Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 45
Auðveldum ungu fólki að kaupa fyrstu fasteign Húsnæðismál eru velferðarmál. Eitt af meginhlutverkum hins opinbera er að halda uppi öflugu velferð- arkerfi þar sem öllum landsmönnum, óháð búsetu, er tryggð örugg framfærsla, heil- brigðis- og félags- þjónusta, menntun og raunhæfur kostur á að eignast eða leigja sér öruggt húsnæði. Þess vegna verða stjórnvöld og samfélagið sem heild að líta á og nálgast húsnæðismál með sama hætti og önnur brýn velferðar- mál. Staðan á íslenskum húsnæð- ismarkaði er þannig í dag að skortur er á íbúðum fyrir ungt fólk og tekju- lága á viðráðanlegu verði. Sam- kvæmt nýjustu könnun Íbúðalána- sjóðs telja 57% leigjenda sig búa við húsnæðisöryggi samanborið við 94% þeirra sem búa í eigin húsnæði. Ein- ungis 8% leigjenda eru á leigumark- aði vegna þess að þeir vilja vera þar en 64% leigjenda segjast vera á leigumarkaðnum af nauðsyn. Þetta er ekki ásættanlegt. Fasteignaverð hefur stórhækkað og kaupendur að fyrstu íbúð þurfa annað hvort að eiga nokkrar milljónir króna í sparifé eða fá hjálp frá aðstandendum til að geta keypt íbúð. Margir eru í þeirri stöðu að þessir kostur eru einfaldlega ekki í boði. „Að eignast þak yfir höfuðið“ fyrir unga og tekjulága einstaklinga er við núverandi aðstæður risavaxið verkefni svo ekki sé dýpra í árina tekið. Við þessu þarf að bregðast. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar segir: „Ríkisstjórnin mun fara í aðgerðir sem lækka þröskuld ungs fólks og tekjulágra inn á húsnæð- ismarkaðinn. Í því augnamiði verða stuðningskerfi hins opinbera endur- skoðuð þannig að stuðningurinn nýt- ist fyrst og fremst þessum hópum. Meðal annars verða skoðaðir mögu- leikar á því að hægt verði að nýta líf- eyrissparnað til þess.“ Í samræmi við þetta höfum við verið að kortleggja þau úrræði sem stjórnvöld í nágrannalöndum okkar bjóða upp á fyrir tekju- lága á íbúðamarkaði. Þar hefur einkum verið litið til Noregs og Sviss. Í Sviss er heimilt að nýta uppsafnaðan líf- eyrissparnað til að afla eiginfjárframlags vegna íbúðakaupa. Ým- ist er hægt að fá sparn- aðinn fyrirfram- greiddan eða veðsetja hann. Almennur lífeyrissparnaður má vera allt að 90% kaupverðs en viðbótarlífeyrissparnaður allt að 100%. Husbanken, sem er systurstofnun Íbúðalánasjóðs í Noregi, býður upp á sérstakan húsnæðisstuðning, svo- kölluð Startlán, til að aðstoða af- markaðan hóp tekjulágra við að kaupa sér íbúð. Startlán eru íbúðalán með lægri vöxtum og lægri eiginfjár- kröfu en tíðkast á markaði. Þau eru aðeins veitt þeim sem geta ekki aflað sér fjármögnunar fyrir íbúð með hefðbundnum hætti. Stærsti hópur lántaka eru fjölskyldur sem búa við slæma fjárhagslega stöðu en startlán hafa einnig verið veitt m.a. til fyrstu kaupenda, flóttamanna, fólks með fötlun og fólks sem býr við félagsleg vandamál. Nýlega lagði ég fram tillögu í ríkis- stjórn um að farið væri í að útfæra fyrrgreindar lausnir hér á landi. Ég bind miklar vonir við að úrbætur til handa fyrstu kaupendum verði til þess að lækka þröskuld ungs fólks og tekjulágra inn á húsnæðismarkaðinn. Eftir Ásmund Einar Daðason » Stjórnvöld og sam- félagið í heild verða að líta á og nálgast hús- næðismál með sama hætti og önnur brýn vel- ferðarmál. Ásmundur Einar Daðason Höfundur er félags- og jafnréttis- málaráðherra. 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 Jólabaðið Aðventan er á næsta leiti og allt þarf að vera hreint og fínt. Alþingishúsið er þar ekki undanskilið, en það fékk snemmbúna yfirhalningu í tilefni afmælis fullveldisins á laugardag. Kristinn Magnússon Fyrir skömmu sótti ég ásamt öðrum þing- mönnum EFTA- nefndar Alþingis fundi í Brussel og Genf til að ræða samstarf á grundvelli EFTA- samningsins. Eðli máls samkvæmt var innleið- ing þriðja orkupakk- ans á Íslandi þar til umræðu. Þegar kemur að regluverki um nýtingu náttúruauðlinda okkar skapast eðlilega líflegar umræður og sýnist sitt hverjum. Skýrasta dæmið er lög um fiskveiðistjórnun og veiðigjald sem hafa verið deilu- mál í áratugi. Í huga margra er það grundvallaratriði þegar kemur að aðild okkar að EES að í þeim mála- flokki ráðum við sjálf regluverkinu. Þó að reglurnar séu umdeildar verður að halda því til haga að á sviði sjávarútvegsmála höfum við náð árangri langt umfram aðrar þjóðir sem stunda fiskveiðar. Ein ástæðan fyrir þeim árangri er aðild okkar að EES-samstarfinu sem hef- ur tryggt okkur aðgang að innri