Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 39
búist við uppreisn. Frakkar standa
með gulvestungum því Macron lof-
aði þeim nýjum heimi. En þeir sjá að
stefna hans er ekki að skila betri
veröld,“ sagði Bruno Retailleau,
leiðtogi Repúblikanaflokksins í öld-
ungadeild franska þingsins, í blaðinu
Journal du Dimanche. Hann sagði
þjóðina líta á umhverfisrökin fyrir
eldsneytissköttunum sem sýndar-
ástæðu til að herða sultaról almenn-
ings.
Macron var kjörinn forseti út á
loforð um að nútímavæða efnahags-
lífið. Hann á nú á brattann að sækja
vegna óþolinmæði kjósenda sem
kveðast enn bíða eftir því að sjá
ábata breytinga.
25% stuðningur
Vinsældir Emmanuels Macrons
hafa dvínað óvenju hratt undanfarna
mánuði. Nýtur hann nú einungis
trausts 25% þjóðarinnar samkvæmt
skoðanakönnun Ifop-stofnunarinnar
sem birt var sunnudaginn 18.
nóvember, daginn eftir upphaf mót-
mæla gulvestunga á götum úti.
Greinendur segja niðurstöðuna end-
urspegla útbreidd og almenn von-
brigði með hinn fertuga forseta.
Minnkaði stuðningur við hann á ein-
um mánuði um fjögur prósentustig,
en könnunin var gerð 9. til 17.
nóvember.
Fyrir utan 25% sem sögðust „afar
sátt“ við Macron sagðist 21% vera
„tiltölulega sátt“. Tiltölulega ósátt
voru 34% og afar ósátt voru 39%.
Fjótlega eftir kosningu hans í maí í
fyrra tóku stuðningsmenn forsetans
að snúa við honum baki. Hefur hert
á þeirri þróun síðasta hálfa árið.
Niðurstaða Ifop-könnunarinnar
þykir renna frekari stoðum undir
flóttann og kannanir annarra hug-
veitna eru í sömu átt. Þessi þróun er
í takt við það sem tveir forverar
Macron máttu upplifa. Á sama tíma,
hálfu öðru ári eftir kosningar, var
stuðningur við Francois Hollande
hruninn niður í 20% og Nicolas Sar-
kozy fallinn í 44%.
Fátækt dreifbýlisfólk
Að stórum hluta eru gulvestungar
úr dreifbýli, þar sem húsnæði er
ódýrara en í borgum og kaupið
lægra. Stjórnmálaskýrendur segja
hreyfinguna athyglisverða sakir þess
að hún hafi verið höfuðlaus her sem
skipulagt hafi sig á samfélags-
miðlum. Vegna þessa hafa kröfur
gulvestunga verið fremur óform-
legar; ókristallaðar. Þeim finnst þeir
hafa verið afskiptir og vera fórnar-
lömb ákvarðana stjórnmálaelítunnar
í París. Þetta fólk nýtur yfirleitt
lágra launa og hefur verið forset-
anum sérdeilis reitt fyrir að hækka
eldsneytisskatta sem bíta það beint.
Það gagnrýnir og hart niðurfellingu
auðlegðarskatts hinna ríku og fast-
eignaskatta. Þetta fólk kemst ekki af
án bíls til útréttinga og til að sækja
vinnu. Í byggðum þeirra nýtur
hvorki almenningssamgangna við né
annarrar opinberrar þjónustu.
Keyra verði eftir henni tugi kíló-
metra og annað eins til að stunda
vinnu. Getur verið um tuga kíló-
metra óhjákvæmilegan akstur að
ræða hjá þeim á degi hverjum.
Vegna aukins kostnaðar við akstur-
inn hefur stærri skerfur heimilis-
teknanna farið í eldsneytiskaup.
Kvarta margir og segja aldrei hafa
verið eins erfitt að draga fram lífið
og nú. Því vilja þeir að eldsneytis-
skattarnir verði aflagðir. Þeir kalla
og eftir aukinni félagslegri aðstoð
handa þeim tekjuminnstu og síðast
en ekki síst hafa gulvestungar kraf-
ist afsagnar Macrons.
Gulu vestin sem mótmælendur
skrýddust voru tákn mótmælanna. Í
öryggisskyni er skylt að hafa þau í
öllum bílum ef t.d. leggja þyrfti þeim
á vegarkanti vegna bilunar eða til að
skipta um loftlaust dekk. Í aðdrag-
anda mótmæla gulvestunga reyndi
ríkisstjórnin að draga úr spennunni
með ráðstöfunum sem áttu að auð-
velda tekjuminni fjölskyldum og
hópum að borga eldsneytisreikninga
sína. Það hafði hún dregið of lengi
því aðgerðirnar breyttu engu um
staðfestu mótmælenda.
Raðir riðlast
Lögreglan áætlaði að um 283.000
manns hefðu tekið þátt í mótmælum
gulvestunga um land allt á fyrsta
degi. Eftir það dró úr þátttökunni og
voru sárafáir enn að nú í vikubyrjun.
Enn var í gær haldið úti vegalok-
unum á stöku stað en áhrif þess voru
afar staðbundin. Voru raðir gulvest-
unga farnar að riðlast og ágreiningur
um hverjir réðu ferðinni í óform-
legum samtökum kom upp á yfir-
borðið.
Fyrstu daga mótmælanna nutu
gulvestungar stuðnings stærri
skerfs Frakka en önnur samtök sem
andæft hafa Macron frá því hann var
kjörinn Frakklandsforseti í maí í
fyrra. Fulltrúar stjórnarandstöð-
unnar hafa hamrað á hinum almenna
stuðningi við mótmælin. Fyrir þeim
stóð ómótuð grasrótarhreyfing sem
varð til með samblæstri óánægju-
radda á samfélagsmiðlum. Voru
þessir miðlar brúkaðir til að skipu-
leggja og stýra aðgerðum. Eru þetta
fyrstu fjölmennu mótmælin í Frakk-
landi sem stjórnmálaflokkar og/eða
stéttarfélög standa ekki á bak við.
„Þegar hreyfing nýtur stuðnings
75% þjóðarinnar verður að svara
kröfum hennar. Það gengur ekki að
afskrifa hópinn sem fantagengi,“
sagði Olivier Faure, leiðtogi Sósíal-
istaflokksins, við blaðið Le Parisien.
Ljótt um að litast á
fallegustu götunni
Kveikt var í vegartálmum, rúður
brotnar í verslunum með lúxusvarn-
ing og umferðarljós rifin upp með
rótum á Eilífðarvöllum, Champs-
Élysées-breiðgötunni í París.
AFP
Bílabrennur Vörubíll brennur á breiðgötunni Champs-Élysées í París í mótmælaaðgerðum svonefndra gulvestunga
gegn hækkandi verði á eldsneyti og fleiri vörum. Lögregla beitti táragasi og vatnsbyssum gegn mótmælendunum.
SJÁ SÍÐU 40
39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
*M
ið
að
vi
ð
u
p
p
g
ef
n
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
d
a
u
m
el
d
sn
ey
ti
sn
o
tk
u
n
íb
lö
n
d
u
ð
u
m
ak
st
ri
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
0
7
1
4
www.renault.is
RENAULT KANGOO, DÍSIL
1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL
Verð:2.411.000 kr. án vsk.
2.990.000 kr.m. vsk.
Eyðsla 4,3 l/100 km*
RENAULT TRAFIC, DÍSIL
1,6 L. VÉL, 115 HESTÖFL
Verð frá:3.218.000 kr. án vsk.
3.990.000 kr.m. vsk.
Eyðsla frá 6,5 l/100 km*
RENAULTMASTER, DÍSIL
2,3 L. VÉL, 125 HESTÖFL
Verð frá:4.024.000 kr. án vsk.
4.990.000 kr.m. vsk.
Eyðsla 7,8 l/100 km*
Öflugir vinnufélagar
Kíktu í kaffi og reynsluakstur