Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Á fullveldisdaginn, 1. desember, er hálf önnur öld liðin frá fæðingu Haraldar Níelssonar guð- fræðiprófessors. Hann var einn áhrifamesti kennimaður kirkjunnar á fyrri hluta síðustu aldar. Sagt er að hann hafi mótað heila kynslóð guðfræðinga sem voru nemendur hans í Há- skólanum. Langafabarn hans, María Ellingsen leikkona, hefur látið sér annt um minningu hans og ætlar í tilefni afmælisins að lesa upp fyrir- lestur sem hann flutti yfir nemendum sínum um miðjan nóvember 1913. Það gerir hún á af- mælisdaginn kl. 12 í stofu 220 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og eru guðfræðingar dagsins í dag sérstaklega velkomnir. Að auki mun María flytja predikunina Bænin eftir Harald við guð- þjónustu í Fríkirkjunni 2. desember kl 14. En þar flutti Haraldur þessa predikun upphaflega. Alla tíð náinn Haraldur lést um aldur fram vorið 1928, 59 ára að aldri. María segir að hann hafi strax í æsku hennar orðið henni mjög náinn. Mynd af honum var uppi á vegg heima hjá henni og faðir hennar var skírður í höfuðið á honum. „Þess vegna var eins og andi hans svifi yfir vötnum og mér fannst oft eins og góðleg augu hans fylgdu mér þegar ég gekk um æskuheimilið,“ segir hún. Sú samleið hélt áfram þegar hún fór úr for- eldrahúsum. Hún segir að sér hafi alltaf fundist sem Haraldur fylgdi henni í lífinu. Þegar María fermdist á sínum tíma fékk hún að eigin ósk að gjöf frá foreldrum sínum sjálfan ættardýrgrip- inn, biblíu Haralds. Þess nánd sem hún skynjar hefur síðan aukist enn eftir að hún fékk til rann- sóknar bréfa- og predikanasafn Haraldar þar sem hún vinnur að því að færa sögu hans í leik- rænan búning. Þetta eru stórmerkilegar heim- ildir um líf og hugsun guðfræðingsins og pred- ikarans, þjóðfélagið og kristindóm á Íslandi á öldinni sem leið og gefur innsýn inní persónlega sögu hans og karakter. Haraldur ólst upp í trúrækni á heimili for- eldra sinna á Grímstöðum á Mýrum og var trúr þeim trúararfi alla tíð síðan. Hann stundaði skólanám undir handarjaðri Hallgríms biskups Sveinssonar og varð honum mjög handgenginn. Haraldur var mjög samviskusamur og afburða- nemandi. Lauk hann guðfræðiprófi frá Hafnar- háskóla 1897 og var hann fenginn til þýðingar- starfa við Biblíuútgáfuna í kjölfar þess. Vopn gegn efnishyggju Árið 1904 kynntist hann sálarrannsóknum og varð brátt sannfærður spíritisti. Hann lét sig hin óútskýranlegu fyrirbæri lífsins varða og leit á þessar stefnur sem besta vopn kirkjunnar í baráttunni gegn efnishyggju og trúleysi. Árið 1909 var hann kosinn prestur í Reykjavík og gegndi jafnframt prestsþjónustu við holds- veikraspítalann í Laugarnesi. Þótt starfsvett- vangur hans yrði mestmegnis í Háskóla Íslands þá leit stór hluti Reykvíkinga á hann sem sinn prest. Í spönsku veikinni var hann á þönum milli veiks fólks í Reykjavík að hugga og styrkja. 1. desember 1918 stofnaði hann ásamt vini sínum og samstarfsmanni Einari H. Kvaran rithöfundi Sálarrannsóknarfélag Íslands og var varafor- maður þess til dauðadags 1928. Félagið var stofnað til að rannsaka hvort sál mannsins lifi af líkamsdauðann en einnig vildu forsvarsmenn fé- lagsins að það gæfi fólki ljós og von í þeirri sorg sem ríkti í Reykjavík í kjölfar spænsku veik- innar. Haraldur Níelsson varð prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands við stofnun hans árið 1911 og háskólarektor í annað sinn þegar hann lést vorið 1928. Hann var einn helsti boðberi frjáls- lyndu guðfræðinnar á Íslandi á síðustu öld og einn áhrifamesti kennari guðfræðideildarinnar á sinni tíð og margir telja hann hann einn mesta predikara sem íslensk kirkja hefur átt fyrr og síðar. Biðraðir voru við Fríkirkjuna þar sem hann flutti predikanir sínar. Þær ásamt blaða- greinum hans sýna að hann hafði frábært vald á tungunni en röddin var veik og hás vegna mein- semdar í hálsi. Pétur Pétursson prófessor sem skrifað hefur ævisögu hans og gefið út úrval predikana hans hefur getið sér þess til að töfr- arnir hafi m.a. falist í hinum veika rómi, fólki fannst eins og Haraldur væri að hvísla að því sannleikanum og lagði við hlustir. Eins og andi hans svifi yfir vötnum  María Ellingsen minnist 150 ára afmælis langafa síns Haraldar Níelssonar með upp- lestri í Háskóla Íslands Ljósmynd/Úr safni Afmæli Haraldur Níelsson prófessor. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tímamót María Ellingsen í Aðalbyggingu Háskólans með frumrit ræðunnar sem hún endurflytur á laugardaginn. Málverkið er af Haraldi. Atvinna Vatnshitablásarar hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10, græn gata | 200 Kópavogi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.