Morgunblaðið - 17.10.2018, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Guðrún Óla Jónsdóttir
gudruno@mbl.is
Birkir Blær Ingólfsson hlaut í gær
Íslensku barnabókaverðlaunin
þetta árið fyrir bók sína Stormsker
– fólkið sem fangaði vindinn. Þetta
er fyrsta skáldsaga Birkis sem
lauk BA-prófi í lögfræði en segist
hafa áttað sig á því að hann langaði
frekar að skrifa heldur en læra
meiri lögfræði.
Ævintýrabók með boðskap
Stormsker – fólkið sem fangaði
vindinn er ævintýrabók og Birkir
segir að þótt hún henti sennilega
aldurshópnum tíu til tólf ára best,
geti hún vel fallið í kramið hjá
eldri börnum líka.
„Satt að segja átti hún fyrst að
vera bók fyrir fullorðna en ég var
ekki kominn langt með hana þegar
ég ákvað að þetta yrði barnabók.
Bókin fjallar um tvö börn sem trúa
því að náttúran sé lifandi og það
eigi að koma vel fram við hana og
sýna henni virðingu. Á sama tíma
finnur stærsta fyrirtæki heims upp
nýja tækni sem framleiðir tíma
með því að setja upp segl á
ákveðnu landsvæði og þegar vind-
urinn blæs í seglin úr austri þá ýtir
vindurinn á móti snúningi jarð-
arinnar þannig að dagarnir lengj-
ast. Börnunum finnst ekki mega
fara svona með vindinn og úr verð-
ur barátta þar sem hópur af börn-
um glímir við voldugasta fyrirtæki
heims.“
Eru umhverfismál kannski und-
irliggjandi þema bókarinnar?
„Já, það er engin spurning. Um-
hverfið er ofboðslega mikilvægt og
stórt mál og á erindi bæði við börn
og fullorðna. Mér finnst eitthvað
svo barnslega einfalt og fallegt við
það að sjá náttúruna í því ljósi að
hún sé lifandi og að við lifum í
henni. Að við séum hluti af henni
en að við stjórnum henni ekki. Ég
held að það sé hugmynd sem verð-
ur að fara að ná fótfestu; að við
leikum okkur ekki að jörðinni eins
og skopparakringlu heldur sjáum
hana eins og lifandi kraft sem við
Leikum okkur ekki að jörðinni
Íslensku barnabókaverðlaunin afhent í gær Fyrsta skáldsaga höfundar
Langaði frekar að skrifa en læra lögfræði Umhverfismál undirliggjandi þema
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stoltur Birkir Blær Ingólfsson hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Stormsker – fólkið sem fangaði vindinn.
búum í. Með bókinni fann ég leið
til að fjalla um þetta á hátt sem
nær til barna en á ekki síður erindi
við fullorðna. Það væri til dæmis
mjög gott ef börn myndu lesa
þessa bók fyrir foreldra sína.“
Upptekinn náttúruunnandi
Birkir segist sjálfur vera nátt-
úrunnandi en hann hafi ekki næg-
an tíma til að vera úti í náttúrunni.
„Ég er haldinn þessari bölvun að
vera alltaf rosalega upptekinn og
hendast á milli staða eins og þeyti-
spjald. En það er einmitt hinn
vinkillinn í bókinni, þetta tíma-
leysi. Þarna er fyrirtæki sem byrj-
ar að selja fólki tíma og allir í
heiminum elska það af því að allir
eru svo uppteknir. Nema börnin.“
Hvernig kviknaði hugmyndin að
bókinni?
„Þetta eru í raun tvær hug-
myndir sem púslast saman í eina
bók. Annars vegar þessi hugmynd
um seglin sem geta framleitt tíma
og í framhaldi af henni kom hug-
myndin um mann sem rak fyrir-
tækið sem setur upp seglin. Þegar
ég svo uppgötvaði að það vantaði
börn inn í söguna sem vildu passa
upp á vindinn áttaði ég mig á því
að þarna væri ég komin með sögu
og byrjaði að skrifa.“
Verðlaunin hvetjandi
Birkir segist vera með nokkrar
hugmyndir í kollinum sem hann
langi að koma frá sér en það verði
að bíða aðeins betri tíma. „Núna er
ég alveg á kafi í starfi mínu hjá
Saga Film þar sem ég vinn við að
skrifa handrit að sjónvarpsþáttum.
Um leið og þau verkefni klárast
kemst ég vonandi í að leggja drög
að næstu verkefnum. En ég mun
pottþétt reyna að skrifa meira.“
Hvaða þýðingu hefur það fyrir
þig að fá barnabókaverðlaunin?
„Svona viðurkenning hefur auð-
vitað heilmikið að segja og er auð-
vitað frábær fyrir sjálfstraustið og
klapp á bakið. Verðlaunin skipta
miklu máli, ekki endilega bara
verðlaunanna vegna, heldur eru
þau ofsalega stórt skref í átt að
því að koma sér af stað. Þau eru
mjög hvetjandi og gefa manni
kannski orku í að leggja af stað
með nýja hugmynd. Sjálfsagt er
þetta persónubundið en ég get
ímyndað mér að maður kannski
klári bensíntankinn á því að vera
endalaust að skrifa án þess að
koma neinu út. Verðlaunin opna
líka dyr inn í Forlagið og gefa
manni tækifæri á að koma hug-
mynd á markað, sem er ofboðslega
mikils virði fyrir mig.“
Jónas Þórir stendur fyrir hádegis-
tónleikaröð í Bústaðakirkju í októ-
ber í tengslum við Bleikan október
þar sem þeirra sem látist hafa af
völdum krabbameins er minnst. Í há-
deginu í dag verður á efnisskránni
djass og sálartónlist. Samkvæmt
upplýsingum frá Jónasi skipar hann
djasskvartett ásamt þeim Ómari
Einarssyni, Jóni Rafnssyni og Erik
Qvick sem leika undir söng mæðgn-
anna Þórdísar og Töru.
Djass og sálar-
tónlist í hádeginu
Glaðbeitt Tónlistarfólkið sem fram kem-
ur á tónleikunum í dag.
Ástralska leikkonan Nicole Kidman
segir hjónabandið með Tom Cruise
hafa verndað sig í Hollywood þegar
hún var yngri. Þetta kemur fram á
vef BBC. „Það að vera gift afar
valdamiklum manni verndaði mig
fyrir kynferðislegri áreitni,“ segir
Kidman, en þau Cruise skildu árið
2001. „Auðvitað hef ég átt mín
MeToo-augnablik – allt frá unga
aldri! Langar mig að deila þeim í
viðtali? Nei. Birtist reynslan í verk-
um mínum? Tvímælalaust.“ Að
sögn Kidman neyddi hjónaskiln-
aðurinn hana til að fullorðnast
hratt. „Auðvitað vann ég, en ég var
samt í verndarhjúp. Þegar hjóna-
bandinu lauk þegar ég var 32-33
ára varð ég nánast að fullorðnast.“
Hjónabandið með
Cruise veitti vernd
AFP
Leikur Nicole Kidman á TIFF í Toronto.
Fyrstu tónleikar vetrarins í tón-
leikaröðinni Klassík í Vatnsmýrinni
verða haldnir í Norræna húsinu í
kvöld kl. 20. Þar koma fram kín-
verski sellóleikarinn Chu Yi-Bing
og píanóleikarinn Aladár Rácz og
leika sellósónötur eftir Ludwig van
Beethoven og Claude Debussy auk
ljóða eftir Gabriel Fauré og verkið
Eclogue eftir kínverska tónskáldið
Sha Hank.
„Chu Yi-Bing stundaði nám í Par-
ís og hefur verið eftirsóttur einleik-
ari um allan heim allt frá því hann
bar sigur úr býtum í alþjóðlegri
keppni í Genf. Hann var fyrsti selló-
leikari sinfóníuhljómsveitar Basel í
fimmtán ár en er nú prófessor við
Central Conservatory of Music í
Beijing, starfar með Chu Yi-Bing
Cello Ensemble og sem skipuleggj-
andi Super Cello-tónlistarhátíðar-
innar i Kína. Aladár Rácz fæddist í
Rúmeníu og stundaði fyrst nám í
píanóleik við Georges Enescu-
tónlistarskólann í Búkarest og síð-
ar framhaldsnám við Tónlistar-
háskólana í Búkarest og Búdapest.
Hann hefur leikið á tónleikum víðs-
vegar um heiminn, leikið inn á
geisladiska og unnið til verðlauna
fyrir píanóleik í alþjóðakeppnum.
Aladár hefur haldið einleiks-
tónleika í Salnum í Kópavogi og
leikið einleik með Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands í píanó-
konserti nr. 1 eftir Beethoven og
píanókonserti nr. 1 eftir Brahms.
Frá 2013 hefur Aladár verið búsett-
ur á höfuðborgarsvæðinu og kennir
nú við Tónlistarskólann Do Re Mi,
Söngskóla Sigurðar Demetz og er
einnig meðleikari í Listaháskól-
anum, auk þess að koma fram á
kammertónleikum og ljóðakvöld-
um,“ segir í tilkynningu.
Eftirsóttur Kínverski sellóleikarinn
Chu Yi-Bing leikur á Íslandi í kvöld.
Sónötur og ljóð í
Norræna húsinu
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Nú einnig netapótek: Appotek.is