Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 74
74 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Guðbjartur Jónsson
Guðbjartur Jónsson,
sem rak veitingastaðinn
Vagninn á Flateyri, orðaði
hugsanir sínar á dálítið
annan veg en aðrir og af
þeim sökum er hann al-
gjört „legend“ eins og einn
Flatreyringurinn orðaði
það. Hann hefur hér leik-
inn:
*
„Sá vægir sem veit ekki meira.“
*
„Þegar neyðin er stærst, þá
verður hún ekki mikið stærri.“
*
„Það var svo mikill bylur að það
sást ekki á milli augna og ég varð að
vera með opinn hausinn út um
gluggann.“
*
Guðbjarti var einhverju sinni
hrósað fyrir það hversu fljótur hann
væri að beita. Hann var hins vegar
hógværðin uppmáluð og sagði:
„Það er nú ekki lengi gert að beita
í klukkutíma.“
*
Björn Ingi Bjarnason, fangavörð-
ur á Litla-Hrauni, sem nú býr á
Eyrarbakka, og Guðbjartur voru
miklir vinir á meðan báðir bjuggu á
Flateyri. Þar störfuðu þeir saman
um árabil við beitningu og einnig í
marþættu félagsstarfi sem hélt
áfram eftir að báðir fluttu suður.
Eitt sinn hittust þeir félagar á
förnum vegi eftir að hafa ekki sést
lengi og Björn Ingi spyr Guðbjart að
því hvort ekki væri eitthvað nýtt og
eftirminnilegt eftir honum haft.
„Nei,“ svaraði Guðbjartur. „Ég
hef ekki sagt feilpúst lengi.“
Íþróttafréttamenn
Íþróttafréttamenn, fyrr og nú,
hafa oft farið mikinn í lýsingum eins
og þessi dæmi sanna:
Höddi Magg:
„Hann hefur verið með
meðfæddan hjartagalla
frá fæðingu.“
*
Gaupi – Guðjón Guð-
mundsson:
„Þetta er skrýtin upp-
stilling hjá þjálfaranum.
Hann lætur byrjunarliðið
byrja út af.“
*
Ingólfur Hannesson:
„Næst verður keppt í 4x400
metra stangarstökki.“
*
Valtýr Björn Valtýsson:
„Nei, nei, ef menn ætla að skora
af svona löngu færi þá verða þeir að
fara aðeins nær.“
*
Gummi Ben.:
„Hið unga lið Ajax situr eftir
með súrt ennið.“
*
Einar Örn Jónsson:
„KR-ingar sigruðu Grindvíkinga
í kvöld með einu marki gegn engu í
Grindavík. Sýnt verður úr leiknum
í Fótboltakvöldi hér á eftir og þeir
sem ekki vilja heyra úrslitin nú
ættu því að lækka í tækjunum.“
Eyþór í Lindu
Eyþór Tómasson, kenndur við
sælgætisgerðina Lindu sem hann
stofnaði á Akureyri árið 1949, er
nánast goðsögn á Akureyri þegar
kemur að hinu spaugilega í tilver-
unni og þá eru mismæli ekki und-
anskilin. Nokkur slík fylgja hér á
eftir:
*
Eitt sinn var Eyþór í Lindu á
ársfundi Félags íslenskra iðnrek-
enda sem þá var haldinn í Leik-
húskjallaranum við Hverfisgötu í
Reykjavík. Hann sté þar í pontu og
fór að býsnast yfir því hversu frí-
dagar á Íslandi væru margir. Og
auðvitað kom hann með dæmi:
„Það eru 15 frídagar í apríl ef 1.
maí er talinn með.“
*
Eyþór í Lindu var Skagfirðingur
að uppruna, fæddur á Bústöðum í
Austurdal í Skagafirði þar sem for-
eldrar hans bjuggu.
Eitt sinn var Eyþór á ferðalagi um
Skagafjörð með hópi fólks frá Akur-
eyri. Hann var í ákafur að uppfræða
samferðafólk sitt um bæi, menn og
málefni í þessum sögufræga firði og
fór svo að einn úr hópnum sagði við
hann:
„Þú ert greinilega vel kunnugur
hérna í Skagafirðinum.“
„Já, elskan mín, góðasta, biddu
fyrir þér,“ svaraði Eyþór. „Ég er
hér undan öðrum hverjum manni.“
*
Eyþór var á ferðalagi um Frakk-
land og Spán og lá leið hans um
Pýreneafjöll. Heimkominn kvaðst
hann hafa keyrt á milli landanna yfir
Pýramídafjöllinn. Í sömu ferð var
ekið meðfram Genfarvatni sem í út-
gáfu Eyþórs var orðið að Genesaret-
vatni. Áttu þeir sem á ferðasöguna
hlýddu í mestu erfiðleikum með að
fylgja sögumanni eftir.
*
Eyþór kom inn í Akureyrarapótek
til að endurnýja birgðir af hjartatöfl-
unum sínum sem hann var búinn
með. Ekki mundi hann hvað þær
hétu og þegar afgreiðslustúlkan brá
sér á bak við til að ráðfæra sig við
lyfjafræðing kallaði hann á eftir
henni svo allir í búðinni heyrðu:
„Æ, þú veist, þessar bleiku tussur
sem stoppa hjartað þegar það byrjar
að slá!“
Frétta- og dagskrárgerðar-
menn
Karl Garðarsson.
„Barnið var 5,5 merkur og 15
sentimetrar.“
*
Edda Andrésdóttir:
„Og talandi um snáka, hingað er
mættur Halldór Runólfsson yfir-
dýralæknir til að ræða um hrossa-
sóttina.“
*
Jóhann Hlíðar Harðarson:
„Ölvun og áfengi fara ekki
saman.“
*
Ingólfur Bjarni Sigfússon:
„Þetta á einkum við um vanfærar
konur á barneignaraldri.“
*
Gunnar Gunnarsson:
„Litlar líkur eru á því að fleiri lík
finnist á lífi …“
*
Guðni Már var eitt sinn að ræða
við Sigurð Helgason hjá Útvarpi
Umferðarráðs. Þeir ræddu meðal
annars um ölvunarakstur og þá valt
þetta út úr Guðna:
„Getum við ekki verið sammála
um það, Sigurður, að hvetja fólk til
þess að hugsa sinn gang nú í desem-
ber? Ef það ætlar að drekka að setj-
ast þá ekki undir bíl.“
*
Ásgerður Jóna Flosadóttir, for-
maður Fjölskylduhjálpar Íslands,
var einhverju sinni í símaviðtali í
morgunþættinum hjá morgunhan-
anum Markúsi Þórhallssyni á Út-
varpi Sögu.
Það er vel þekkt að mannanöfn
eiga það til að beyglast í munni okk-
ar og þannig var það einmitt í þetta
skiptið þegar útvarpsmaðurinn
sagði ábúðarfullur og alvarlegur í
bragði:
„Næsti viðmælandi minn er Flos-
gerður …“
*
Sigmundur Ernir Rúnarsson:
„Mikil ásókn var í lóðirnar og
fengu fleiri en vildu.“
*
Sveinn Snorri í Reykjavík
síðdegis
Sveinn Snorri Sighvatsson var um
tíma einn af stjórnendum útvarps-
þáttarins Reykjavík síðdegis á
Bylgjunni, ásamt þeim Þorgeiri Ást-
valdssyni og Kristófer Helgasyni,
sem ennþá halda utan um þennan
þátt.
Svenni var þarna af lífi og sál, ekki
síður en hinir, og átti oft skemmti-
lega spretti.
*
Það var niðri við Tjörn. Svenni var
þar með unga stúlku „í beinni“ og
hóf spjallið við hana á þessari spurn-
ingu:
„Ertu að gefa brauðunum önd?“
*
Svenni var einhverju sinni að
segja hlustendum Bylgjunnar frá
miklum snjóþyngslum í Reykjavík
og gat þess þá að hann hefði um
morguninn þurft að „leggjast á
fjögur hné“ til að grafa sig með ber-
um höndum út úr kjallaraíbúð
sinni.
*
Eitt sinn gaf Svenni ökumönnum
eftirfarandi heilræði:
„Þið munið svo að hafa ljósin
spennt og kveikt á beltunum.“
Af sendli Gíslabúðar
Það var oft mikið að gera Gíslabúð
í Hafnarfirði. Hún var við Suðurgöt-
una og bauð upp á matvörur, bús-
áhöld og vefnaðarvörur eins og þá
var títt í mörgum hverfaverslunum.
Í búðinni vann eitt sinn sendill,
sem var feiminn en duglegur. Einn
daginn átti hann að fara með hangi-
kjöt til Ingileifar Ólafsdóttur í Suð-
urbænum. Þegar húsmóðirin opnaði
dyrnar brá strák eitthvað svo að
hann stundi upp:
„Ég er að koma með hangileif til
Ingikjöts.“
Sendiherra Kópavogs
Viðar Bjarnason vann um margra
ára skeið á bæjarskrifstofum Kópa-
vogs við erindrekstur af ýmsu tagi;
fór meðal annars í póstinn, banka og
stofnanir með skjöl og ýmsa pappíra
Hann hefur alltaf verið ákaflega létt-
ur í lund og lífgaði svo um munaði
upp á tilveruna hvar sem hann kom
– stundum með mismælum af dýr-
ustu sort.
*
Viðar ætlaði einhverju sinni að
segja samstarfskonu sinni að líta í
eigin barm út af tilteknu máli, en
missti út úr sér:
„Líttu á eigin brjóst!“
*
Annað sinn ætlaði Viðar að sýna
ónefndri samstarfskonu sinni á bæj-
arskrifstofunum samhug og sagði
við hana:
„Æjæ, gengur bara allt á aftur-
endanum hjá þér í dag?“
*
Viðar fór einu sinni með dóttur
sinni og tengdasyni út til Kaup-
mannahafnar að heimsækja aðra
dóttur sína og tengdason sem þar
bjuggu. Um ferðina sagði hann
glettinn:
„Þetta var virkilega fín ferð. Það
var svo gott samkomulagið að við
vorum eins og fimm eineggja tvíbur-
ar.“
Frissi í Skóghlíð
Friðrik Sigurjónsson, Frissi í Skóg-
hlíð, var fæddur og uppalinn á Norð-
firði, en bjó lengst af í Skóghlíð á
Fljótsdalshéraði þar sem hann stund-
aði búskap. Frissa varð stundum fóta-
skortur á tungunni og var þá útkoman
bæði skrautleg og skemmtileg.
*
Frissi var að járna meri í fjárhúsi
ásamt fleirum. Hún var baldin og lét
illa. Þegar verið var að festa síðustu
skeifuna var Frissa farið að renna í
skap og segir:
„Geturðu ekki staðið kyrr í þessa
einu löpp rétt á meðan?“
Nokkru síðar sleit merin sig lausa
og þá hrópaði Frissi:
„Fljótir strákar, lokiði merinni
svo hurðin hlaupi ekki út.“
*
Frissi lenti í þoku af þykkustu
gerð. Hann lýsti því svo:
„Þokan var svo dimm að maður sá
ekki milli augna sinna.“
*
Grétar á Skipalæk keypti eitt sinn
hrút af Frissa og spyr hann síðar um
ættir skepnunnar. Frissi svaraði:
„Ég get sagt það óhræddur að
þetta er besti hrútur af minni ætt.“
*
Öðru sinni hitti annar kunningi
Frissa á hann í kaupfélaginu á Egils-
stöðum þar sem hann var að kaupa
sér saltkjöt í kjötborðinu.
„Jæja, er bara veisla,“ segir kunn-
inginn.
„Já,“ svaraði Frissi, „ég ákvað að
gera mér smá mannamun núna.“
Vigdís Hauksdóttir
Vigdís Hauksdóttir var alþingis-
maður fyrir Framsóknarflokkinn í
Reykjavíkurkjördæmi suður frá
2009 til 2016. Á þeim tíma lét hún
mikið til sín taka og er hún tvímæla-
laust drottning mismæla á Íslandi.
*
„Við skulum bara sjá til en ég er á
engan hátt að stinga höfðinu í stein-
inn.“ Vigdís Hauksdóttir í viðtali við
Stöð 2, 12. september 2011.
*
„Ég vil nú helst tala í fortíðinni,
horfa til framtíðar og standa hér í
nútíðinni, heldur en að vera að líta til
baka.“
Vigdís í Kastljósviðtali á RÚV, 18.
febrúar 2014.
„Sá vægir sem
veit ekki meira“
Fyrir stuttu gaf bókaforlagið Hólar út bókina
Ekki misskilja mig vitlaust! eftir Guðjón Inga
Eiríksson sem inniheldur mismæli og ambögur.
Edda
Andrésdóttir
Friðrik
Sigurjónsson
Karl
Garðarsson
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
Valtýr Björn
Valtýsson
Vigdís
Hauksdóttir
Eyþór H.
Tómasson
Ingólfur Bjarni
Sigfússon
D NÁTTFÖT
D NÁTTKJÓLAR
D SLOPPAR
FULL BÚÐ
AF NÝJUM
NÁTTFATNAÐI
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði