Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 77

Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 77
MENNING 77 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 RAYMOND WEIL söluaðilar: Reykjavík: GÞ - skartgripir & úr, Bankastræti 12, s: 551-4007 Meba, Kringlunni, s: 553-1199 Meba, Smáralind, s: 555-7711 Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10, s: 554 4320 Hafnarfjörður: Úr & Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar, s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður, Hafnargötu 49, s: 421-5757 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi, s: 462-2509 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður, Austurvegi 11, s: 482-1433 Ökuskólinn í Mjódd byggir á margra ára starfsreynslu í öllum greinum ökunáms Veljið stað þar sem fagmennskan er í fararbroddi Ökuskólinn í Mjódd | Þarabakka 3 | 109 Reykjavík | bilprof.is | s. 567 0300 | mjodd@bilprof.is Auk hefðbundins réttindanáms bjóðum við upp á eftirfarandi fjölda námskeiða: • B-réttindi á íslensku, pólsku og ensku • Námskeið vegna akstursbanns • Endurmenntun atvinnubílstjóra • Bifhjólanámskeið • Meiraprófsnámskeið • Afleysingarmannanámskeið á leigubíl Næsta námskeið verður haldið 11. og 12. desember Fyrirtæki geta óskað eftir sérnámskeiðum fyrir hópa. Skráning á námskeiðin fer fram á vefsíðu okkar www.bilprof.is Endurmenntun atvinnubílstjóra Desember Lög og reglur lau. 1. des. kl. 9-16 Vöruflutningar lau. 1. des. kl. 9-16 Umf.öryggi-bíltækni lau. 8. des. kl. 9-16 Skyndihjálp lau. 8. des. kl. 9-16 Farþegaflutningar lau. 15. des. kl. 9-16 Vistakstur lau. 15. des. kl. 9-16 Janúar Lög og reglur lau. 12. jan. kl. 9-16 Vöruflutningar lau. 12. jan. kl. 9-16 Umf.öryggi-bíltækni lau. 19. jan. kl. 9-16 Skyndihjálp lau. 19. jan. kl. 9-16 Vistakstur lau. 26. jan. kl. 9-16 Farþegaflutningar lau. 26. jan. kl. 9-16 PÓLSKA - Endurmenntun á pólsku Endurmenntun á pólsku byrjar eftir áramótin. Upplýsingar og skráning á bilprof.is eða í síma 567 0300. Að leggja náttúruna í söl-urnar til framtíðar fyrirtímabundin, stundum barastundarkorns, lífsgæði er stórvægilegt vandamál jarðarinnar og á margan hátt er samtíminn kom- inn í verulega klípu gagnvart marg- víslegum ógnum er steðja að lofts- lagi, náttúru, dýralífi og mannkyninu sjálfu. Fyrir rúmum mánuði hlaut Birkir Blær Ingólfsson Íslensku barnabókaverð- launin fyrir bók sína, Stormsker - Fólkið sem fang- aði vindinn en Birkir Blær hef- ur áður sent frá sér efni sem skáld, og það á nýstárlegan hátt, svo sem rafljóða- bók og smásögu í myndbandsformi en Birkir hefur talsverða reynslu af skrifum þar sem hann starfar meðal annars sem hand- ritshöfundur. Stormsker er frum- raun hans í útgefinni skáldsögu í fullri lengd. Stormsker – Fólkið sem fangaði vindinn fjallar um ungan dreng, Ópus, sem býr við bág kjör með móð- ur sinni á lítilli eyju lengst norður í hafi. Móðir hans hefur ekki efni á að bjóða Ópusi upp á tómstundastarf, íþróttaiðkun eða slíkt og Ópus drep- ur því tímann til dæmis með löngum gönguferðum uns mamma hans kem- ur heim en hún sinnir nokkrum störf- um til að hafa ofan í þau og á. Ópus á erfitt uppdráttar félagslega og hefur því ekki marga til að deila tilverunni með. Einn daginn fær Ópus óvenju- lega heimsókn sem leiðir hann í heimsókn til eldri konu, Súsönnu, sem krökkunum hefur alla tíð staðið stuggur af. Ópus á bágt með að trúa þeim tíð- indum sem Súsanna færir honum og að hann sjálfur eigi að gegna afar mikilvægu hlutverki þar sem framtíð jarðarinnar velti á hans gjörðum. Tengist það dularfullum og forríkum manni, „forstjóranum“ svokallaða, sem hefur komið sér fyrir á eyjunni og hefur úthugsaðar fyrirætlanir á prjónunum sem munu færa honum mikinn gróða en jörðinni mikla ólukku, nokkurn veginn eins og um- hverfisspjöll nútímans virka en í þessu tilviki er það sjálfur tíminn og vindurinn sem er möndlað við í gróðahagsmunaskyni. Í gegnum fjörlega atburði eignast Ópus góða vinkonu, Fífu, dóttur borgarstjórans, og saman reyna þau að koma fullorðna fólkinu í skilning um mikilvægi þess að stoppa for- stjórann en eina vonin virðist vera að krakkarnir taki höndum saman. Þegar horft er til heildarmyndar- innar er Stormsker góð frumraun og tilhlökkun að fylgjast áfram með Birki Blæ á þessu sviði. Sagan af full- orðna fólkinu sem fangaði vindinn og börnunum sem reyna að koma hon- um til bjargar er vel skrifuð og text- inn flæðir vel, á frjóu máli sem er þó auðskilið og ljóst. Efnið er hugsanaríkt og margar skemmtilegar hugmyndir og ýmis myndræna í textanum sem er eft- irminnileg; svo sem ævintýralegt um- hverfi Súsönnu og sköpunarsaga vindsins er framsækin og sérlega sterk og vel tekst upp við að lýsa náttúruaflinu vindinum á hina ýmsa vegu; hljóðum hans og krafti. Persónusköpun er hófleg og góð, en það vill stundum brenna við þegar söguþráður tilheyrir heimi sem er á hvolfi, að persónurnar fylgi á eftir og verði fjarstæðukenndar líka en þarna eru börnin trúverðug og samspil þeirra og fullorðinna. Þó hefði ekki verið verra ef efnivið- urinn hefði stundum verið tekinn léttari tökum, ekki bara með litum og hreyfanleika, heldur að glettni, húm- or og léttleiki hefðu meira fengið að skjáskjóta yfir sögusviðið því verk sem er þrungið boðskap þarf oft meira á því að halda en önnur. Og þrátt fyrir skemmtilegar og frumlegar myndir voru líka atriði sem eru svolítið endurtekin í barna- bókmenntum svo sem ásjóna „ljóta“ karlsins og á köflum klisjur í fram- vindu sögunnar sem hefði mátt sneiða hjá. Fiktað við tímann Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Birkir Blær „Efnið er hugsanaríkt og margar skemmtilegar hugmyndir.“ Barnabók Stormsker – Fólkið sem fangaði vindinn bbbnn Eftir Birki Blæ Ingólfsson. Vaka-Helgafell, 2018. Innb., 257 bls. JÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR BÆKUR Myndverk eftir nokkra af kunnustu listamönnum íslenskrar myndlist- arsögu verða boðin upp hjá upp- boðshúsinu Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn á mánudaginn kemur. Verðmætasta verkið, sam- kvamt mati uppboðshússins, er lág- myndin Þrá eftir Sigurjón Ólafsson, frá árinu 1940, en matsverð er 150 til 200.000 danskar krónur, 2,8 til 3,8 milljónir króna. Þrá er 119,5 cm breitt verk úr bronsi með hvítri patínu og stendur á plötu úr tekki og furu. Þetta er af- steypa númer 2 af 6. Verkið sem boðið verður upp var fyrir þremur árum á sýningunni Samspil – Sigur- jón Ólafsson & Finn Juhl sem sett var upp í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi. Þar var völdum verkum eftir Sigurjón stillt upp með húsgögnum eftir hinn heimskunna danska hönnuð Juhl. Sigurjón nam og starfaði lengi í Danmörku og þar tengdust þeir Juhl en upphaflega útgáfan af Þrá var sýnd á einni af kunnum hús- gagna- og arkitektúrsýningum Juhls í Snedkerlauget árið 1941. Í bókinni Finn Juhl eftir Esbjørn Hjort má sjá mynd af verki Sigur- jóns með hönnun Juhls og er það þar ranglega eignað Hans Arp, en það hefur síðan verið leiðrétt. Annað verk eftir Sigurjón er einnig boðið upp hjá Bruun Rasm- ussen á mánudag, Sitjandi kona frá 1938, 24 cm hátt verk sem var steypt í brons í 30 eintökum. Mats- verð er 470-570 þúsund krónur. Málverk Ásgríms Jónssonar, Tré í Húsafellsskógi, er 96 x 135 og met- ið á allt að 1,5 milljónir króna, auk gjalda; og landslagsmálverk eftir Jóhannes S. Kjarval frá 1935 sem sýnir Dyrfjöll, 48 x 96 cm, er metið á um 900 þúsund krónur. Þá verður boðið upp málverk eftir Erró frá 1977, How To Drive Your Analyst Crazy!, og er matsverðið það sama og á verkinu eftir Ásmund, 1,5 milljónir króna. efi@mbl.is Þekkt verk Sigurjóns Ólafssonar meðal íslenskra verka á uppboði í Danmörku Þrá Listaverk Sigurjóns Ólafssonar frá 1940 verður boðið upp á mánudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.