Morgunblaðið - 17.10.2018, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Íþessari stuttu en efnismikluskáldsögu Halldóru Thor-oddsen er fjallað um íslensku hippakynslóðina og
hippatímabilið, hvaðan það spratt,
um hvað það snerist en ekki síst
hvort og þá hverju það breytti. Í
afar innihaldsríkum formála grein-
ir höfundur af mikilli sagnalist rót
hippatímabilsins í Bandaríkjunum
áður en sögunni víkur til Íslands,
hvar „þefnæmt ungviðið“ hlýðir
kalli tímans. Unga fólkið á Íslandi
hefur mun fátæklegri forsendur en
jafnaldrar þess í heimsveldinu
vestra til að gera
uppsteyt, það
meira svona
gengst tíðarand-
anum á hönd.
Hryggjarstykkið
í Katrínarsögu
er hippatímabilið
en kjarni hennar
snýst miklu
fremur um hvers
eðlis sannfæring
og hugsjónir eru og spurningin
sem eftir situr er sú hvort allur
þorri fólks sé trúr einhverju öðru
en tíðarandanum, ríkjandi goðsögu
hvers tíma, og verkið talar að því
leyti inni í samtímann.
Katrín og félagar hennar í
menntaskóla stofna kommúnu í
Reykjavík, Bob Dylan er á fón-
inum, pípan gengur hringinn, mál-
að er á Bernhöftstorfunni, djamm-
að í Tjarnarbúð, vírúlpan er
aðalflíkin og margt er skeggrætt.
Þau flytja úr einni kommúnu í
aðra, í Loðmundarfjörð, Kaup-
mannahöfn, Kristjaníu og svo loks
í Hlíðarnar. Einhver verða vímu-
efnum að bráð, morðmál skekur
samfélagið og lögreglan tekur sak-
laus ungmenni í yfirheyrslu og
„ætlar að uppræta þau með morð-
ákærum“.
Halldóra hefur einstakan ríku-
legan stíl og segir hér eins og í
fyrri verkum sínum mikið í fáum
orðum og lætur hugmyndir njóta
sín og kristallast í sterku mynd-
máli og beittu tungutaki. Hún ger-
ir margar óvæntar tengingar og
varpar fram eftirminnilegum og
snjöllum myndum: „Fátæklinga-
auðlindin þornar ekki upp, hún
endurnýjast með auknum krafti,
rök og mjúk.“ Textinn í Katrínar-
sögu er hlaðinn merkingu en einn-
ig eru í bókinni fjölmörg nokkuð
ungæðisleg samtöl hippanna þar
sem kveður við annan tón. Þau eru
dálítið eins og „stakkató“, stutt-
araleg, kveðið er í og úr, farið úr
einu í annað og formið fer þar vel
með efninu, samtöl unga fólksins
vingsast einhvern veginn áfram
eins og fólkið sem hverfur úr einni
kommúnu í aðra, frá einu landi til
annars og úr einum faðmi í annan.
Hugmyndir tvennra tíma eru
tengdar óvænt og skemmtilega
saman. Þannig ganga kröfur hipp-
anna aftur í nýjum en óblíðari
búningum. Nýfrjálshyggjan heimt-
ar líka frelsi en frá reglum sem
hefta gróðann, einhverjar slitrur af
hugmyndinni um frjálsar ástir eru
„sestar að í klámheimum“ og and-
leg rækt er orðin að gróðabralli
enda annar hver maður „orðinn
heilari með blómlega veltu“.
Katrínarsaga er einnig hörð
gagnrýni á samtímann. Sagan
spannar nokkra áratugi eða allt
þar til blómabörnin, sem vissulega
tókst að skekja, trufla og ógna
kerfinu, eru orðin ráðsett og ný
goðsaga hefur velt þeirri gömlu úr
sessi. Ólíkt flestu samferðafólki
sínu er Katrín alltaf trú þeim hug-
myndum sem hún fjárfestir í sem
ung stúlka og ofsafengin peninga-
hyggja vekur henni undrun og
veldur henni beinlínis sársauka: „Í
kringum hana afskræmast andlit í
þessu tryllta klappi og skælbrosi.
Hún sér æði í augum þeirra,
skynjar grimma og gargandi kös.“
Samferðafólk hennar verður
„tíðarandsetið“ eins og Katrín
orðar það, það verður samdauna
nýjum tíðaranda og hlýðir hinum
nýja bjölluhljómi auðhyggjunnar.
Bjölluhljómurinn
kallar sauði sína
Skáldsaga
Katrínarsaga bbbbn
Eftir Halldóru Thoroddsen.
Sæmundur gefur út, 2018. 144 bls.
HILDIGUNNUR
ÞRÁINSDÓTTIR
BÆKUR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hippar „Halldóra hefur einstakan ríkulegan stíl og segir hér eins og í fyrri
verkum sínum mikið í fáum orðum og lætur hugmyndir njóta sín og kristallast
í sterku myndmáli og beittu tungutaki,“ segir um bók Halldóru Thoroddsen.
Atvinna
Utøya 22. júlí
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 75/100
IMDb 7,8/10
Bíó Paradís 20.00
Bráðum verður
bylting!
Árið 1970, í kjölfar mikilla
efnahagsþrenginga, var póli-
tískt andóf fyrirferðarmikil í
íslensku samfélagi.
Morgunblaðið bbbmn
Bíó Paradís 18.00
Sorry to Bother You
Þegar Cassius Green upp-
götvar leynda hæfileika sína
til að hljóma einsog hvítur
sölumaður í síma, virðist allt
ætla að ganga honum í hag-
inn.
Metacritic 81/100
IMDb 7,4/10
Bíó Paradís 22.20, 22.30
Mandy
Metacritic 81/100
IMDb 6,8/10
Bíó Paradís 22.00
Kler (Clergy)
IMDb 6,8/10
Bíó Paradís 17.30, 20.00
Undir halastjörnu 16
Morgunblaðið bbbmn
Smárabíó 20.00, 22.40
Háskólabíó 18.30, 21.40
Borgarbíó Akureyri 21.30
Johnny English
Strikes Again Metacritic 35/100
IMDb 6,7/10
Laugarásbíó 17.45, 20.00
Sambíóin Álfabakka 18.00,
20.00, 22.00
Sambíóin Keflavík 19.30
Smárabíó 15.10, 17.20,
19.50, 22.30
Háskólabíó 17.40, 19.40
Borgarbíó Akureyri 17.30,
19.30
Venom12
Metacritic 35/100
IMDb 7,1/10
Laugarásbíó 19.50, 22.15
Sambíóin Álfabakka 17.10,
17.30, 19.30, 20.00, 21.50,
22.25
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 19.30,
22.00
Smárabíó 16.20, 17.10,
19.00, 19.30, 22.00, 22.10
Borgarbíó Akureyri 19.30,
21.50
Peppermint 16
Metacritic 29/100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 22.15
A Star Is Born 12
Metacritic 87/100
IMDb 8,6/10
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.30, 22.10
Sambíóin Egilshöll 18.00,
20.00, 21.00
Sambíóin Kringlunni 16.45,
19.30, 21.00, 22.15
Sambíóin Akureyri 19.30,
22.20
Sambíóin Keflavík 21.30
The Nun 16
Metacritic 46/100
IMDb 5,8/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
The House with a
Clock in Its Walls
Metacritic 57/100
IMDb 5,9/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 18.50
Sambíóin Akureyri 17.15
Mamma Mia! Here
We Go Again Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 60/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 19.50
Grami göldrótti
Trausti er ungur drengur
sem er óvart sendur yfir til
annars heims þar sem hann
verður að eiga við illgjarnan
galdrakarl, Grami að nafni.
Laugarásbíó 17.45
Smárabíó 15.10, 17.30
Smáfótur Snjómaðurinn Migo segir
sögur af kynnum sínum af
áður óþekktri goðsagna-
kenndri dýrategund, mann-
inum Percy.
Metacritic 58/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.50
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 16.45
Sambíóin Akureyri 17.20
A Simple Favor 12
Háskólabíó 20.30
Kona fer í stríð
Kona á fimmtugsaldri
ákveður að bjarga heiminum
og lýsir yfir stríði gegn allri
stóriðju í landinu.
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 81/100
IMDb 7,7/10
Háskólabíó 18.10
Þegar Magnea 15 ára kynnist Stellu 18 ára
breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim
fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir
þær báðar.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 8,7/10
Smárabíó 16.30, 19.40, 22.20
Háskólabíó 20.50
Bíó Paradís 21.50, 22.00
Borgarbíó Akureyri 17.00
Lof mér að falla 14
First Man 12
Myndin er byggð á ævisögu James Hansen; First Man: A Life Of
Neil A. Armstrong, og segir söguna af fyrstu ferðinni til tungls-
ins, með sérstakri áherslu á
geimfarann Neil Armstrong.
Metacritic 84/100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 17.10, 22.00
Sambíóin Kringlunni 17.00,
20.00
Sambíóin Akureyri 19.30,
22.20
Háskólabíó 18.00, 21.00
Night School 12
Hópur vandræðagemlinga er
neyddur til að fara í kvöldskóla í
þeirri von að þeir nái prófum og
klári menntaskóla.
Metacritic 43/100
IMDb 5,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio