Morgunblaðið - 30.11.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 30.11.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2018 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Forsætisnefnd Alþingis mun taka fyrir ummæli þingmanna Miðflokks- ins og Flokks fólksins á Klaustri bar á næsta fundi sínum á mánudaginn. Stundin og DV hafa unnið fréttir úr ummælum þingmannanna sem náð- ust á upptöku. Á upptökunni heyrist í Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, og þremur öðrum þingmönnum Mið- flokksins, þeim Gunnari Braga Sveinssyni, Bergþóri Ólasyni og Önnu Kolbrúnu Árnadóttur, ásamt þeim Karli Gauta Hjaltasyni og Ólafi Ísleifsyni, þingmönnum Flokks fólksins, fara m.a. með afar niðrandi ummæli í garð fjölda þingkvenna. „Ég er búinn að fá tölvupóst með þessari beiðni og málið verður á dag- skrá í forsætisnefnd á mánudag og þá væntanlega allt sem því tengist,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, for- seti Alþingis, í samtali við mbl.is um beiðni þingmanna um að siðanefnd fjalli um mál er varðar niðrandi um- mæli þingmannahóps sem hefur ver- ið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Níu þingmenn úr röðum Samfylk- ingarinnar, Viðreisnar, Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs og Pí- rata óskuðu í gær eftir því að forsætisnefnd tæki upp mál er varð- ar ljót og niðrandi ummæli þing- mannanna sem fjallað hefur verið ítarlega um í fjölmiðlum síðasta sólarhring. Steingrímur segir að til að byrja með komi málið inn á borð forsætis- nefndar, sem skoði málið og ákveði í framhaldinu hvort það sé þess eðlis að ákveðið verði að vísa því til siða- nefndar. Steingrímur sagði sjálfur í gær að orðbragðið hjá þingmönnum á barn- um Klaustri væri „óviðeigandi, óverjandi og óafsakanlegt“ og væri hörmung að horfa upp á. Hann vildi í gær gefa þingmönnunum tækifæri til að líta í eigin barm og meta hvort þeir ættu að segja af sér áður en hann tjáði sig um það. Hópur kvenna á þingi kom saman í hádeginu í gær til að ræða um- mælin. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins og varaformaður þingflokksins, sagði í samtali við mbl.is að konur úr öllum þingflokkum myndu líklegast sækja fundinn. Bíður með afsagnir þar til eftir niðurstöðu forsætisnefndar „Siðferðiskennd manna er sannar- lega mismunandi og hvort þeir axli pólitíska eða siðferðilega ábyrgð er undir þeim komið,“ segir Inga Sæ- land, formaður Flokks fólksins, um þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins. Á upptökum þingmannanna er meðal annars talað mjög niðrandi um Ingu Sæland. Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Flokks fólksins, og Bergþór Ólason báðu Ingu Sæland afsökunar á um- mælum sínum. Í gærkvöld sendi stjórn Flokks fólksins frá sér tilkynningu þar sem þess er krafist að Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason segi af sér þingmennsku og öðrum trúnaðar- störfum fyrir flokkinn. Þar kom jafn- framt fram að stjórn flokksins kæmi aftur saman í dag klukkan 14 þar sem ákvörðun um næstu skref yrði tekin. Úrsagnir úr Miðflokknum Fjórar úrsagnir höfðu borist Mið- flokknum í gær, að sögn Jóns Pét- urssonar, aðstoðarmanns formanns Miðflokksins. Þá hefur Vilborg Han- sen, sem gegnt hefur varamennsku í bankaráði Seðlabankans fyrir hönd Miðflokksins, sagt sig úr flokknum og bankaráði. Umræddir fjórir þing- menn Miðflokksins sendu frá sér af- sökunarbeiðni vegna ummæla sinna í gær. „Við fjórir þingmenn Mið- flokksins sem sátum á hótelbarnum Klaustri í liðinni viku viljum biðja þá sem farið var ónærgætnum orðum um í þeim einkasamtölum sem þar fóru fram einlæglegrar afsökunar. Það var ekki ætlun okkar að meiða neinn og ljóst má vera að sá talsmáti sem þarna var á köflum viðhafður er óafsakanlegur. Við einsetjum okkur að læra af þessu og munum leitast við að sýna kurteisi og virðingu fyrir samferðarfólki okkar. Jafnframt biðjum við flokksmenn Miðflokksins og fjölskyldur okkar afsökunar á að hafa gengið fram með þessum hætti,“ segir í undirritaðri yfirlýs- ingu þingmannanna. Þá birti DV hluta af hljóðupptök- unni í gær þar sem þingmennirnir gera meðal annars grín að fyrrver- andi þingkonunni Freyju Haralds- dóttur með því að herma eftir sel. Eiga að taka pokann sinn „Þetta er það sem má almennt kalla hatursorðræðu, sem er ólíð- andi, og kjörnir fulltrúar eiga að taka pokann sinn ef þeir haga sér svona,“ segir Bryndís Snæbjörns- dóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, um hegðun þing- manna sem gerðu grín að Freyju Haraldsdóttur. „Mér finnst það mjög alvarlegt mál að kjörnir fulltrúar okkar skuli haga sér svona. Freyja Haralds- dóttir hefur aldeilis fengið að heyra það í gegnum tíðina frá virkum í at- hugasemdum og kannski er það meðal annars þess vegna að þing- menn leyfa sér að tala svona. Hvers getum við þá ætlast til af almenn- ingi?“ spyr Bryndís, sem var auð- heyranlega hneyksluð yfir háttsemi þingmannanna. Framhaldið í höndum forsætisnefndar Alþingis  Hörð viðbrögð við ummælum þingmanna úr Miðflokknum og Flokki fólksins Morgunblaðið/Árni Sæberg Sameiginleg yfirlýsing Oddný G. Harðardóttir, Inga Sæland og Silja Dögg Gunnarsdóttir lásu sameiginlega yfir- lýsingu í Alþingishúsinu í kjölfar ummæla um þær, en þær voru allar nafngreindar á hljóðupptökunum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Gunnar Bragi Sveinsson Bergþór Ólason Anna Kolbrún Árnadóttir Ólafur Ísleifsson Karl Gauti Hjaltason Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Spurður hvort fólk megi búast við því að vera hljóðritað á opinberum vettvangi segir lögmaðurinn Hörð- ur Helgi Helgason að það fari eftir því í hvaða tilgangi það sé gert. „Tilgangurinn er meginstefið í nýju persónuverndar- lögunum, sem skerpa mikið á því að ávallt þurfi að vera lögmæt- ur, skýr og yfir- lýstur tilgangur fyrir allri vinnslu persónuupplýs- inga,“ segir Hörður Helgi og bendir á að í þessu tilviki sé tilgangurinn „fjölmiðlun“ sem komi til skoðunar. „Svarið við því hvort það er heim- ilt að vinna með upptökur, í hljóði eða mynd, af einhverjum að skemmta sér niðri í bæ, ræðst af til- ganginum. Maður sér ekki fyrir sér að það sé neinn augljós tilgangur með að vinna með slíkar upptökur nema í einhverjum einstökum af- mörkuðum tilvikum, eins og til dæmis þetta, þegar þjóðþekktir ein- staklingar eru að ræða á almanna- færi um einhver mál sem má halda fram að kunni að eiga erindi inn í þjóðmálaumræðuna, þá kemur til skoðunar sá tilgangur að slíkt sé gert í þágu fjölmiðlunar.“ Þjóðþekktir einstaklingar Spurður hvort það skipti ein- hverju máli að hér sé um opinberar persónur að ræða segir Hörður Helgi það vissulega eitt af því sem komi til greina. „Þetta eru þjóð- þekktir einstaklingar að tala um at- riði sem eru rök með því að eigi er- indi til almennings. Þarna vegur á móti að einhvers staðar hljótum við að draga línuna og segja að menn eigi einkalíf. Það getur ekki verið þannig að ef menn taka þátt í þjóð- félagslegri umræðu eða bjóða sig fram til Alþingis þá eigi þeir þar með ekkert einkalíf. Við erum að eiga við það að þarna er verið að fara skrefinu lengra með að sneiða meira að einkalífi en við höfum hingað til gert. Menn hafa kannski talið sig geta fengið að vera í friði sitjandi einir saman að einhverju spjalli.“ Tilgang- ur skipt- ir máli Hörður Helgi Helgason  Hljóðritun á op- inberum vettvangi Hin árlega þingmannaveisla forseta Íslands var haldin á Bessastöðum í gærkvöldi. Um er að ræða kvöld- verðarboð forsetahjóna Íslands fyrir alþingismenn og maka þeirra. Hófst boðið klukkan 18.30 en áður höfðu þingmenn sótt móttöku í skála Al- þingis þar sem fyrrverandi þing- mönnum var líka boðið. Veislan var að þessu sinni haldin í skugga umdeildra ummæla sem féllu á veitingastaðnum Klaustri og greint hefur verið frá í fjölmiðlum. Það mál hindraði ekki þingmenn í að sækja veisluna og tíndust þeir inn hver á fætur öðrum í hávaðaroki í gær- kvöld. Þingmenn sóttu kvöld- verðarboð á Bessastöðum  Árleg þingmannaveisla forseta Íslands haldin í gærkvöldi Morgunblaðið/Hari Á Bessastöðum Ólafur Ísleifsson, þingmaður Flokks fólksins. Morgunblaðið/Hari Veisla Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Miðflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.