Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 67
MENNING 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 Árni Matthíasson arnim@mbl.is Við vissum það ekki þá, en þetta var bara eitt af ótal mörgum atvikum þetta árið. Ekkert þeirra var eins, en öll svipuð í eðli sínu. Nokkrum vikum síðar sá ég hreindýr úti á fótboltavelli þegar ég var að labba heim. Ég stoppaði og það leit í átt að mér. Það var með andlit gamallar manneskju. Þá vissi ég að heimurinn sem ég hafði alist upp í væri horf- inn fyrir fullt og allt. Þessi texti birtist snemma í skáldsögunni Vættir eftir Alexander Dan Vilhjálmsson, en bókin gerist í hliðstæðum veruleika við okkar nema smám saman hafa torkennilegar vættir birst víða um land, og víða um heim reyndar, fyrst á Íslandi en síðan birtast vættir í hverju landinu af öðru. Fyrsta skáldsaga Alexanders, Hrímland, kom út fyrir fjórum árum. Hann snaraði henni síðan á ensku og breska stórfyrirtækið Gollancz hyggst gefa hana út ytra á næsta ári. Það hefur því verið í nógu að snúast á árinu, því ekki var hann bara að ganga frá Vættum til útgáfu, heldur vann hann í hand- ritinu að enskri útgáfu Hrímlands og einnig að framhaldi þeirrar bókar, því Gollancz vill meira. Skrifaði ekki neitt í heillangan tíma Spurður um tilurð Vætta segir Alexander að hann hafi verið týndur með áframhaldið eftir að hafa gefið Hrímland út sjálfur. „Mér fannst ég gæti ekki fundið þeim sögum sem ég vildi skrifa farveg á Ísland, var svo upp- gefinn. Ég þýddi svo bút af Hrímlandi og sendi til Gollancz í hálfkæringi í byrjun jan- úar 2016, bara til að hafa eitthvað að gera, en gafst svo eiginlega upp á því verkefni, fannst ég þurfa að gera eitthvað annað. Ég skrifaði ekki neitt í heillangan tíma, langaði að gefast upp en sætti mig ekki alveg við það og Vættir verður til sem smásaga haustið 2016. Svo sendi ég smásöguna hingað og þangað, en fólk ýtti á mig að gera aðeins meira úr þessu. Ég skoðaði málið og fannst ég geta búið til úr smásögunni stutta skáldsögu sem stæði ein og sér. Ég skrifaði svo Vætti frameftir ári ár- ið 2017, en í enda sumars 2017 heyrði ég svo frá Gollancz sem vildi gefa Hrímland út á ensku. Ég kláraði svo að þýða hana á ensku og að skrifa Vætti í resídensíu fyrir listamenn í Norður-Japan en ritstýrði báðum handrit- unum í sumar. Hrímland breyttist heilmikið í ritstýringu á ensku og hefur lengst töluvert. Samtímis því var ég að ritstýra Vættum í vor og í sumar og það var hellað.“ Mjög upptekinn af mörkum hins raunverulega og óraunverulega — Var það þér mikilvægt að Vættir kæmu út á þessu ári? „Já, það var mér mjög mikilvægt að hún kæmi út í haust. Ég varð að klára eitthvað fyrir sjálfan mig og finna að ég hafi áorkað einhverju, en líka útaf starfslaunum lista- manna — ég er ungur óþekktur rithöfundur og ég verð að sýna fram á framleiðni, ég get ekki leyft mér of langan biðtíma á milli verka.“ — Mér finnst Vættir vera bók um það hvað línan á milli þess sem við teljum raunverulegt og óraunverulegt getur verið ógreinileg. „Ég er mjög upptekinn af mörkum hins raunverulega og óraunverulega og helst að reyna að má þau út. Vættirnir í bókinni eru mjög hversdagslegir, en fyrir lesandanum og sögupersónum mjög ókennilegir og óþægileg- ir en þetta er líka í kontrast við ónáttúruna við það að vera mennskur. Vættirnir eru okk- ur ónáttúrulegir en samt hluti af náttúrunni sem við erum ekki, það er okkar ónáttúra að vera utangátta í náttúruríkinu. Þarna byrjar náttúran að færa sig inn á okkar ónáttúru, inn á okkar mennska svið og þessi kontrast er eitthvað sem ég er mjög upptekinn af. Það sem situr í aðalpersónunni er hans eigin mennska og meðvitundin – sem hann kannski afneitar eða yfirgefur eða kemst yfir í lokin. Það er svo margt órætt í bókinni og ég er svo hrifinn af því að það sé órætt. Ég hef heyrt í fólki sem lesið hefur bókina og það kemur mér á óvart hve mismunandi merking er lögð í ýmsa hluti sem kennir mér að vera ekki mjög upptekinn af því að sjá fyrir túlkun annarra, ég er frekar að reyna að skilja hvað felst í því sem ég er að segja að því marki sem ég get. Styrkur furðusögunnar liggur svolítið í þessu, hún opnar fyrir nýja sýn á hlutina og mér finnst hún einstök í bók- menntaheiminum sem verkfæri til að kanna flóknar, stórar spurningar og hugtök.