Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Magnús Carlsen varðiheimsmeistaratitilinn íþriðja sinn í gær erhann vann allar þrjár
atskákirnar sem hann tefldi við
Fabiano Caruana, en eftir jafnteflin
tólf í kappskákunum lá fyrir að ein-
vígi þeirra yrði útkljáð í skákum
með minni umhugsunartíma.
Magnús vann Sergei Karjakin í fjór-
um atskákum, 3:1, í New York
haustið 2016 og og hefur því tvívegis
náð að verja titilinn með þessum
hætti.
Fáir standast norska heimsmeist-
aranum snúning í styttri skákum og
hann tefldi af miklu öryggi í gær og
Caruana fékk engin færi. Hitt er svo
annað mál að í fyrstu atskákinni
mætti Caruana ákveðinn til leiks og
gat náð jafntefli eftir að hafa verið í
varnarstöðu um skeið. Þegar þessi
staða kom upp eftir 37. leik hvíts
var vissulega farið að saxast á tím-
ann, en tímamörkin voru 25 10. Þó
hefði hann átt að finna bestu vörn-
ina:
Heimsmeistaraeinvígið í
London, 13. skák:
Magnus Carlsen – Fabiano
Caruana
Magnús hafði síðast leikið 37.
Hc4-c7. Peðið á e4 er dæmt til að
falla en það er spurning um rétta
tímasetningu hvenær best er að
hirða það.
37. … Kxe4??
Tapleikurinn. Hann varð að
skjóta inn 37. … Ha2+! 38. Kh3 og
nú 38. Kxe4 því að eftir 39. Kxg7
kemur 39. … Ha1! og heldur jafn-
tefli, t.d. 40. Hg5 Kf3! o.s.frv. eða
40. Hb7 Hf1 og f5 peðið fellur.
38. He7+! Kxf5 39. Hxg7 Kf6 40.
Hg5
Nú fellur h5-peðið og svartur
ræður ekki við frípeð hvíts.
40. … a5 41. Hxa5 a4 42. Ha5
Svarti hrókurinn er í óvirkri að-
stöðu á a-línunni en hinum megin
getur sá hvíti stutt við sín frípeð.
Lokin urðu …
42. … Ha1 43. Kf3 a3 44. Ha6+
Kg7 45. Kg2 Ha2+ 46. Kh3 Ha1
47. h5 Kh7 48. g4 Kg7 49. Kh4 a2
50. Kg5 Kf7 51. h6 Hb1 52. Ha7+
Kg8 53. Hxa2 Hb5+ 54. Kg6 Hb6+
55. Kh5
– og nú ryðjast peðin fram. Við
því er engin vörn og Caruana gafst
upp.
Þetta tap virtist hafa slæm áhrif
á Caruana. Svo virðist sem hann
hafi talið sig knúinn að jafna metin
þegar í stað og í annarri at-
skákinni og þeirri fjórtándu í ein-
víginu fór hann of geyst fram:
Heimsmeistaraeinvígið í
London, 14. skák:
Fabiano Caruana – Magnús
Carlsen
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7.
Rd5 Rxd5 8. exd5 Re7
Þeir tefla aftur eins og í 12.
skákinni.
9. c4 Rg6 10. Da4 Bd7 11. Db4
Db8 12. h4 h5 13. Be3 a6 14. Rc3
a5 15. Db3 a4 16. Dd1 Be7 17. g3
Dc8 18. Be2 Bg4 19. Hc1 Bxe2 20.
Dxe2 Df5
Þessi staða er sennilega í jafn-
vægi en hér sá Caruana sig knúinn
til að láta vaða.
21. c5!? 0-0 22. c6 bxc6 23. dxc6
Hfc8 24. Dc4 Bd8 25. Rd5 e4!
Riddarinn virðist vel staðsettur á
d5 en hvítur er ekki búinn að ljúka
liðsskipan og svartur riddari er á
leið á hættulegan stað, e5-reitinn.
Nú er best að leika 26. Bd4 með
flókinni stöðu þar sem möguleikar
svarts eru sennilega betri. En
Caruana teygði sig í c-peðið.
26. c7?? Bxc7!
Vitaskuld!
27. Rxc7 Re5 28. Rd5
Eða 28. Dd5 Hab8! og vinnur.
28. … Kh7!
– og Caruana gafst upp.
Nú þurfti hann að vinna tvær
síðustu skákirnar. Magnús gætti
sín á því að tefla af miklu öryggi en
lét þó finna fyrir sér þegar fram í
sótti. Um tíma virtist staða hans
viðsjárverð en aldrei kom Caruana
lagi á hann og teygði sig að lokum
of langt og tapaði því öllum þrem
aukaskákunum.
Magnús Carlsen verður því
heimsmeistari næstu tvö árin hið
minnsta.
Magnús Carlsen
varði heims-
meistaratitilinn
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
AFP
Kátur heimsmeistari Magnús Carlsen var að vonum glaður í bragði á
blaðamannafundi í gærkvöldi. Fabiano Caruana, sem sést í baksýn, var ekki
eins glaðlegur enda hafði Carlsen yfirburði í bráðabananum í gær.
Rekstrarland er hluti af Olís
Nilfisk gólfþvottavélarnar fást í mörgum stærðum og útfærslum sem
henta smáum jafnt sem stórum fyrirtækjum. Sölufulltrúar okkar veita
ráðleggingar um þá stærð og tegund sem hentar hverju sinni.
Nilfisk fæst í verslun Rekstrarlands, Vatnagörðum 10 og hjá útibúum Olís um land allt.
NILFISK
GÓLFÞVOTTAVÉLAR
LÉTTA STÖRFIN
Pantanir í síma
515 1100 og
pontun@olis.is
SC351
Vörunr. 112623
BR 752
Vörun. 113403
SC500
Vörunr. 113282
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
Str.
38-58
Flott föt, fyrir flottar konur
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna