Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mikið er um að vera í fiskverkun- inni hjá Búlandstindi á Djúpavogi þessa dagana. Slátrað er laxi frá tveimur fyrirtækjum með hámarks- afköstum um leið og starfsfólkið er að fínstilla ný tæki laxasláturhúss- ins. Þá berst mikill þorskur inn í annan hluta hússins vegna góðrar tíðar og aflahrotu svo varla hefst undan að vinna aflann sem er ýmist fluttur ferskur með flugi á markað eða saltaður. „Þetta er jákvætt vandamál en nú er að koma bræla og þá berst minni afli að. Ekki það að ég hafi óskað mér þess,“ segir Elís Grétarsson, framkvæmdastjóri Búlandstinds. Jafnt flæði lykillinn Heimamenn í Ósnesi og Fiskeldi Austfjarða endurreistu fiskvinnslu Búlandstinds fyrir fáeinum árum. Ósnes gerir út línubát og er í sam- vinnu við fleiri útgerðir á Djúpavogi og Breiðdalsvík og Fiskeldi Aust- fjarða kemur með laxinn sem skap- ar góðan grunn. Nú hafa Laxar fiskeldi bæst í hluthafahópinn og koma með sinn lax til slátrunar. Hver hluthafi á þriðjung í Búlands- tindi. Elís bendir á að aðgangur að hráefni sé undirstaða atvinnunnar í byggðarlaginu og nú líti vel út með það. Nýlokið er uppbyggingu laxa- sláturhússins og hófst slátrun fyrir Fiskeldi Austfjarða í byrjun mán- aðarins. Keyptur var notaður bún- aður frá Noregi og bætt við ofur- kælingu frá Skaganum. „Það er mikil sjálfvirkni í þessu kerfi og þegar búið verður að fínstilla það verður jafnt flæði í gegnum vinnsl- una. Það er lykillinn að því að vel takist til. Við eigum eftir að ljúka ýmsu. Með ofurkælingunni varð- veitast gæði fisksins gríðarlega og líftími hans lengist,“ segir Elís. Afkastagetan 80 tonn á dag Sláturhúsið á að geta annað 100 tonnum á dag, þegar það verður komið í fulla virkni en vinnslugetan nú er 80 tonn. Elís segir að ekki veiti af því þegar verið sé að slátra fyrir tvö laxeldisfyrirtæki. Nú starfa um 20 manns við slátr- un á laxi og Elís reiknar með að þurfa nærri 30 starfsmenn þegar vinnslan verður komin í full afköst. Hjá fyrirtækinu í heild eru nú 50 starfsmenn, á sjó og í landi. Önnur vinnubrögð við laxinn Elís er bjartsýnn á framtíðina. Segir að þegar laxeldisfyrirtækin fái leyfi til að auka við sig og fram- leiðslan verði 30 þúsund tonn í heildina ætti starfsemi sláturhúss- ins að verða samkeppnisfær við stóru fyrirtækin í Noregi. Önnur vinnubrögð eru við laxa- slátrun en vinnslu á þorski og Elís sem alinn er upp við hefðbundinn sjávarútveg segist vera að læra eitthvað nýtt á hverjum degi. Nauð- synlegt sé að hafa gott flæði í laxa- slátruninni því mikill fjöldi laxa þurfi að fara í gegn á hverjum degi. Þá bendir hann á að blóðgunin fari fram í sláturhúsinu, en ekki úti á sjó eins og á þorskveiðum, og því sé í raun búið að sameina vinnuna sem fram fari á veiðiskipunum og í fisk- vinnslunni. Húsið fullt af laxi og þorski  Laxasláturhús byggt upp hjá Bú- landstindi  Ofurkæling eykur gæðin  Hagkvæmara að slátra meira Vinnsla Laxinn er hreinsaður og þveginn í sláturhúsi Búlandstinds áður en hann fer í ofurkælingartankinn og er pakkað. Sláturhúsið er búið sérhæfðum tækjum, bæði nýjum og úr eldri aflagðri verksmiðju í Noregi. Á markað Laxinn á leið á markað. Kristján Ingimarsson, Elís Grétarsson, Valur Traustason, Berit Solvang og Gunnar Steinn Gunnarsson. Það vakti athygli Djúpavogsbúa þeg- ar brunnskipið norska, Lady Anne Marie frá Álasundi, sigldi inn til hafn- ar þar um helgina til að kanna að- stæður vegna verkefnisins sem það hefur verið fengið til, að flytja slátur- fisk úr kvíum Laxa fiskeldis í Reyðar- firði til sláturhúss Búlandstinds á Djúpavogi. Fjöldi fólks leit við til að sjá þetta nýja og glæsilega skip. Skipið liggur við bryggju framan við Búlandstind og dælir laxi inn í vinnsluna eftir því sem hún tekur við. Laxinum er sömuleiðis dælt úr kvíun- um í tvo tanka skipsins. Þeir taka samtals 180 tonn sem svarar til 360 þúsund 5 kílóa laxa. Vel fer um laxinn í tönkum skipsins enda er öllum um- hverfisaðstæðum stjórnað úr brúnni, og því tekur skipið skammta sem henta vinnslunni og útflutningi á hverjum tíma, ýmist til eins, tveggja eða jafnvel þriggja daga. Aðeins er um mánuður frá því norska fyrirtækið Hofseth Inter- national tók skipið í notkun og verk- efnin fyrir Laxa eru fyrstu alvöru verkefnin sem það fer í. Laxar fisk- eldi tók það á leigu til að flytja seiði í stöð sína í Reyðarfirði og flytja lax til slátrunar. Andreas Berg skipstjóri segir að skipið sé búið besta tækjabúnaði sem þekkist, meðal annars til að stýra að- stæðum í fiskitönkunum. Áhersla sé á velferð fisksins, að hann skaddist ekki og sjúkdómar berist ekki á milli. Áhersla á velferð fisksins Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Brunnskip Lady Anne Marie dælir 40 tonnum af laxi inn í sláturhúsið á Djúpavogi. Búlandstindur í baksýn.  Fyrstu verkefni nýs og glæsilegs brunnskips eru fyrir Laxa fiskeldi ALMAR BAKARI BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari Opið mánudaga til laugardaga kl. 7-18, sunnudaga kl. 8-18 SÉRBAKAÐfyrir þig SALATBAR ferskur allan daginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.