Morgunblaðið - 30.11.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2018
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Útlit er fyrir að framkvæmdir við
veginn um Berufjarðarbotn á Aust-
fjörðum dragist fram á vor. Þetta er
síðasti malarkaflinn á hringveginum
og því verður hann ekki að fullu
kominn á bundið slitlag fyrr en fram-
kvæmdum lýkur.
Lagning og endurgerð nýs vegar
um Berufjarðarbotn nær til um
fimm kílómetra kafla. Mesta fram-
kvæmdin er nýbygging vegar og
brúar um sjávarvog. Framkvæmdin
er langt komin. Brúin er tilbúin og
slitlag komið á stóran hluta vegarins.
Hins vegar hafa orðið tafir vegna
óvænts sigs í vegfyllingunni yfir ál-
inn í vognum norðanverðum.
Vegagerðin hefur brugðist við
með því að láta verktakann aka sí-
fellt meira fyllingarefni og fargi á
veginn og er búið að taka meira
magn úr Svartagilsnámu en gert var
ráð fyrir í umhverfismati og fram-
kvæmdaleyfi. Vegagerðin óskaði eft-
ir framkvæmdaleyfi hjá Djúpavogs-
hreppi til að taka meira efni úr
námunni. Sveitarstjórn taldi álita-
mál hvort notkun námunnar sam-
rýmdist gildandi aðalskipulagi og
bannaði frekara efnisnám þar og
annars staðar.
Ræða við Skipulagsstofnun
Sigurþór Guðmundsson verkefnis-
stjóri segir að þá hafi ekki annað ver-
ið að gera en að stöðva verkið. Hann
segir að tiltölulega lítið sé eftir af
verkinu. Duga myndi að fá leyfi til að
taka 10 þúsund rúmmetra til við-
bótar til að ná fyllingunni í rétta hæð
og fá efni í farg ofan á til að flýta
skammtímasigi.
Sveitarstjórn beindi þeim tilmæl-
um til Vegagerðarinnar að breyting-
ar á framkvæmdinni yrðu bornar
undir Skipulagsstofnun og óskað eft-
ir ákvörðun stofnunarinnar um
matsskyldu þeirra. Sigurþór segir að
það mál sé nú í vinnslu.
Kostnaðaráætlun fyrir lagningu
vegarins hljóðaði upp á um 1.300
milljónir króna en Sigurþór segir að
búast megi við að sigið valdi 200
milljóna króna aukakostnaði.
Ætlunin var að taka veginn í notk-
un 1. september síðastliðinn en
Sigurþór telur ljóst að það dragist til
vors. Erfitt geti orðið að vinna við
fyllingar og klæðningu vegarins í
vetur.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Nýi og gamli Umferðinni um Berufjarðarbotn er beint á gamla veginn sem er úr sér genginn. Vegfarendur verða að
láta hann duga í vetur. Nýi vegurinn er gerður samkvæmt nútímakröfum en vegna sigs náðist ekki að klára hann.
Umferðin fer um gamla
veginn fram á vor
Tafir á lagningu nýs vegar um Berufjarðarbotn vegna sigs
Amnesty International ýtir árlegri
herferð úr vör í dag kl. 17 við Hall-
grímskirkju með gagnvirkri ljósa-
innsetningu er nefnist „Lýstu upp
myrkrið“. Eliza Reid forsetafrú
opnar ljósainnsetninguna formlega.
Tilgangurinn er að vekja athygli
á undirskriftaherferð Amnesty Int-
ernational, Bréf til bjargar lífi, sem
í ár er helguð tíu baráttukonum
fyrir mannréttindum um heim allan
sem sæta grófum mannréttinda-
brotum. Hægt er að skrifa undir öll
málin 10 á www.amnesty.is.
Myrkrið lýst upp í dag
við Hallgrímskirkju
Ljósmynd/Amnesty
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fatnaður fyrir fagfólk
Nóvemberveiðum á hreinkúm lauk
20. nóvember og náðist að veiða upp í
öll leyfin nema eitt. Leyft var að veiða
40 hreinkýr á svæði 8, sem nær yfir
Lónið og Nes í Hornafirði.
„Það snjóaði rétt um mánaðamót
október og nóvember og þá komu dýr
niður, en menn töluðu um að þeir
hefðu viljað sjá fleiri dýr. Fannst ekki
vera mikið úrval. Tíðin var góð og lík-
lega enn dýr til fjalla. Veiðimenn fara
ekki mikið til fjalla á þessum árs-
tíma,“ sagði Jóhann G. Gunnarsson,
sérfræðingur Umhverfisstofnunar á
Egilsstöðum, sem heldur utan um
hreindýraveiðarnar.
Hann sagði það hafa gilt um veið-
arnar nú líkt og oft áður að of margir
veiðimenn hafi dregið það að fara til
veiða fyrr en í síðustu lög.
Með nóvemberveiðinni lauk hrein-
dýraveiðum ársins. Kvótinn á þessu
ári var 1.450 dýr og tókst að ná þeim
öllum nema 65 dýrum sem leyfi voru
fyrir. Alls voru því felld 1.385 hrein-
dýr á árinu. Í fyrra gengu af 11 hrein-
dýr. gudni@mbl.is
Hreindýraveiðum er lokið í ár
Felld voru 1.385 hreindýr Ekki náðist að fella 65 dýr
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hreintarfur Þessi tarfur var nýlega sunnan við Hvalnesskriður að safna kröftum eftir annasaman fengitíma.