Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 Magnús Carlsen varðiheimsmeistaratitilinn íþriðja sinn í gær erhann vann allar þrjár atskákirnar sem hann tefldi við Fabiano Caruana, en eftir jafnteflin tólf í kappskákunum lá fyrir að ein- vígi þeirra yrði útkljáð í skákum með minni umhugsunartíma. Magnús vann Sergei Karjakin í fjór- um atskákum, 3:1, í New York haustið 2016 og og hefur því tvívegis náð að verja titilinn með þessum hætti. Fáir standast norska heimsmeist- aranum snúning í styttri skákum og hann tefldi af miklu öryggi í gær og Caruana fékk engin færi. Hitt er svo annað mál að í fyrstu atskákinni mætti Caruana ákveðinn til leiks og gat náð jafntefli eftir að hafa verið í varnarstöðu um skeið. Þegar þessi staða kom upp eftir 37. leik hvíts var vissulega farið að saxast á tím- ann, en tímamörkin voru 25 10. Þó hefði hann átt að finna bestu vörn- ina: Heimsmeistaraeinvígið í London, 13. skák: Magnus Carlsen – Fabiano Caruana Magnús hafði síðast leikið 37. Hc4-c7. Peðið á e4 er dæmt til að falla en það er spurning um rétta tímasetningu hvenær best er að hirða það. 37. … Kxe4?? Tapleikurinn. Hann varð að skjóta inn 37. … Ha2+! 38. Kh3 og nú 38. Kxe4 því að eftir 39. Kxg7 kemur 39. … Ha1! og heldur jafn- tefli, t.d. 40. Hg5 Kf3! o.s.frv. eða 40. Hb7 Hf1 og f5 peðið fellur. 38. He7+! Kxf5 39. Hxg7 Kf6 40. Hg5 Nú fellur h5-peðið og svartur ræður ekki við frípeð hvíts. 40. … a5 41. Hxa5 a4 42. Ha5 Svarti hrókurinn er í óvirkri að- stöðu á a-línunni en hinum megin getur sá hvíti stutt við sín frípeð. Lokin urðu … 42. … Ha1 43. Kf3 a3 44. Ha6+ Kg7 45. Kg2 Ha2+ 46. Kh3 Ha1 47. h5 Kh7 48. g4 Kg7 49. Kh4 a2 50. Kg5 Kf7 51. h6 Hb1 52. Ha7+ Kg8 53. Hxa2 Hb5+ 54. Kg6 Hb6+ 55. Kh5 – og nú ryðjast peðin fram. Við því er engin vörn og Caruana gafst upp. Þetta tap virtist hafa slæm áhrif á Caruana. Svo virðist sem hann hafi talið sig knúinn að jafna metin þegar í stað og í annarri at- skákinni og þeirri fjórtándu í ein- víginu fór hann of geyst fram: Heimsmeistaraeinvígið í London, 14. skák: Fabiano Caruana – Magnús Carlsen 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Rd5 Rxd5 8. exd5 Re7 Þeir tefla aftur eins og í 12. skákinni. 9. c4 Rg6 10. Da4 Bd7 11. Db4 Db8 12. h4 h5 13. Be3 a6 14. Rc3 a5 15. Db3 a4 16. Dd1 Be7 17. g3 Dc8 18. Be2 Bg4 19. Hc1 Bxe2 20. Dxe2 Df5 Þessi staða er sennilega í jafn- vægi en hér sá Caruana sig knúinn til að láta vaða. 21. c5!? 0-0 22. c6 bxc6 23. dxc6 Hfc8 24. Dc4 Bd8 25. Rd5 e4! Riddarinn virðist vel staðsettur á d5 en hvítur er ekki búinn að ljúka liðsskipan og svartur riddari er á leið á hættulegan stað, e5-reitinn. Nú er best að leika 26. Bd4 með flókinni stöðu þar sem möguleikar svarts eru sennilega betri. En Caruana teygði sig í c-peðið. 26. c7?? Bxc7! Vitaskuld! 27. Rxc7 Re5 28. Rd5 Eða 28. Dd5 Hab8! og vinnur. 28. … Kh7! – og Caruana gafst upp. Nú þurfti hann að vinna tvær síðustu skákirnar. Magnús gætti sín á því að tefla af miklu öryggi en lét þó finna fyrir sér þegar fram í sótti. Um tíma virtist staða hans viðsjárverð en aldrei kom Caruana lagi á hann og teygði sig að lokum of langt og tapaði því öllum þrem aukaskákunum. Magnús Carlsen verður því heimsmeistari næstu tvö árin hið minnsta. Magnús Carlsen varði heims- meistaratitilinn Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is AFP Kátur heimsmeistari Magnús Carlsen var að vonum glaður í bragði á blaðamannafundi í gærkvöldi. Fabiano Caruana, sem sést í baksýn, var ekki eins glaðlegur enda hafði Carlsen yfirburði í bráðabananum í gær. Rekstrarland er hluti af Olís Nilfisk gólfþvottavélarnar fást í mörgum stærðum og útfærslum sem henta smáum jafnt sem stórum fyrirtækjum. Sölufulltrúar okkar veita ráðleggingar um þá stærð og tegund sem hentar hverju sinni. Nilfisk fæst í verslun Rekstrarlands, Vatnagörðum 10 og hjá útibúum Olís um land allt. NILFISK GÓLFÞVOTTAVÉLAR LÉTTA STÖRFIN Pantanir í síma 515 1100 og pontun@olis.is SC351 Vörunr. 112623 BR 752 Vörun. 113403 SC500 Vörunr. 113282 P IP A R \T B W A • S ÍA Str. 38-58 Flott föt, fyrir flottar konur Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.