Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Það er mikil upplifun að sjá náttúru
Íslands og norðurljósin hvelfast yfir
mann í stjörnuverinu í Perlunni.
Tæknin er svo háþróuð að hægt er
að uppfæra myndirnar af reiki-
stjörnunum nánast í rauntíma.
Hægt er að tengja upplýsingar frá
vísindamönnum beint inn í kerfið.
Má fullyrða að þessi 150 manna
sýningarsalur sé sá fullkomnasti
sem settur hefur verið upp á Íslandi.
Hann er í einum tanka Perlunnar.
Áður en gengið er inn í stjörnu-
verið er farið í forrými sem minnir á
dimman helli. Þar eru m.a. hljóð-
listaverk eftir Bryndísi Bolladóttur.
Sævar Helgi Bragason, stjörnu-
áhugamaður og rithöfundur, hefur
sem ráðgjafi komið að undirbúningi
verkefnisins. Stjörnuverið verður
hluti sýningarinnar Undur
íslenskrar náttúru.
Sævar Helgi segir milli þrjú og
fjögur þúsund stjörnuver í heim-
inum. Nýja stjörnuverið í Perlunni
sé með þeim allra fullkomnustu og í
flokki með stjörnuverunum í New
York og Varsjá.
Bylting í kennslu á Íslandi
Stjörnuverið í Perlunni sé því
bylting í stjörnuskoðun og náttúru-
fræðikennslu á Íslandi.
Stjörnuverið verður opnað fyrir
almennum gestum nk. mánudag.
Sýnd er heimildarmynd um Ísland
sem fer með gesti ofan í iður jarðar
og jökla, á iðjagrænar heiðar og út í
stjörnubjartan himingeiminn.
Þremur mánuðum síðar er svo
áformað að hefja sýningar myndar
um norðurljósin sem Sævar Helgi og
fjölmennt lið tæknimanna og lista-
manna hafa unnið að.
Gunnar Gunnarsson, forstjóri
Perlu norðursins, segir tæknina í
stjörnuverinu mjög fullkomna svo
framleiða hafi þurft sérstakt efni til
að tæknin njóti sín til fulls. Upp-
lausnin sé með því besta sem þekkist
í heiminum nú um stundir (8K).
Áhugi erlendis frá
Gunnar áætlar að af þeim þrjú til
fjögur þúsund stjörnuverum sem til
eru í heiminum séu 300 til 400 sem
geti borið efni í upplausninni 2K til
4K og aðeins nokkur sem bera upp-
lausnina 8K. Nokkur erlend stjörnu-
ver hafi þegar sýnt áhuga á mynd-
inni sem Perla norðursins hefur látið
framleiða. Einnig er búið að tilnefna
myndina til alþjóðlegra verðlauna.
„Við stofnuðum því eigið fram-
leiðslufyrirtæki sem getur búið til
svona efni. Það er ekki auðvelt að ná
svo miklum myndgæðum. Til þess að
geta verið með flottasta efnið þurft-
um við því að taka það upp sjálf.
Græjan hérna er ein sú flottasta í
heimi,“ segir Gunnar.
Sýningarkerfið komi frá banda-
ríska fyrirtækinu Evans and
Sutherland, frá Salt Lake City.
Gagnabankinn sé unninn af því og
Geimferðastofnun Bandaríkjanna,
NASA. „Þetta er nánast ótæmandi
gagnabanki um stjörnur og reiki-
stjörnur,“ segir Gunnar.
Óskar Rúnar Harðarson, stofn-
andi og fjárfestir að baki verkefninu,
segir eldgos frábært myndefni. „Um
leið og það fer að gjósa getum við
farið að taka upp efni,“ segir hann.
Sævar Helgi útskýrir svo að við
gerð myndanna sé notast við sex
kvikmyndavélar samtímis. Tölva
setji svo saman myndirnar svo úr
verður 180x360 gráða hvolfmynd.
Sævar Helgi segir það koma á
óvart hversu skýrar myndirnar eru.
„Sólarupprásin er eins og hún
birtist með berum augum. Það er
magnað að sjá Vetrarbrautina.
Stjörnurnar eru allar kristaltærar.
Gæðin skína í gegn. Það taka
kannski ekki allir eftir því en við sem
liggjum í stjörnuskoðun sjáum það
vel. Ég sé þetta fyrst og fremst fyrir
mér sem fræðslumiðstöð og get ekki
beðið eftir því að bjóða skólakrökk-
um og kennurum að fræðast um al-
heiminn. Með þessari tækni er hægt
að sníða hverja sýningu að þörfum
einstakra hópa,“ segir Sævar Helgi.
Sú fyrsta í þessum gæðaflokki
Hann segir norðurljósamyndina
verða „fyrstu norðurljósamyndina
sem gerð er fyrir stjörnuver í heim-
inum í eins miklum gæðum og mögu-
legt er.“ „Myndin er bylting að því
leyti og ég vona að hún rati sem víð-
ast. Myndefnið er frá mjög fallegum
stöðum á Íslandi,“ segir Sævar.
Meðal samstafsmanna hans við
gerð norðurljósamyndarinnar eru
ljósmyndararnir Ragnar Th. Sig-
urðsson, Snorri Þór Tryggvason og
Babak Tafreshi, sem er frá Íran.
Sævar Helgi segir hugmyndir um
að setja upp stjörnukíki á útsýnis-
pallinum í Perlunni. Þaðan sé hægt
að skoða reikistjörnur í sólkerfinu.
Stjörnuhiminninn hvelfist yfir gesti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjörnusalur Sætin hallast aftur og eftir smástund í rökkrinu líður gestum eins og þeir svífi meðal stjarnanna. Hvelfingin skapar sérstaka stemningu.
Nýjar sýningar
» Á laugardaginn, 1. des.,
verður opnuð sýning Náttúru-
minjasafns Íslands, Vatnið í
náttúru Íslands, í Perlunni.
» Þar er fyrir sýningin Undur
íslenskrar náttúru.
» Sex myndvarpar mynda
hvolfmynd í stjörnuverinu en
tölva raðar myndunum saman.
» Annað kvöld, klukkan 17,
verður Sævar Helgi með út-
gáfuhóf við stjörnuverið vegna
bókar hans um svarthol.
Eitt fullkomnasta stjörnuver heims opnað í Perlunni Hefur verið mörg ár í undirbúningi
Heimildarmyndir voru sérstaklega framleiddar fyrir stjörnuverið svo tæknin njóti sín til fulls
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Athafnamenn Gunnar Gunnarsson (til vinstri) og Sævar Helgi Bragason.
Veldu Panodil®
sem hentar þér!
Verkjastillandi og hitalækkan
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra,
Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis
d
dreif
eða lyfjafræ
r par
kanir. Sjá nánari up
flur. Innihelduinntö
ðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaver
ku, Panodil Brus freyðitö
i
a, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til kjum. Hitalækkandi.
serlyfjaskra.is.
gum ver
á www.
acetamól. Við væ
plýsingar um lyfið