Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 12
Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sjúkrahúsfólk Frá vinstri talið eru hér á myndinni Ragna Gústafsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á bráðadeild, Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir bráðalækninga, og Karl Andersen sem er yfirlæknir á Hjartagátt Landspítalans. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is M eð vel þjálfuðu starfsfólki og góð- um tækjum höfum við full tök á að sinna hjartasjúk- lingum. Að undanförnu höfum við sett nýja ferla og endurskipulagt vinnubrögð hér á deildinni, meðal annars í samræmi við nýja tækni, því bráða- og hjartalækningar þróast hratt,“ segir Ragna Gústafs- dóttir, hjúkrunardeildarstjóri á bráðadeild Landspítalans. Næstkomandi laugardag, 1. desember, verður bráðamóttaka fyrir hjartasjúklinga hluti af starf- semi bráðadeildar í Fossvogi, en síð- astliðin átta ár hefur þessi starfsemi verið á spítalanum við Hringbraut á svonefndri Hjartagátt. En héðan í frá verður fólki með til að mynda hjartsláttartruflanir og -óreglu, mæði, brjóstverki og annað slíkt sinnt í Fossvogi. Göngu- og dag- deildir hjartalækninga verða eftir sem áður við Hringbraut svo og legudeild hjartalækninga og skurð- stofur. Starfsfólki fjölgað Stjórnendur Landspítalans segja að í dag vanti um 100 hjúkr- unarfræðinga til starfa og hafi sú staða skapað mikinn vanda í starf- seminni. Um 40 pláss á legudeildum Landspítala séu lokuð af þessum sökum og er þetta ástæða þeirra breytinga sem nú eru gerðar á þjón- ustu við hjartasjúklinga. „Þrátt fyrir allt gengur vel að manna bráðadeild. Í júlí síðast- liðnum var Hjartagáttinni lokað tímabundið og sjúklingum beint á bráðamóttökuna og það gekk vel og því afréðum við að taka þetta skref nú. Þessu fylgir að læknum hér verður fjölgað um tvo og hjúkr- unarfræðingum og sjúkraliðum um fimm á sólarhring,“ segir Ragna. Hjartalækningar í þróun Karl Andersen, yfirlæknir Hjartagáttar, segir sérgrein hjarta- lækninga hafa þróast mikið á und- anförnum árum sem kalli á breyt- ingar í þjónustu. Þar megi nefna fjölgun brennsluaðgerða vegna hjartsláttartruflana, ísetningu gang- og bjargráða og flókin inngrip á kransæðum og hjartalokum. Þetta kalli á aukna dagdeildar- og göngu- deildarþjónustu. Gott væri vissulega að öll starfsemi í hjartalækningum væri á einum stað, en það sé ekki nauðsyn. „Í gáttina fáum við oft 27-28 sjúklinga á dag eða um 8.500 manns á ári. Veikindi þessa fólks eru mis- jafnlega alvarleg eins og gengur. Í alvarlegustu tilvikunum er fólk flutt með sjúkrabíl og strax á vettvangi geta bráðaliðar hafið fyrstu aðgerð- ir; tekið hjartalínurit og önnur lífs- mörk og sent upplýsingar beint inn á sjúkrahús þar sem læknir greinir og tekur ákvarðanir, segir hvort við- komandi sjúklingur þurfi í hjarta- þræðingu eða aðgerð, en undirbún- ingur með lyfjagjöf og öðru getur þá hafist strax í sjúkrabílnum. Í öðrum tilvikum kemur sjúklingurinn hing- að í Fossvoginn til aðhlynningar,“ segir Karl. Bætir við að erlendis sé þetta fyrirkomulag alsiða, ástand sjúklinga sé greint áður en þeir koma í hús sem geri vinnu lækna, hjúkrunarfræðinga og annarra skil- virkari en ella. Greint og forgangsraðað Það var í september síðast- liðnum sem tekin var ákvörðun um flutning á starfsemi Hjartagáttar- innar. Því þurfti að bregðast hratt við í undirbúningsstarfi, þar sem Landspítalafólk hefur meðal annars notið aðstoðar erlendra sérfæðinga sem hafa hannað bráðamóttökur við sjúkrahús víða um heim, að sögn Jóns Magnúsar Kristjánssonar, yfirlæknis bráðalækninga. „Meðal annars með tilliti til þjónustu við hjartasjúklinga er það nú hjúkrunarfræðingur í stað ritara sem fyrstur starfsmanna hittir fólk hér í afgreiðslu bráðamóttökunnar; starfsmaður sem hefur þekkingu til að greina vanda sjúklinga og for- gangsraða. Svona höfum við velt við hverjum steini í starfi alls sjö vinnu- hópa sem undirbúið hafa að Hjarta- gáttin komi hingað. Og nú er hér allt til reiðu,“ segir Ragna Gúst- afsdóttir. Flæðishindranir setja strik í reikninginn Þau Ragna og Karl Andersen segja að í dag setji svonefndar flæð- ishindranir verulegt strik í reikning- inn í allri starfsemi Landspítalans. Nú séu á deildum sjúkrahússins um 130 sjúklingar, gjarnan eldra fólk og hrumt sem hefur lokið meðferð en kemst veikinda sinna vegna ekki heim og fær ekki pláss á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Lýsir Ragna þessu sem tappa sem hafi áhrif á allra starfsemi Landspítalans og skapi álag sem mætt sé með yfir- vinnu starfsfólks. „Á þessu vandamáli þarf að taka heildstætt. Vandinn er líka ekki bara Landspítalans heldur samfélagsins alls, sem gerir kröfu um fyrsta flokks heilbrigðisþjón- ustu,“ segir Ragna. Bráðamóttaka Landspítala fyrir hjartasjúklinga er flutt á nýjan stað. Ný vinnu- brögð og fullkomin tækni. Sjúklingar greindir á vettvangi. Hjartsláttartruflanir, mæði og brjóstverkir. Aðgerðir og göngudeild verða áfram á Hringbrautinni. Hjartað í Fossvogi Morgunblaðið/Eggert Aðgerð Hjartasjúkdómar eru algengir. Oft þarf fólk að fara í þræðingu eða í stórar aðgerðir, en í öðrum tilvikum dugar inngrip á göngudeildum. Karl Jeppesen FORNAR HAFNIR Ljósmyndir og frásagnir af 160 verstöðvum á Íslandi. Áningarstaðirnir eiga það sam­ eiginlegt að þaðan reru forfeður okkar til fiskjar. Heillandi ferðalag um tímann og söguna – allt í kringum landið. Guðjón Ragnar Jónasson HIN HLIÐIN Örsögur úr menningarheimi sem mögrum er hulinn. Ljóslifandi, grátbroslegar svip­ myndir úr leikhúsi næturlífsins í bland við minningarbrot sem opna lesandanum sýn á réttindabaráttu hinsegin fólks. Jólabækurnar frá Sæmundi Alls konar bækur fyrir alls konar fólk Theódór Gunnlaugsson NÚ BROSIR NÓTTIN Rómuðævisaga refaskyttunnar Guðmund­ ar Einarssonar sem var goðsögn í lifanda lífi. Hér er lýst samskiptum náttúrubarns 19. aldar við landið og lífríki þess. Finnbogi Hermannsson UNDIR HRAUNI Spennandi frásögn sem byggir á raunveru­ legum atburðum þegar tveir þýskir skip­ brotsmenn flúðu undan breska hernum upp í Hekluhraun og unnu þar í púlsvinnu fyrir Selsundsbónda. Meistaralega fléttað saman af landsþekktum sagnaþul. Halldóra Thoroddsen KATRÍNARSAGA Hér segir frá ungu fólki sem berst með straumi tímans. Þeim er fylgt í gleði og sorg um hippadóm og upphaf auðhyggjuskeiðs. Ok og frelsi kynlífsbyltingarinnar, reykingar í skólatímum og bjór í flöskum. Bjarni Harðarson Í GULLHREPPUM Hér segir af þjóðsagnapersónunni séra Þórði í Reykjadal og hinu mikla veldi Skál­ holtsstaðar á 18. öld. Listilega skrifuð bók þar sem saga þjóðarinnar birtist okkur með kröm sinni og skemmtan. Guðmundur Brynjólfsson EITRAÐA BARNIÐ Skelfilegur glæpur skekur Eyrarbakka sum­ arið 1899 og við tekur æsileg atburðarás. Inn í söguna dragast m.a. Einar Benedikts­ son og Eggert í Vogsósum en það er sýslu­ mannsfrúin Anna sem stendur upp úr. Edvard Radzinskij STALÍN Ítarlegust og merkust af þeim fjölda ævisagna sem komið hafa út um hinn goðumlíka harðstjóra. Hér koma fram ýmis áður óþekkt atriði og að lokum frásagn­ ir af dularfullum dauða Stalíns. Haukur Jóhannsson þýddi úr rússnesku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.