Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
talið ráðlegt að hafa meira eldi í
Reyðarfirði en 9.000 tonn, vegna
hættu fyrir villta íslenska laxastofn-
inn. Þakið er hærra ef Reyðarfjörður
og Fáskrúðsfjörður eru metnir sam-
an eins og talað hefur verið um. „Við
vinnum hins vegar út frá því að
stjórnvöld vinni samkvæmt þeim
lögum sem gilda um fiskeldi í land-
inu. Burðarþolsmatið setur þakið og
bestu vísindi, eins og það er orðað í
lögum. Áhættumatið er ekki bestu
vísindi, á því eru miklar brotalamir,“
segir Gunnar Steinn en fyrirtækið
hefur gert alvarlegar athugsemdir
við það í leyfisumsóknum sínum, eins
og sagt hefur verið frá hér í blaðinu.
Gunnar Steinn segir að brautin
hafi átt að vera bein þegar upp-
haflega leyfið fékkst og fyrirtækið
lagt í fjárfestingu upp á hundruð
milljóna til að geta stækkað, meðal
annars með uppbyggingu seiða-
stöðvar. Á þessum árum hafi alls-
konar hindranir verið settar upp,
sumar afturvirkar eins og nú stefnir í
með áhættumatið, og ferlið tafist.
„Við erum komnir með innviði fyrir
16 þúsund tonna framleiðslu og
slæmt að geta ekki nýtt fjárfest-
inguna.“
Byggt upp á Eskifirði
Sjókvíaeldi er ekki aðeins laxa-
hringir úti í sjó. Margvíslega aðra
aðstöðu þarf. Laxar fiskeldi reka
tvær seiðastöðvar í Ölfusi og hafa
byggt landeldisstöð við Laxabraut í
Þorlákshöfn þar sem seiðin eru alin
upp í 150 til 600 grömm áður en þau
eru sett út í kvíarnar. Þessi seiðastöð
er 3. eða 4. stærsta landeldisstöð í
heimi. Hitinn í Golfstraumnum er
nýttur til að ala seiðin og stytta
þannig framleiðslutímann í sjónum.
Fyrirtækið keypti traustar sjókví-
ar, svokallað Midgard-kerfi, sem eru
mun dýrari en aðrar sjókvíar. Þær
hafa verið notaðar í Noregi í fimm-
tán ár og aldrei sloppið fiskur. Þá
lætur Gunnar þess getið að fyrir-
tækið láti einungis stór seiði í kvíar
og ekki sé fræðilegur möguleiki á að
þau smjúgi út um möskvana.
Gunnar Steinn er ánægður með
aðstæður í Reyðarfirði. Segir að fisk-
urinn vaxi ágætlega. Lús er talin
reglulega og hefur enn ekki orðið
vart við laxalús í kvíunum.
Þá þarf aðstöðu í landi. Henni hafa
Laxar fiskeldi komið upp á Eskifirði
en þaðan er stutt út á kvíarnar. Tveir
stórir fóðurprammar eru við sjókví-
arnar. Tveir vinnubátar eru í rekstri
og sá þriðji hefur verið keyptur en er
ókominn. Til gamans má geta þess
að fóðurprammarnir heita Huginn
og Muninn og bátarnir Sif, Hlín og
Iðunn. Valin eru nöfn úr goðafræð-
inni sem tengir saman eigendur
fyrirtækisins í Noregi og á Íslandi.
33 starfsmenn eru hjá Löxum. Þar
af eru 15 á Eskifirði en hinir í Ölfusi
og á skrifstofu í Reykjavík. Gunnar
Steinn segir að fyrirtækið hafi verið
heppið með starfsfólk, fengið fólk
með reynslu og þekkingu á laxeldi.
Þegar hægt verður að auka fram-
leiðsluna mun starfsmönnum fjölga
verulega og flestir þeirra verða ráðn-
ir að starfsstöðinni á Eskifirði.
Slátrað með öðrum
Slátrun er lokahnykkur fram-
leiðslunnar. Laxar fiskeldi vinna að
henni með Fiskeldi Austfjarða og
heimamönnum á Djúpavogi.
Laxinn er fluttur ferskur með
skipum til Evrópu. Þar er hann í
unninn frekar og hluti afurðanna
seldur til Bandaríkjanna og Asíu.
Laxeldisfyrirtækin á Austurlandi
eru ágætlega sett með samgöngur.
Skipafélögin koma þar við vikulega í
siglingum til Evrópu. Grétar Finns-
son, framkvæmdastjóri Laxa fisk-
eldis, segir að laxinn sem slátrað var
á mánudag og þriðjudag fari með
skipi á miðvikudag. Framleiðslan á
miðvikudag og fimmtudag fari í skip
á fimmtudagskvöldi og svo fram-
vegis.
Grétar segir að framleiðslan sé of
lítil til að standa undir rekstri sjálf-
stæðs sláturhúss. Eini möguleikinn
sé því að hafa samvinnu við aðra,
eins og gert hafi verið á Djúpavogi.
Til þess að hægt sé að koma upp
góðu sláturhúsi og fullvinna laxinn
fyrir kröfuharða viðskiptavini á
mörkuðum um allan heim þurfi 35 til
40 þúsund tonna framleiðslu á ári.
Fyrstu afurðirnar á markað
Slátrun er hafin á laxi úr sjókvíum Laxa fiskeldis í Reyðarfirði Fjárfest hefur verið í innviðum
fyrir stækkun en leyfi hafa ekki fengist Framleiðslustjórinn stefnir að 24 þúsund tonna framleiðslu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Laxasmölun Þrengt er að laxinum í kvínni þannig að starfsmenn brunnbátsins geti dælt honum upp í tanka. Laxinn
og starfsmaðurinn láta þetta umstang ekki mikið á sig fá. Það væsir heldur ekki um laxinn í geymum skipsins.
Gunnar Steinn Gunnarsson er
reynslubolti í fiskeldi. Hann hefur ver-
ið búsettur í Noregi stóran hluta
starfsævi sinnar en býr nú á Eskifirði
og er framleiðslustjóri Laxa fiskeldis.
Hann lærði líffræði og tók fram-
haldsnám í fiskilíffræði og fiskeld-
isfræðum og er nú langt kominn með
doktorsnám. Hann hefur starfað við
allar greinar fiskeldis í Noregi, rekið
seiðastöð, sjókvíaeldi og sláturhús.
„Ég hef alltaf haft áhuga á að koma fiskeldi upp á Ís-
landi. Hef þá trú að það orðið mikilvægur atvinnuvegur
fyrir íslenskt samfélag. Áhuginn snýst mest um það en
einnig er áhugavert að geta verið beinn þátttakandi í
uppbyggingunni. Það getur tekið á taugarnar en er
skemmtilegt,“ segir Gunnar Steinn.
Hann stofnaði til laxeldis í Berufirði á árinu 1999,
Salar Islandica, ásamt systkinum sínum. Síðar gekk HB
Grandi til liðs við þau. HB Grandi er hefðbundið sjávar-
útvegsfyrirtæki og hafði áhuga á þorskeldi. Gunnar
Steinn segist ekki hafa haft trú á því og þegar áhersl-
urnar breyttust seldu stofnendurnir sinn hlut. Þorskeld-
ið gekk ekki upp en fjárfestar sem tóku við reka nú Fisk-
eldi Austfjarða og ala lax í Berufirði.
Eftir það fóru Gunnar Steinn og meðfjárfestar hans
að líta til Reyðarfjarðar og úr varð fyrirtækið Laxar sem
nú er í uppbyggingu. Ekki gekk að fá íslenska fjárfesta
til að taka þátt í uppbyggingunni. Hann segist hafa ver-
ið heppinn að fá fjölskyldufyrirtæki í fiskeldi, Måsøval
Fiskeoppdrett, í hluthafahópinn. Þetta sé fólk af þriðju
kynslóð fiskeldisfólks í Noregi. Það kunni að reka fisk-
eldi og viti að það eru ekki alltaf jólin í rekstrinum og
ekki þýði að hætta þótt á móti blási um tíma.
Hefur starfað við allar greinar fiskeldis
GUNNAR STEINN GUNNARSSON HEFUR TRÚ Á LAXELDI Á ÍSLANDI
Gunnar Steinn
Gunnarsson
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tímamót urðu hjá Löxum fiskeldi í
Fjarðabyggð í upphafi vikunnar þeg-
ar fyrstu fullvöxnu löxunum var
slátrað úr kvíum fyrirtækisins í
Reyðarfirði. Afurðirnar eru nú á leið
á markað í Evrópu. Framkvæmda-
stjórinn fagnar manna mest því eftir
átta ára uppbyggingartíma þar sem
fyrirtækið hefur verið rekið með lán-
tökum og hlutafjárframlögum eig-
enda eru loksins að berast tekjur
fyrir seldar afurðir. Frumkvöðullinn
vill stefna að því að vera með 24-25
þúsund tonna framleiðslu á svæðinu.
Þótt nokkur spenningur væri í
starfsmönnum Laxa fiskeldis úti á
sjókvíunum í Reyðarfirði þegar
glæsilegt brunnskip kom til að sækja
lax til slátrunar voru vinnubrögð
þeirra við að smala laxinum saman
fumlaus. Þótt þetta sé fyrsta slátrun
þessa fyrirtækis, fyrir utan slátrun í
upphafi árs vegna nýrnaveiki sem
barst í hluta kvíanna, hafa margir
mannanna langa reynslu af slíkum
störfum erlendis og hérlendis og
kunna vinnubrögðin. Skipið tók tæp-
lega átta þúsund laxa, nákvæmlega
40 tonn í geyma skipsins og sigldi um
nóttina til Djúpavogs þar sem Laxar
eiga aðild að laxasláturhúsi hjá Bú-
landstindi hf.
Til stendur að slátra um 1.700
tonnum af laxi úr kvíunum við Grip-
öldu á næstu tveimur mánuðum en
það er fyrsta kynslóðin hjá Löxum
fiskeldi. Gunnar Steinn Gunnarsson,
framleiðslustjóri og einn af stofn-
endum fyrirtækisins, vonast til að
hægt verði að hefja slátrun í apríl
eða maí úr kvíum við Sigmundarhús.
Þá tekur stöðin Bjarg við en seiði
verða sett í hana á næsta ári. Fram-
tíðin er annars nokkuð óráðin þar
sem ekki hafa fengist svör við um-
sóknum um stækkun leyfa.
Áhættumatið ekki vísindi
Laxar fiskeldi fengu fyrir sex ár-
um leyfi til að framleiða 6.000 tonn af
laxi í Reyðarfirði. Burðarþol fjarðar-
ins var síðar metið 20 þúsund tonn.
Umsókn fyrirtækisins um 10 þúsund
tonna aukningu hefur verið í vinnslu
í kerfinu frá þeim tíma og nú hafa
Laxar óskað eftir 4 þúsund tonnum í
viðbót til að fullnýta fjörðinn. Einnig
hefur verið sótt um 4 þúsund tonna
leyfi í næsta firði fyrir sunnan, Fá-
skrúðsfirði, en burðarþol hans er
metið 15 þúsund tonn.
Svonefnt áhættumat Hafrann-
sóknastofnunar virðist hafa sett
strik í reikninginn en það hefur ekki
verið lögfest. Samkvæmt því er ekki
350 kr.kg
Folaldahakk
Verð áður 699 kr. kg
- 50%
Verð áður 3599 kr. kg
- 35%
Folaldakjöt
af nýslátruðu
3999 kr.kg
Folaldalundir
Verð áður 4999 kr. kg
- 20%
2339 kr.kg
Folalda Piparsteik innralæri
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.