Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Macron þvertók fyrir það í fyrra-
dag að breyta stefnunni og afturkalla
skattahækkunina, enda mun ríkis-
sjóði ekki veita af tekjunum sem
gjöldin skila í kassann. Segir forset-
inn þörf fyrir dísil- og bensínskatt-
ana til að örva skipti yfir í grænorku
í samgöngum. Með því að fella skatt-
ana niður græfi hann undan um-
hverfisstefnu stjórnar sinnar.
Í ræðunni boðaði hann þó þau ný-
mæli að eldsneytisgjöldin yrðu
breytanleg til að eldsneytisverðið
héldist stöðugt. Hefur hann og sagst
viljugur til að draga úr áhrifum verð-
hækkana á þá tekjulægri. „Ég
heyrði reiði ykkar,“ sagði forsetinn
og játaði að skattarnir væru ögn
stjórnlausir gagnvart sveiflum í olíu-
verði. Hét hann breytingum á því til
að lina áhrifin á þá sem keyra þyrftu
mikið og hefðu enga valkosti sam-
göngum.
Alvarlegur skellur
Fjármálaráðherrann Bruno Le
Maire segir afleiðingar mótmæla
gulvestunga „alvarlegan skell“ fyrir
franskt efnahagslíf. Röskunin hafi
verið mikil þótt en sé of snemmt að
segja hverjar afleiðingarnar verði
fyrir hagvöxtinn. Lokuðu mótmæl-
endur götum um allt land og tóku
fyrir eða skertu aðgengi að birgða-
stöðvum eldsneytis, einangruðu
verslanakeðjur og verksmiðjur. Í
verslunarmiðstöðvum fækkaði heim-
sóknum til dæmis um 15% sl. laugar-
dag miðað við sama dag viku áður að
sögn CNCC, regnhlífarsamtaka
verslunarmiðstöðva. Helgina áður, á
upphafsdegi mótmælanna, komu
45% færri gestir í miðstöðvarnar. Le
Maire sagði smásöluverslunina hafa
orðið fyrir 35% tekjutapi fyrsta dag
mótmælanna og 18% sl. laugardag.
Tiltrú franskra neytenda mælist
nú minni en nokkru sinni frá í febr-
úar 2015. Áhyggjur þeirra af at-
vinnuleysi og verðbólgu af völdum
verðhækkana á eldsneyti, sem marg-
ir segja skerða kaupmátt sinn, hafa
stóraukist.
„Eins og Lúðvík fjórtándi“
Macron lét mótmælin afskiptalaus
fyrstu vikuna en greip síðan til
Twitter-samfélagsmiðilsins og gagn-
rýndi harðlega ofbeldið í París
síðastliðinn laugardag. Þeir sem
ábyrgð á þeim bæru skyldu skömm
af hafa, sagði forsetinn.
Macron hefur sætt gagnrýni fyrir
hroka og þótt kuldalegur í fram-
komu. Honum sé gjarnt að tala niður
til fólksins. „Þegar þú hegðar þér
eins og Lúðvík fjórtándi geturðu
Gulvestungar grafa undan Macron
Víðtæk mótmæli gegn auknum sköttum á bifreiða-
eldsneyti komu Emmanuel Macron Frakklands-
forseta í opna skjöldu Breytingar á skattheimtunni
sem hann varpaði fram í fyrradag mættu litlum skiln-
ingi og þóttu ónógar til að auka kaupmátt launa sem
hann var kosinn til að bæta
AFP
Umdeildur Emmanuel Macron, forseti Frakklands. Stuðningur við Macron hefur hrunið síðustu vikur og mánuði. Á
honum hafa dunið ásakanir um að hann væri úr tengslum við almenning og einungis forseti hinna ríku.
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Emmanuel Macron, forseti Frakk-
lands, var óviðbúinn hinum ofbeldis-
fullu mótmælum í París gegn hækk-
un skatta á eldsneyti. Hann sagði í
vikubyrjun að mótmælin, sem staðið
höfðu í tíu daga, gætu skaðað ímynd
Frakklands út á við. Yrði stjórn sín
að taka mið af gremju almennings.
Hafnaði hann þó með öllu kröfum
svonefndra gulvestunga um aftur-
köllun skattanna.
Hann segist horfa til lengri og
vistvænni framtíðar með gjöldunum
en mótmælendur segjast hafa brýn-
ar þarfir vegna krappra kjara og
ekki geta leyft sér að hugsa lengra
en til næstu mánaðamóta; ekki til
jarðarenda eins og forsetinn.
Eftir átökin var eins og á vígvelli
um að litast á vettvangi bardaganna í
París. Forsetinn hefur freistað þess
síðustu vikurnar að snúa vaxandi
óvinsældum sínum við. Stuðningur
við Macron hefur hrunið og þykja
mótmælin hafa skaðað hann enn
frekar. Á honum hafa dunið ásakanir
um að hann væri úr tengslum við al-
menning og barasta forseti hinna
ríku.
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Gullsmiðir
Sérfræðingar í trúlofunar
& giftingarhringum
Skoðaðu úrvalið á www.acredo.is
A-1488-34
Demantshringur miðjusteinn 0,40 ct
187.479,-
A-1313-1
Hringapar með demöntum
183.115,-
A-1489-17
Demantshringur miðjusteinn 0,30 ct
153.849,-
A-1597-1
Hringapar með demöntum
247.616,-
A-1601-2
Hringapar /demöntum, miðjust. 0,30 ct
335.321,-
A-1684-2
Hringapar með demöntum
215.479,-
A-1695-4
Hringapar með demöntum
180.326,-
A-1754
Hringapar með demöntum
361.943,-
A-1774-1
Demantshringur miðjusteinn 0,40 ct
301.069,-
A-1790-1
Demantshringur miðjusteinn 0,15 ct
231.739,-
A-2026-6
Hringapar með demöntum
337.584,-
A-2057-1
Demantshringur miðjusteinn 0,20 ct
133.449,-
A-2074-2
1Hringapar með demöntum
226.452,-
A-3003-1
Hringapar með demöntum
346.594,-
-
A-2084-13
Demantshringur miðjusteinn 0,25 ct
129.349,-
A-3021-1
Hringapar með demöntum
327.426,-
A-6006-1
Hringapar með demöntum
321.776,-
S-1086-1
Hringapar með demöntum
111.107,-
Macron í mótbyr