Morgunblaðið - 17.10.2018, Blaðsíða 36
Fljúgðu til
Akureyrar
á Kabarett
Menningarfélag Akureyrar og
Air Iceland Connect kynna
Kabarett í Samkomuhúsinu.
Bókaðu flug norður á Kabarett.
airicelandconnect.is
Tríó gítarleikarans Gunnars Hilm-
arssonar leikur á Múlanum á Björtu-
loftum í Hörpu í kvöld kl. 21. Tríóið
spilar „swing“ tónlist fyrir tvo gítara
og kontrabassa. Innblástur að
hljómgrunninum er fenginn frá gít-
arleikaranum Django Reinhardt.
Sveitina skipa auk Gunnars þeir Jó-
hann Guðmundsson á gítar og Leifur
Gunnarsson á kontrabassa.
Tríó Gunnars Hilmars-
sonar á Múlanum
MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 290. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir úr ÍR
varð í gær ólympíumeistari ung-
menna í 200 metra hlaupi í Buenos
Aires í Argentínu. Guðbjörg Jóna
kórónaði þar með frábært keppnis-
tímabil sitt en í sumar varð hún
Evrópumeistari 17 ára og yngri í
100 metra hlaupi og vann brons-
verðlaun í 200 metra hlaupi á sama
móti. »1
Með ólympíugull
frá Buenos Aires
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Gunnar Valgeirsson, NBA-
körfuboltasérfræðingur Morgun-
blaðsins, rýnir í stöðu mála í
NBA-deildinni en keppnistímabilið
í deildinni hófst í Bandaríkjunum
í nótt. Fróðlegt verður að sjá
hvernig stórstjörnunni LeBron
James reiðir af með sínu
nýja liði Los Angeles
Lakers og hvort Golden
State Warriors haldi
sigurgöngu sinni
áfram
en lið-
ið hef-
ur
fagnað
NBA-
meistaratitl-
inum síðustu tvö
árin. »4
Heldur sigurganga
Golden State áfram?
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Auðnutittlingur, sem Sverrir Thor-
stensen merkti á Akureyri 2. janúar
síðastliðinn, endurheimtist í Skagen
á norðurodda Jótlands á sunnudag.
„Þetta er fyrsta erlenda endur-
heimtan á auðnutittlingi merktum á
Íslandi,“ sagði Guðmundur A. Guð-
mundsson, dýravistfræðingur hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands og for-
maður fuglamerkingaráðs. Alls hafa
verið merktir 29.599 auðnutittlingar
frá því að fuglamerkingar hófust hér
árið 1921 til síðustu áramóta. Átak í
merkingu auðnutittlinga hófst 2014
og voru merktir 8.784 auðnutitt-
lingar í fyrra.
Auðnutittlingar hafa margir
vetursetu hér. Guðmundur sagði vit-
að að grænlenskir auðnutittlingar og
hrímtittlingar færu um Ísland vor og
haust á leið sinni til og frá löndum
sunnar í álfunni. Mögulega gæti
fuglinn sem var merktur á Akureyri
hafa komið frá Grænlandi. Guð-
mundur sagði að á liðnu vori hefði
veiðst auðnutittlingur í Skagen sem
merktur var í Kína.
Mikið hefur komið hingað
undanfarið af fágætum flækings-
fuglum. Guðmundur segir að fyrst
hafi komið amerískir flækingar og
svo austrænir. Skýringin á því séu
lægðir sem bera fuglana til landsins.
„Yfirleitt koma flækingsfuglar
hingað á haustin,“ sagði Guð-
mundur. „Það eru oft ungir og
óreyndir fuglar sem lenda í ein-
hverjum hrakningum í farfluginu.“
Gerð er grein fyrir komum
flækingsfugla á síðunum Birding
Iceland og Fuglaathugunarstöð
Suðausturlands á Facebook. Það
sem af er október hafa eftirtaldar
fuglategundir sést hér á landi, sam-
kvæmt síðunum: Rákaskríkja var í
Flóanum, þrír norðuramerískir
græningjar m.a. í Reykjavík, kan-
adagæs í Grindavík og hnoðrasöngv-
ari í Fljótum. Glitbrúsi hélt sig á
Víkingavatni. Moldþröstur var fang-
aður á Höfn 5. október og var það í 7.
sinn sem tegundin var skráð hér.
Vestræn korpönd var í Keflavík og
netlusöngvari á Raufarhöfn. Grá-
hegri var á Melrakkasléttu 8. októ-
ber. Regngaukur fannst dauður í
Fáskrúðsfirði og var það í þriðja
sinn sem tegundin fannst hér. Dul-
þröstur frá Norður-Ameríku sást í
Flóanum og var það 13. fundur teg-
undarinnar hér.
Elrisöngvari sást á Höfn og var
það í 13. skipti á Íslandi. Einnig sást
þar gransöngvari. Daginn eftir sást
skógtittlingur á Höfn og var það í
annað skipti sem tegundin sást hér á
landi. Einnig voru að minnsta kosti
34 hnoðrasöngvarar í Lóni. Fágætur
lensusöngvari sást í Nesjum og var
það í annað skipti sem tegundin
fannst hér á landi. Þá sást einnig
skógtittlingur á Höfn. Dvalsöngvari
sást í Suðursveit og var það í annað
skipti sem sú tegund hafði fundist
hér á landi.
Auðnutittlingur frá
Akureyri til Skagen
Flækingsfuglar hafa streymt til landsins undanfarið
Ljósmynd/Brynjúlfur Brynjólfsson
Dvalsöngvari Fannst nýlega á Höfn í annað skiptið á
landinu en tegundin fannst hér fyrst árið 2004 í Lóni.
Morgunblaðið/Ómar
Auðnutittlingur Fugl merktur á Akureyri endur-
heimtist nýlega í Skagen í Danmörku.