Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það er mikil upplifun að sjá náttúru Íslands og norðurljósin hvelfast yfir mann í stjörnuverinu í Perlunni. Tæknin er svo háþróuð að hægt er að uppfæra myndirnar af reiki- stjörnunum nánast í rauntíma. Hægt er að tengja upplýsingar frá vísindamönnum beint inn í kerfið. Má fullyrða að þessi 150 manna sýningarsalur sé sá fullkomnasti sem settur hefur verið upp á Íslandi. Hann er í einum tanka Perlunnar. Áður en gengið er inn í stjörnu- verið er farið í forrými sem minnir á dimman helli. Þar eru m.a. hljóð- listaverk eftir Bryndísi Bolladóttur. Sævar Helgi Bragason, stjörnu- áhugamaður og rithöfundur, hefur sem ráðgjafi komið að undirbúningi verkefnisins. Stjörnuverið verður hluti sýningarinnar Undur íslenskrar náttúru. Sævar Helgi segir milli þrjú og fjögur þúsund stjörnuver í heim- inum. Nýja stjörnuverið í Perlunni sé með þeim allra fullkomnustu og í flokki með stjörnuverunum í New York og Varsjá. Bylting í kennslu á Íslandi Stjörnuverið í Perlunni sé því bylting í stjörnuskoðun og náttúru- fræðikennslu á Íslandi. Stjörnuverið verður opnað fyrir almennum gestum nk. mánudag. Sýnd er heimildarmynd um Ísland sem fer með gesti ofan í iður jarðar og jökla, á iðjagrænar heiðar og út í stjörnubjartan himingeiminn. Þremur mánuðum síðar er svo áformað að hefja sýningar myndar um norðurljósin sem Sævar Helgi og fjölmennt lið tæknimanna og lista- manna hafa unnið að. Gunnar Gunnarsson, forstjóri Perlu norðursins, segir tæknina í stjörnuverinu mjög fullkomna svo framleiða hafi þurft sérstakt efni til að tæknin njóti sín til fulls. Upp- lausnin sé með því besta sem þekkist í heiminum nú um stundir (8K). Áhugi erlendis frá Gunnar áætlar að af þeim þrjú til fjögur þúsund stjörnuverum sem til eru í heiminum séu 300 til 400 sem geti borið efni í upplausninni 2K til 4K og aðeins nokkur sem bera upp- lausnina 8K. Nokkur erlend stjörnu- ver hafi þegar sýnt áhuga á mynd- inni sem Perla norðursins hefur látið framleiða. Einnig er búið að tilnefna myndina til alþjóðlegra verðlauna. „Við stofnuðum því eigið fram- leiðslufyrirtæki sem getur búið til svona efni. Það er ekki auðvelt að ná svo miklum myndgæðum. Til þess að geta verið með flottasta efnið þurft- um við því að taka það upp sjálf. Græjan hérna er ein sú flottasta í heimi,“ segir Gunnar. Sýningarkerfið komi frá banda- ríska fyrirtækinu Evans and Sutherland, frá Salt Lake City. Gagnabankinn sé unninn af því og Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA. „Þetta er nánast ótæmandi gagnabanki um stjörnur og reiki- stjörnur,“ segir Gunnar. Óskar Rúnar Harðarson, stofn- andi og fjárfestir að baki verkefninu, segir eldgos frábært myndefni. „Um leið og það fer að gjósa getum við farið að taka upp efni,“ segir hann. Sævar Helgi útskýrir svo að við gerð myndanna sé notast við sex kvikmyndavélar samtímis. Tölva setji svo saman myndirnar svo úr verður 180x360 gráða hvolfmynd. Sævar Helgi segir það koma á óvart hversu skýrar myndirnar eru. „Sólarupprásin er eins og hún birtist með berum augum. Það er magnað að sjá Vetrarbrautina. Stjörnurnar eru allar kristaltærar. Gæðin skína í gegn. Það taka kannski ekki allir eftir því en við sem liggjum í stjörnuskoðun sjáum það vel. Ég sé þetta fyrst og fremst fyrir mér sem fræðslumiðstöð og get ekki beðið eftir því að bjóða skólakrökk- um og kennurum að fræðast um al- heiminn. Með þessari tækni er hægt að sníða hverja sýningu að þörfum einstakra hópa,“ segir Sævar Helgi. Sú fyrsta í þessum gæðaflokki Hann segir norðurljósamyndina verða „fyrstu norðurljósamyndina sem gerð er fyrir stjörnuver í heim- inum í eins miklum gæðum og mögu- legt er.“ „Myndin er bylting að því leyti og ég vona að hún rati sem víð- ast. Myndefnið er frá mjög fallegum stöðum á Íslandi,“ segir Sævar. Meðal samstafsmanna hans við gerð norðurljósamyndarinnar eru ljósmyndararnir Ragnar Th. Sig- urðsson, Snorri Þór Tryggvason og Babak Tafreshi, sem er frá Íran. Sævar Helgi segir hugmyndir um að setja upp stjörnukíki á útsýnis- pallinum í Perlunni. Þaðan sé hægt að skoða reikistjörnur í sólkerfinu. Stjörnuhiminninn hvelfist yfir gesti Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjörnusalur Sætin hallast aftur og eftir smástund í rökkrinu líður gestum eins og þeir svífi meðal stjarnanna. Hvelfingin skapar sérstaka stemningu. Nýjar sýningar » Á laugardaginn, 1. des., verður opnuð sýning Náttúru- minjasafns Íslands, Vatnið í náttúru Íslands, í Perlunni. » Þar er fyrir sýningin Undur íslenskrar náttúru. » Sex myndvarpar mynda hvolfmynd í stjörnuverinu en tölva raðar myndunum saman. » Annað kvöld, klukkan 17, verður Sævar Helgi með út- gáfuhóf við stjörnuverið vegna bókar hans um svarthol.  Eitt fullkomnasta stjörnuver heims opnað í Perlunni  Hefur verið mörg ár í undirbúningi  Heimildarmyndir voru sérstaklega framleiddar fyrir stjörnuverið svo tæknin njóti sín til fulls Morgunblaðið/Árni Sæberg Athafnamenn Gunnar Gunnarsson (til vinstri) og Sævar Helgi Bragason. Veldu Panodil® sem hentar þér! Verkjastillandi og hitalækkan Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis d dreif eða lyfjafræ r par kanir. Sjá nánari up flur. Innihelduinntö ðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaver ku, Panodil Brus freyðitö i a, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til kjum. Hitalækkandi. serlyfjaskra.is. gum ver á www. acetamól. Við væ plýsingar um lyfið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.