“ Afneitunin ræður okkar sýn á hlutina „Í Vættum fær maður aldrei að staldra nógu lengi við í okkar hversdagsleika, þess vegna er þetta fyrstu persónu frásögn og hans afneitun ræður okkar sýn á hlutina. Þegar við teljum hlutina vera eðlilega þá er það vegna þess að sögumaðurinn kýs ekki að lýsa eða takast á við umhverfi sitt sem hefur gjörbreyst. Þessi afneitun er sögumanni styrkur og varnarviðbrögð, en hún er líka al- gjört böl. Stundum kemur eittvað fyrir sem hann getur ekki afneitað og þess vegna læðist það inn í frásögnina. Þess vegna finnst mér túristakaflinn svo skemmtilegur, þegar sögumaðurinn situr í Bríetargarðinum og kýs að tala ekki um það sem er fyrir allra augum, vættina. Þessi kafli er eitt það fyrsta sem ég skrifaði þegar ég var að búa til smásöguna og síðan hef ég setið svolítið í þessum reit, ég stoppa þar oft þegar ég er á vappi niðri í bæ. Svo lenti ég í því í enda sumars að ég sat á reitnum og kemur ekki hópur af túristum, alveg eins og í bók- inni, og fararstjórinn byrjar að básúna um femínisma á Íslandi, að garðurinn heiti eftir Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, það sé svo ótrúlega mikið kynjajafnrétti á Íslandi, ekkert kyn- ferðisofbeldi og enginn kynjamunur — hann lýsir glansmynd af Íslandi sem er ekki sönn og ég sit þarna eins og fáviti. Þetta var eins og atriði úr bókinni, þar sem fararstjórinn lýgur um eðli vættanna. Rétt eins og aðal- persónuna langaði mig að skipta mér af og segja: þetta er ekki alveg satt sem þú ert að segja, þú ert að moka yfir massíf vandamál í samfélaginu, kynbundið ofbeldi og svo fram- vegis, en svo segi ég ekki neitt, sit og þegi. Þetta atvik hefur setið í mér síðan. Þetta var of nálægt því sem ég hafði skrifað fyrir næst- um ári, þetta var list að líkja eftir lífi að líkja eftir list.“ Ónáttúran við það að vera mennskur  Í skáldsögunni Vættir eftir Alexander Dan Vilhjálmsson birtast torkennilegan verur hér og þar í umhverfi okkar og má út mörk hins raunverulega og óraunverulega Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Furðusögur Rithöfundinum Alexander Dan Vilhjálmssyni fannst erfitt að finna þeim sögum sem hann vildi skrifa farveg á Íslandi . Óvelkomna manninum eftirJónínu Leósdóttur mættilýsa sem eins konargamanglæpasögu, en þessi þriðja bók í Eddumálabálkn- um fjallar um eftirlaunaþegann Eddu sem á ótrúlegan og jafnframt óborganlegan hátt flækist í glæp- samlega atburðarás eða tvær. Eddu er bókstaflega ekkert óviðkomandi og henni er mikið í mun að hafa stjórn á öllu og öllum í kring um sig. Henni tekst það raunar vel, eða alla- vega að hennar eigin mati, en flestum ætti að þykja persóna Eddu nokkuð kunnugleg. Hún minnir helst á gamla frænku okkar allra, jú, eða ömmu, sem skiptir sér af öllu mögulegu. Í Óvelkomna manninum fellur maður fram af svölum í blokk- inni hennar Eddu á Birkimelnum. Sá var líklega óvelkominn í blokk- inni og í gleðskapnum á hæðinni fyr- ir ofan Eddu, sem hélt henni vak- andi. Þess vegna sá hún líka son sinn, dauða- drukkinn, koma við í blokkinni um miðja nótt. Son- inn, sem, ólíkt unnusta hans, þolir ekki móður sína, en það er einmitt móðir tengdasonar Eddu sem er í eins konar auka-aðal- hlutverki í Óvelkomna manninum. Maður úr fortíð Sigurbjargar kemur óvelkominn í heimsókn til Íslands og Edda neyðist til að halda fjölda bolta á lofti í tilraun til þess að halda frið- inn. Persóna Eddu er grátbrosleg og vekur aðdáun á sama tíma og af- skiptasemin gengur of langt. Jónínu tekst einnig að vekja flestar auka- persónur sögunnar til lífsins í huga lesenda og álit þeirra verður það sama og álit Eddu á hverri persónu fyrir sig. Viktor tengdasonur er bestur allra, Snorri, elskhugi hans, er kaldlyndur og þolir ekki móður sína og Leif, hinn tengdasoninn, er hægt að ráðskast ágætlega með, lög- reglumanninn sjálfan. Gustav af efri hæðinn er talsvert dularfyllri per- sóna en hinar aðalpersónurnar, enda er hann einn af fáum sem Edda sjálf áttar sig ekki almennilega á. Finnur á hæðinni fyrir neðan er meinlaus, en allir þeir sem koma að fyrirtæki Theodórs eru óþokkar og bjálfar. Það er gaman að fylgjast með Eddu og Jónína segir skemmtilega frá raunum hennar og tilraunum. Sagan snýst líka um svo miklu meira en bara hasarinn, en Jónína fjallar vel um það fallega samband sem getur myndast á milli tengdamóður og -sonar, á milli sonar og móður, og jafnvel sambönd tveggja samkyn- hneigðra para sem ákveða að eign- ast börn saman. Allt í allt er bókin fínasta afþreyingarefni og gaman yrði að fylgjast með Eddu í næstu ævintýrum. Af afskiptasömu frænku okkar allra Morgunblaðið/Eggert Gamanglæpasaga Óvelkomni maðurinn er þriðja bókin í Eddumálabálki Jónínu Leósdóttur sem fjallar um eftirlaunaþegann Eddu. Skáldsaga Óvelkomni maðurinn bbbmn Eftir Jónínu Leósdóttur. Mál og menning, 2018. Kilja. 296 bls. ÞORGERÐUR ANNA GUNNARSDÓTTIR BÆKUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.