Morgunblaðið - 17.10.2018, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018
Svanurinn, kvikmynd Ásu Helgu
Hjörleifsdóttur, vann til dreifingar-
verðlauna á kvikmyndahátíðinni í
Napólí sem tryggir dreifingu um
alla Ítalíu. Þetta eru fimmtu alþjóð-
legu verðlaunin sem myndin hlýtur.
Í umsögn dómnefndar segir m.a.:
„Með smekklegri og fágaðri notkun
á kvikmyndamiðlinum tekst hér að
tjá bæði mjög flóknar tilfinningar og
hugmyndir, og miðla sjónarhorni
aðalsöguhetjunnar ungu. Samverk-
anin af ólíkum frásagnarsviðum og
túlkun leikaranna með einstakri
birtu, litum og landslagi Íslands
verður allt að því súrrealísk. Í Svan-
inum hlýðum við á eintal sálarinnar,
það sem við höfum aldrei skrifað
niður heldur geymt innra með okk-
ur af afbrýðisemi og nísku. Ásu
Helgu Hjörleifs-
dóttur hefur tekist
að fjalla um og leik-
stýra tilteknu ævi-
skeiði svo það
snerti strengi og
veki hluttekningu
áhorfandans. Svan-
urinn endurkastar
vægðarlausu en
móðurlegu kalli
náttúrunnar í manninum með sögu
af tilvistarlegum þroska á einmana-
legu lífsferðalagi. Sjónrænar frá-
sagnir af Íslandi verða að róman-
tísku samtalsljóði sem auðvelt er að
týna sér í. Sem fullorðið fólk getum
við ekki annað en tekið hugdirfsku
Sólar til hliðsjónar þegar út í hvers-
dagsleikann er komið.“
Gríma Valsdóttir í
hlutverki Sólar.
Svanurinn verðlaunuð í Napólí
Ritlistarnemar,
núverandi og fyrr-
verandi, fagna því
þessa vikuna að tíu
ár eru liðin síðan
ritlist varð að full-
gildri námsgrein
við Háskóla
Íslands. „Í ritlist
gefst áhugasömum
kostur á að þroska
hæfileika sína undir handleiðslu
reyndra höfunda og ritstjóra,“ seg-
ir í tilkynningu.
Í tilefni tímamótanna verður efnt
til ljóðakvölds á Loft hosteli í kvöld
kl. 20; sagnakvölds í Hannesarholti
annað kvöld kl. 20 og hátíðardag-
skrár í Veröld laugardaginn 20.
október kl. 14. Þar munu höfundar
lesa úr verkum sínum auk þess sem
flutt verða örleikrit. Þessa daga
mun Hugrás, vefrit hugvísinda-
sviðs, ennfremur birta væntanlegt
eða nýútkomið efni eftir höfunda
sem hafa numið ritlist.
Á þeim tíu árum sem liðin eru
síðan námið hófst hafa 35 útskrifast
með BA-próf í ritlist, 61 með ritlist
sem aukagrein og 55 með MA-próf.
Höfundar úr röðum ritlistar hafa
sent frá sér um 140 verk af ýmsu
tagi, bækur og leikrit, og hreppt
eða hlotið tilnefningu til allra
helstu bókmenntaverðlauna lands-
ins.
Jónas Reynir
Gunnarsson
10 ára afmæli ritlistar við HÍ fagnað
Matthías Al-
freðsson sér-
fræðingur á
Náttúrufræði-
stofnun Íslands
fjallar í dag, mið-
vikudag, kl.
12.15 um skóg-
armítil og aðrar
tegundir stór-
mítla (Ixodidae)
sem greindar hafa verið á Íslandi.
Erindið fer fram á Náttúrufræði-
stofu Kópavogs og eru allir vel-
komnir. Fyrirlesturinn er liður í
Menningu á miðvikudögum á veg-
um Menningarhúsanna í Kópavogi,
en aðgangur er ókeypis.
Fræðsluerindi á
Náttúrufræðistofu
Skógarmítill
Mats Wibe Lund hefur opnað ljós-
myndasýningu í Norræna húsinu.
Þar getur að líta 53 stórar myndir
úr 60 ára ferli hans sem ljósmynd-
ari. „Myndirnar hans Mats einkenn-
ast af formnæmi og óskeikulli
myndbyggingu þar sem tæknikunn-
átta og listræn gæði haldast í hend-
ur,“ segir í tilkynningu. Samhliða
sýningunni kemur út bókin Frjáls
eins og fuglinn þar sem ljósmynda-
ferill Mats er rakinn í myndum og
máli.
Ljósmynd/Mats Wibe Lund
Fjallasýn Ein myndanna á sýningunni.
Frjáls eins og fuglinn
í Norræna húsinu
Venom, eða Eitur, er ekkieiginleg Marvel-myndþótt persónur hennarkomi úr heimi teikni-
myndaútgáfunnar miklu. Venom er
eiginlega Marvel-afleggjari og í ljósi
þess hvernig til tókst er hæpið að
fleiri myndir verði gerðar um kvik-
indið. Já, kvikindi segi ég því Venom
er óskapnaður sem kemur utan úr
geimnum, lífvera sem líkist síkviku
svörtu hlaupi. Veran er flutt ásamt
fleiri slíkum hlaupkenndum með
könnunargeimfari til jarðar í byrjun
myndar. Fyrir þeim leiðangri stend-
ur siðblindur og valdamikill auðkýf-
ingur, Carlton Drake, sem rekur
einhvers konar háþróað líftæknifyr-
irtæki og þykist ætla að bjarga
mannkyni með því að finna lífvæn-
legar plánetur. Enginn veit hins
vegar að Drake lætur gera tilraunir
á fólki og þá heimilislausum sem
enginn kemur til með að sakna þeg-
ar tilraunirnar fara úrskeiðis og til-
raunadýrin deyja.
Hinn óttalausi sjónvarpsfrétta-
maður Eddie Brock, leikinn af hin-
um ágæta Tom Hardy, er neyddur
af yfirmanni sínum til að taka viðtal
við Drake sem á að vera á jákvæðu
nótunum og sýna hversu snjall og
hjartahlýr frumkvöðull auðkýfing-
urinn er. Brock veit hins vegar af
fórnarlömbum Drakes og þegar
hann gerist of ágengur er viðtalinu
slitið. Brock er rekinn og unnusta
hans segir honum upp í þokkabót og
öll von virðist úti. En þá hefur einn
vísindamanna Drakes samband við
Brock og segir honum frá tilraun-
unum. Vísindamaðurinn laumar
Brock inn á tilraunasvæðið og lætur
hann þar einan en ekki heppnast
heimsóknin betur en svo að svarta
hlaupið, geimveran Venom, fer inn í
líkama hans og þau verða eitt,
Brock og Venom. Þetta samlífi
gengur heldur illa til að byrja með
en Brock kemst fljótlega að því að
hann er ósigrandi þegar Venom tek-
ur af honum völdin. Í þessum hluta
myndarinnar eru bæði æsilegar eft-
irfarir, slagsmál og mannát (sem
betur fer ekki sýnt nákvæmlega
heldur frekar ýjað að því) þar sem
Venom er síhungraður og vill helst
gæða sér á lifandi mönnum og dýr-
um. Já, huggulegt er það og ástæða
til að vara foreldra við að fara með
börn undir 12 ára aldri á þessa of-
beldisfullu kvikmynd. Nær hefði
verið að hækka aldurstakmarkið í 13
eða 14 ár, ef út í það er farið.
En hvað um það. Venom kann vel
við sig í skrokki Brocks og ákveður
að halda kyrru fyrir í honum og á
jörðinni, í stað þess að útrýma
mannkyni og éta það með félögum
sínum utan úr geimnum, eins og til
stóð. En til að koma í veg fyrir eina
allsherjar geimveruinnrás þurfa
Venom og Brock að sigrast á Drake
og enn skæðari geimveru sem hefur
gert hann að hýsli sínum.
Ólíkt öðrum kvikmyndum Marvel
er Venom ekki ofurhetjumynd held-
ur frekar ofurandhetjumynd sem
reyndar mætti líka segja um
Deadpool-myndirnar. Venom er
skaðræðiskvikindi sem nýtir sér lík-
ama saklauss manns en saman
verða þeir á endanum að einhvers
konar hetju þegar þeir ná sam-
komulagi um að éta bara þá sem
eiga skilið að vera étnir. Sumsé
vonda fólkið, glæpamenn og þess
háttar lið. Það er í það minnsta
betra en að éta hvern sem er, ekki
satt?
Venom er skrítin kvikmynd og
heldur ójöfn. Hún er á köflum
spaugileg þótt hún eigi ekki endi-
lega að vera það, t.d. þegar Brock er
nýbúinn að sameinast Venom og
veit ekkert hvað er að honum. Hann
er sísvangur og tekur upp á því að
gæða sér á lifandi humri á fínum
veitingastað, gestum til mikillar
skelfingar. Og hasarinn er stundum
ágætur, það verður ekki af mynd-
inni tekið. En lítið annað er hægt að
telja henni til tekna, nema þá helst
frammistöðu Hardys sem hefur
greinilega ákveðið að taka hlut-
verkið ekki of alvarlega. Enda varla
annað hægt, í ljósi þess sem fram
hefur komið. Hardy er alltaf eins og
nýstiginn upp úr slæmri flensu, eins
og hann sé enn með hita og bein-
verki.
Eins og oftar en ekki vill verða
með svona myndir leysist þessi upp í
eina allsherjar og hundleiðinlega
slagsmálakakófóníu með fyrir-
sjáanlegri útkomu. Eftir ágætis-
byrjun fer Venom síversnandi og
endaði með stórum geispa hjá gagn-
rýnanda. Vonandi vandar Hardy
hlutverkavalið betur í framtíðinni.
Erfitt samlífi
Fyrirsjáanlegt „Eins og oftar en ekki vill verða með svona myndir leysist þessi upp í eina allsherjar og hundleið-
inlega slagsmálakakófóníu með fyrirsjáanlegri útkomu. Eftir ágætisbyrjun fer Venom síversnandi og endaði með
stórum geispa hjá gagnrýnanda. Vonandi vandar Hardy hlutverkavalið betur í framtíðinni,“ segir í rýni.
Sambíó, Smárabíó,
Laugarásbíó og Borgarbíó
Venom bbnnn
Leikstjóri: Ruben Fleischer. Aðalleik-
arar: Tom Hardy, Michelle Williams,
Jenny Slate og Riz Ahmed. Bandaríkin,
2018. 112 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
ICQC 2018-20
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili