínu. Nú getur þú litið
bjartsýn/n fram á veginn. Haltu þig við efn-
ið, það verður þess virði þegar upp er staðið.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að sýna mikla þolinmæði í
samskiptum þínum við vini og kunningja í
dag. Farðu gætilega, hugur þinn starfar
hraðar en talfærin ráða við þessa dagana.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ímyndunaraflið er af hinu góða ef
menn kunna að hafa á því hemil og gera
greinarmun á draumi og veruleika. Einhver
frá öðrum menningarheimi hjálpar þér að
víkka sjóndeildarhringinn.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú ert það þú sem átt að taka frum-
kvæðið og laða svo aðra til samstarfs við
þig. Þú skalt leggja á ráðin með vinum þín-
um um ferðalag á næstunni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur allan þann efnivið sem til þarf
til að verkefnið þitt heppnist. Síðan er að
ganga skipulega til verks og klára hvern
hlutinn á fætur öðrum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Tíma með góðum vinum er alltaf vel
varið og þú átt að láta það eftir þér í ríkari
mæli. Með þeirra hjálp tekst þér að sigla þín-
um málum í höfn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú er kominn tími til þess að gera eitt-
hvað skemmtilegt með fjölskyldunni hvort
sem er heima eða heiman. Reyndu að lenda
ekki í útistöðum við aðra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að sýna sveigjanleika
til þess að geta leyst það mál sem hvílir á
þér. Ekki gefast upp! Þó að öll þín áform
gangi ekki eftir skaltu ekki flýja af hólmi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert óviss um hvort viss mann-
eskja kann vel við þig eða það sem fylgir þér.
Einhver reynir að gera þér lífið leitt svo nú
reynir verulega á þolinmæðina.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er þér í hag að málamiðlun
náist í mikilvægu máli. Erfiðisvinna er til
einskis ef hún stuðlar ekki að betri lífs-
gæðum og ánægjuauka.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Farðu varlega í samskiptum við
ókunnuga, sérstaklega ef þau snúast um
fjármál. Hver sem er getur grætt peninga,
en áreiðanleiki er byggður upp á löngum
tíma.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er engin ástæða til þess að láta
stundarerfiðleika draga úr sér allan mátt.
Einbeittu þér að málum heimilisins og sýndu
þar alla þá lipurð sem þú getur.
Ég var að glugga í Hugsvinnsmálog rakst þar á erindi sem vel
mætti verða alþingismönnum til
umhugsunar – „málskálp“ merkir
orðagjálfur, málæði:
Hirð eigi að senna,
þótt satt vitir,
við hvassorða hali;
málskálp mikið
er mörgum gefið;
fár er að hyggju horskur.
Hér í Vísnahorni var á fimmtu-
dag sagt frá nýútkominni bók, 130
vísnagátum eftir Pál Jónasson í Hlíð
á Langanesi. Foreldrar hans voru
bæði skáldmælt. Móðir hans, Hólm-
fríður Sóley Hjartardóttir, sendi frá
sér skáldsöguna „Maður og mold“
árið 1950 undir nafninu Sóley í Hlíð.
Bókin seldist vel og var endur-
útgefin 1970. Hér gælir Hólmfríður
Sóley við hest sinn Reyk:
Þá kemur að leiðarlokum
og lýist fótur minn
bíddu við brautarteininn
blessaður fákurinn.
Þau Jónas A. Helgason bjuggu
fyrst í Ásseli en fluttust í Hlíð 1942.
Löngu seinna kom Jónas gangandi
að Ásseli og kvað:
Þó að grói um gömul spor
glaðvökul lifir hver raust
um æskunnar sólskin og vonir og vor
og vonbrigði og áfelli um haust
Um sjötugt kvað hann:
Löng ei reynist lífsins bið
og ljós í myrkri skína
ef ég fæ að fitla við
ferskeytluna mína.