markaði ESB og skapað þannig grunn fyrir ábatasöm viðskipti við þessar nágrannaþjóðir okkar. EES-samningurinn er að þessu leyti og svo mörgu öðru, ákaflega hagfelldur þjóðarbúinu þrátt fyrir að við höfum orðið að gangast undir regluverk þar sem mörgum okkar finnst að stundum sé of langt seilst. Í einhverjum tilfellum skrifast það á okkar reikning því við stóðum ekki vaktina úti í Brussel þegar reglu- verkið var í smíðum, því það er á því stigi sem við höfum tækifæri til að koma athugasemdum okkar á framfæri og eftir því sem við á, að leggja til breytingar sem við viljum ná fram eða að sækja um und- anþágur frá einhverjum þeim reglum sem til stendur að færa í lög. Sjálfbær nýting náttúruauðlinda er okkur Íslendingum hlutfallslega mikilvægari en öðrum þjóðum og þess vegna eðlilegt að umræður verði krefjandi. Þetta á við um orkupakkann. Íslend- ingar framleiða um það bil 50 MW-stundir af raforku á hvern landsmann á sama tíma og Norðmenn framleiða 15 MW- stundir. Þessar tvær þjóðir bera höfuð og herðar yfir aðrar þeg- ar kemur að þessari framleiðslu. Það er því eðlilegt að margir hafi áhyggjur þegar þeir telja að innleiðing regluverks ESB geti haft takmark- andi áhrif á ákvarðanatöku okkar um skipulag þessara mála til lengri framtíðar og mögulega kallað fram hækkun á raforkuverði til heimila og almenns fyrirtækjarekstrar í landinu. Þeir sem héldu um stjórnartaum- ana þegar þessi vegferð hófst ákváðu að innleiða fyrsta og annan orkupakkann og töldu að það yrði raforkuframleiðslu hér og neyt- endum til hagsbóta. Ekkert af því sem þar var gert hefðum við ekki getað innleitt sjálf, eins og til að mynda að skapa grundvöll fyrir op- inn markað og samkeppni í fram- leiðslu og sölu á rafmagni. Það höf- um við gert í sjávarútvegi með því að hafa markað fyrir veiðileyfi og frjálsa sölu á sjávarafurðum. Við þurftum ekki ESB til að segja okk- ur fyrir verkum í þeim efnum og ár- angur okkar er stórkostlegur borið saman við árangur annarra þjóða. Í dag snýst deilan um viðbótar skatt- lagningu á greinina sem margir telja að svigrúm sé fyrir, á meðan aðrar þjóðir deila um hve mikið þær eigi að styrkja sinn sjávarútveg. Þróun regluverks ESB vegna orkumála var ekki fyrirséð þeim sem á sínum tíma lögðu áherslu á innleiðingu þess hér á landi og það sér ekki fyrir endann á þeim mál- um. Eftir á að hyggja hefði því verið skynsamlegt að við þróuðum okkar eigið regluverk til að gæta hags- muna landsmanna og fyrirtækja í landinu. Tryggja eðlilegan markað og samkeppni sem hefði skilað hag- kvæmum rekstri og bætt hag neyt- enda. Ég get ekki séð að það skipti samstarfsþjóðir okkar nokkru máli þó að við stæðum utan regluverks- ins um orkumál. Þrátt fyrir að vera hlutfallslega stórir framleiðendur er markaðurinn hér örmarkaður í stóra samhenginu, markaður sem skiptir ekki aðra en okkur máli m.a. annars vegna þess hversu langt við erum frá markaði ESB og við erum ekki að tengjast þeim markaði á næstu árum, hvað sem síðar verður. Grundvallarspurning okkar er því eðlileg og henni velti ég upp á fundi með samstarfsþjóðum okkar í vik- unni; á Ísland á þessari stundu eitt- hvert erindi í samstarf um orkumál við nágrannaþjóðirnar? Er þörf á því að efna hér á landi til deilna um viðkvæmt mál þegar afleiðingarnar eru eins óljósar og raun ber vitni og þá ekki síst með tilliti til þess að nú þegar er verið að undirbúa 4. orku- pakkann? Ef við síðar tökum þá ákvörðun að tengja Ísland með raf- orkusæstreng til Evrópu er auðvit- að allt önnur staða uppi og eðlilegt að þá þurfi að samræma reglur hér þeim reglum sem gilda á því mark- aðssvæði. Mín tillaga er því einföld: Setjumst niður með viðsemjendum okkar og förum yfir málin á þessum grunni. Ég sé ekki að þær þjóðir hafi, eins og sakir standa, sérstaka hagsmuni af því að við innleiðum reglur ESB um orkumál. Fyrir Norðmenn er málið mikilvægt, því þeir eiga í miklum og að þeirra mati ábatasömum viðskiptum við Evrópulönd vegna sölu á raforku. Í mínum huga er þetta einfalt mál en það má vel vera að niðurstaðan verði flóknari en virðist við fyrstu sýn, það kemur þá í ljós þegar á reynir. Eftir Jón Gunnarsson » Sjálfbær nýting nátt- úruauðlinda er okk- ur Íslendingum hlut- fallslega mikilvægari en öðrum þjóðum og þess vegna því eðlilegt að umræður verði krefj- andi. Jón Gunnarsson Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Orkupakki Evrópusambandsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.