Páll í Hlíð er æðarbóndi og vinn-
ur úr rekaviði – hér persónugerir
hann spýtu á rekanum:
Ligg ég og fúna
á framandi ströndu
rifin og veðruð
rótslitin spýta,
skóginn minn græna,
granna og vini
augað mitt þreytta
aldrei mun líta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Úr Hugsvinnsmálum
og vísur frá Hlíð
„ÞETTA ER SVIPAÐ OG SVONA SJOKK-
MEÐFERÐ. BÍDDU ÞAR TIL ÞÚ SÉRÐ
VERÐIÐ.“
„ÉG SKAL ELDA EITTHVAÐ GOTT FYRIR
ÞIG Í NÆSTA AUGLÝSINGAHLÉI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... bréf sem þú lest yfir
aftur og aftur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
MÉR LÍKAR ÞETTA ORÐTÆKI
BENJAMÍNS FRANKLÍN „MORGUNSTUND…“ „…GEFUR GULL Í MUND“
OG GERIR MANN
EINMANA OG
LEIÐINLEGAN
TIL VOPNA, MENN! VIÐ ÆTLUM AÐ RÁÐAST Á NOREG!
EKKI
SÉNS!
GLEYMDU ÞVÍ!
OF HÆTTULEGT!
HANN ER
FULLUR AF
VOÐALEGUM
VÍKINGUM!!
Víkverji er alltaf jafn hissa á þvíhvað gróður getur verið lífseigur
á Íslandi. Enn má sjá stjúpur gægjast
upp úr beðum í fullum blóma þótt
komið sé fram yfir miðjan október.
Víkverji er heldur ekki frá því að gras
spretti enn í garðinum hjá honum
þótt hann sé löngu búinn að pakka
niður sláttuvélinni til vetrarins og
setja hana í mölkúlur.
x x x
Víkverji minnist þess að eitt sinnfann hann um áramót íðilgræna
kryddjurt í potti fyrir utan húsið sitt
og gat notað hana til að krydda gaml-
árskvöldssteikina. Rétt er að taka
fram að Víkverji býr ekki á Tenerife
heldur í Vesturbæ Reykjavíkur.
x x x
Mikið er talað um gervigreind umþessar mundir. Gervigreind
netsins mun orðið slík að notendur
þess hafa ekki roð við snilldinni að
baki félagsvefjum og heimasíðum
ýmiss konar. Víkverji er þó á því að
snilldinni séu takmörk sett.
x x x
Fyrir einhverju síðan notaði hannsíðuna booking.com þegar hann
skipulagði ferð til finnska bæjarins
Lohja. Dvölin í Lohja er ekki sérlega
eftirminnileg og Víkverji hefur ekki í
hyggju að fara þangað aftur ótil-
neyddur. Booking.com er á öðru máli
og vill helst senda Víkverja aftur til
Lohja sem fyrst.
x x x
Reglulega og ítrekað berast Vík-verja póstar með gylliboðum þar
sem Lohja er ýtt að honum. „Aldrei
ódýrara að gista í Lohja“ og „Besta
verð sögunnar í Lohja“ segir í þess-
um póstum. Víkverji hefur ekki með
nokkrum hætti brugðist við þessum
tilboðum, en áfram berast þau samt.
x x x
Víkverji hefði haldið að öll gervi-greindin ætti að hafa orðið til
þess að ljós rynni upp fyrir book-
ing.com og farið yrði að bjóða Vík-
verja að heimsækja einhverja aðra
staði en Lohja, en það virðist ekki
vera, heldur á að halda áfram að
hamra járnið þótt það sé löngu orðið
kalt. vikverji@mbl.is
Víkverji
Komið til mín, öll þér sem erfiðið og
þunga eruð hlaðin, og ég mun veita
yður hvíld
(Matt: 11.28)
Aukin lífsgæði
án verkja og eym
Nutrilenk vörurnar fást í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
„Ég er búin að æfa mikið síðustu ár; hlaupa, stöðvarþjálfun, tabata
ofl. og varð alltaf þreytt og aum í liðum og beinum eftir æfingar.
Mér var bent á að prufa Nutrilenk Gold og byrjaði ég á að taka 6
töflur á dag í nokkrar vikur. Ég fann ótrúlega fljótt mun til hins betra
svo ég ákvað að prufa að taka líka 1 töflu af Nutrilenk Active því ég
var enn með verki og eymsl í höndum. Active virkar eins og
smurning fyrir liðina en ég fann mikinn mun á mér og eru verkirnir
nú horfnir.
Í dag tek ég 4 Gold og 1 Active og ekki má gleyma Nutrilenk gelinu
sem ég nota á axlir og hné en það kælir og dregur úr bólgum.
Ég get því hiklaust mælt með öllum Nutrilenk vörunum, án þeirra
gæti ekki hreyft mig eins mikið og ég geri í dag, verkjalaus.“
Erna Geirlaug Árnadóttir, 42 ára innanhúsarkitekt
NUTRILENK
ACTIVE
sla